Það er magnað hvernig gáfnaljósin í yfirstjórn KSÍ komast alltaf að þeirri niðurstöðu að konur séu ekki jafn mikils virði og karlar eins og þeir sjálfir benda okkur reglulega á. Allt er þetta þó í andstöðu við núgildandi stjórnarskrá, jafnréttislögin og stefnu allra sveitafélaga í landinu sem fjármagna að mestu allt íþróttastarf hér á landi (lesist: þú skattgreiðandi góður) .
Nú síðast komast KSÍ menn að þessu þegar þeir skiptu fjámunum fyrir árið 2010 en þar er kvennalandsliðinu í knattspyrnu, þessu sem er eitt besta liðið í heiminum í dag, greitt helmingi minna fjármagn en karlalandsliðið í knattspyrnu, þessu liði sem er eitt lakasta í heiminu í dag. Þetta má lesa í frétt sem birtist í Viðskiptablaðinu í dag.
Já, hjá KSÍ reikna þeir ,,einn strákur = tvær krónur og ein stelpa = ein króna“.
Nei, það eru ekki jafnréttið, lögin né hæfnismatið sem gildir – bara karlremban.
