Hljómar ógeðslega er það ekki?
En ef þú er að spyrja þig hvað þú eigir að gefa einhverjum í jólagjöf sem á ,,allt“ – eða eru sjálf/ur með tóman óskalista – þá eru ormalyf, moskítónet, næringamjólk, orkukex vatnshreinsitölflur og vatnsbrunnar – besta jólagjöfin.
Hvað er meira í anda jólanna en að gefa einhverjum gjöf sem kostar 1247 krónur og gefur 300 börnum lyf sem hreinsar sníkjudýr úr meltingafærum þeirra svo þau séu ekki lengur máttvana og lasin?
Eða gefa einhverjum 10.000 vatnshreinsitöflur sem hreinsa 50 þúsund lítra af vatni og tryggt að fjöldi barna sem búa nú við mengað vatn geti drukkið hreint vatn – fyrir aðeins 6.960 krónur?
UNICEF – Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna er fullkomnasta jólagjafabúðin. Verslaðu hér.
