Lífstíll


30
ág. 11

Íslenski krónukúrinn

Útlenskt nammi á íslenskri grundu

Nú þegar hausta tekur og inn um lúguna streyma tilboð um leiðina að granna mittinu, sléttum maga – vil ég minna á að áhrifaríkasta megrunin er alveg ókeypis.

Í kúrnum felst nefnilega sú staðreynd að hér í Krónulandi hækka verðbólga og vextir jafnt og þétt og því má gera ráð fyrir að afar lítill peningur sé eftir á hverju heimili til að kaupa mat.   Nú ef einhver afgangur er,  má reyna að skrapa saman fyrir íslenskri mjólkur- og kjötframleiðslu en verðinu á þeim nauðsynjavörum er tryggilega haldið uppi með sérstaklega háum verndartollum sem heldur þjóðinni frá alfarið frá öllu ofáti.

Það gleymist gjarnan að höfum þegar niðurgreitt tvisvar sinnum meira til þessarar framleiðslu en nágrannar okkar í Evrópusambandinu gera fyrir sambærilega landbúnaðarframleiðslu.  En allt skal í sölurnar lagt til að forðast fitudrauginn ógurlega.

Fæstir hafa auðvitað ekki efni á þessu varning hvort eð er og geta haldið sér gangandi á bankabyggi og grænkáli.  Ekki má lengur flytja inn kjöt og mjólkurvörur erlendis frá nema á því séu um 600% tollar og krónugreyið dugar skammt í slíkum kaupum.

Stundum er það í raun þannig að  íslenska kjötið er allt uppselt því bændur hafa fært út kvíarnar og  selja nú niðurgreitt kjötið sem mest til útlanda enda útlenskir peningar auðvitað miklu verðmætari en krónan.  Enda ekki til sú þjóð í heiminum fyrir utan okkar sem er tilbúin að eiga viðskipti með íslensku krónuna, meira segja útgerðafélögin okkar eru steinhætt að nota krónuna – nota frekar Evruna.

Og þrátt fyrir gjaldeyrishöftin sem halda uppi krónunni sér hún til þess að enginn missi sig í gleypugangi – því það þarf að minnsta kosti tvær fyrirvinnur til að eiga fyrir mat ofan í meðal fjölskyldu – og svo taka náttúrlega flestir út séreignasparnaðinn líka.  Enda hver þarf svo sem á verðlausum krónum að halda í ellinni.

Það er því náttúrlega bara kindarlegt (já jarm) þegar kvart og kvein undan krónunni heyrist hér á þessu megrunarsjúka landi.  Því nú loks er boðið upp á  heilsteypta megrunaráætlun sem allir fá að taka þátt í – enginn þarf að sprikla neitt í haust enda það óþarfa eyðsla á dýrmætri orku – þeir frekjuhundar sem vilja fjölbreytt matvælaúrval, lægra vöruverð, lægri vexti ættu bara að skammast sín.  Því hvað getur verið þjóðlegra en að fá skyrbjúg?

Fyrir þá sem vilja endilega troða sig út af útlenskum varningi þá er gaman að segja frá því að þrátt fyrir ítrekaðar hörmungaspár Evrópuandstæðinga þá gengur bara býsna vel í ESB og áhugavert að bera Krónukúrinn við þann í Evrópusambandinu.   Það er tollafrelsi á milli ríkjanna og bara heilmikið í boði og bæði verð á matvælum almennt lægra og það sem besta er – engin verðtrygging.

Standard & Poor gefur 21 ESB ríki betra lánshæfismat en Íslandi, 15 þeirra nota evru. Þrjú ríki ESB fá lakari lánshæfismat en Ísland og aðeins eitt þeirra notar Evru.  Svipaða sögu er að segja af einkunnargjöf Fitch þegar það kemur að lánshæfismati.  26 ESB ríki fá betri lánshæfismat en Ísland, 16 þeirra nota evru. Aðeins eitt ríki innan ESB fær lakari lánshæfismat og notar evru.

En þetta eru auðvitað bara fitubollur.


23
júní 11

Alvöru prinsessur..

.. borða eins og Lína og láta ekki kerlingu í Kópavoginum segja sér hvað séu viðeigandi borðsiðir fyrir stelpur – hvað þá að borga peninga fyrir slíkt.

Hættum að troða í hausinn á litlum stelpum að þær eigi að vera umfram allt snyrtilega, sætar og stilltar – það dregur úr þeim allan mátt.   Segjum þeim frá Línu og þannig ævintýrastelpum og hver veit nema tilveran fyllist af litlum uppátækjasömum Línum og Cosmó fari á hausinn.*

*þeir sem skilja ekki þessa færslu lesið þessa dellu: http://utlit.is/prinsessuskolinn/