Nú væri gott að draga fram lakkskónna, fína gelið og smella rauðri slaufu í hárið, því upphitun jólanna er að hefjast. En eins og öll skemmtileg félög þá mun Já Íslands, félag evrópusinna taka þátt í upphituninni. Á morgun verður haldið jólapubquiz á Kaffi Sólon 2 hæð og hefst fjörið kl 20.30 – þar mun hinn frækni Ske-maður og þingmaðurinn Guðmundur Steingrímsson mun spyrja fólk um allt á milli jóla og Evrópu. Og eins og lög gera ráð fyrir verða verðlaunin einn bjórkassi.
Til að sjá til þess að við komumst örugglega í hátíðarskap mun svo hin eina sanna drottning jólalaganna Helga Möller mæta á svæðið og syngja fyrir okkur nokkur lög.
Hér má sjá viðburðinn á Facebook.
Sem sagt, jólapubquiz, Helga Möller, jólabjór, piparkökur og evrópusinnar.
Getur hreinlega ekki klikkað.
Bjór á tilboði!
Allir Evrópusinnar velkomnir.

Hvað er Jólapubquiz á íslensku?