Gærdagurinn var eftirminnilegur en hann hófst á því að sá stutti var veikur og mamman ákvað að vera heim. Drengurinn mátti hins vegar þola að móðirin sat agndofa yfir útvarpi, sjónvarpi og tölvunni. Í tölvunni var fylgst með mótmælum við Alþingishúsið þar sem vonleysið skein úr hverju andliti og átök geisuðu, í sjónvarpinu var hins vegar fylgst með vonarstjörnu heimsbúa allra sem skráðist fertugasti og fjórði forseti Bandaríkjanna. Antíklímasinn var algjört þegar Obama hafði nýlokið innsetningaræðu sinni og litli bróðir (sem náttúrlega er ekkert lítill heldur 26 ára) hringdi í áfalli eftir að hafa orðið ,,fyrir“ lögreglunni rétt við Vonarstrætið í Reykjavík.
Var þá brunað niðrí bæ þar sem mótmælin voru enn í fullum gangi þó töluvert hefði róast frá því fyrr um daginn og bróðirinn keyrður upp á slysó þar sem hann fékk áverkavottorð. Sem betur fer ekki alvarlega slasaður en nokkuð laskaður.
En hvernig verður maður ,,fyrir“ löggunni þegar maður mótmælir ríkisstjórninni? Jú, það dugar að standa u.m.b. 20 metra frá Alþingishúsinu og vera á snatti við vini sína þegar lögreglan ákveður að keyra í burtu skyndilega með fanga í gegnum þvöguna og keyra á þá sem fyrir eru, ekki bara það heldur þá fylgja með lögreglumenn sem berja svo niður þá sem fyrir bílnum voru og spreyja táragasi á rest. Algjörlega óskiljanleg vinnubrögð.
Árni var að vísu ekkert að mótmæla lögreglunni sem efalaust hefur fengið mátt þola margt óverðskuldað frá ýmsum í gær heldur var hann þarna vegna þess að hann vill fá að kjósa sér nýja ríkisstjórn – og hann vill að ríkisstjórnin sem nú situr heyri hans kröfu og boði til kosninga. Eins og flestir sem þarna mættu stóð hann langt frá húsinu og hrópaði kröfu sína -á friðsaman hátt.
Lögreglan þarf að vanda sig betur – því umfram allt snýst þetta ekki um hana heldur kröfu almennings og sú krafa verður háværari með hverjum deginum sem líður með eða án fantabragða lögreglunnar.
Ég og milli tvö og þrjú þúsund mótmælendur voru fyrir framan Alþingishúsið til rúmlega tólf í gærkvöldi – það mun ekkert hætta þó slysóferðunum fjölgi – en væri nú ekki skynsamlegar að koma í veg fyrir fleiri ferðir á slysó og ráðamenn sýndu sóma sinn í að boða til kosninga strax – þeir þurfa hvort eð er á endanum að þola dóm kjósenda.
Ég fer aftur í dag að mótmæla og vona að sem flestir komi og láti sína skoðun í ljós á friðsaman hátt – og að lögreglan sýni fagleg vinnubrögð.
