Ég hef hingað til reynt að hvetja allar konur áfram, líka þær sem ég er ekkert sérstaklega sammála, á meðan þær standa fyrir breytingar sem eru byggðar á reynslu og menningu kvenna og leiða til bættara samfélags, þó leiðirnar séu ekki alltaf þær sem ég hefði valið.
Í dag bauð kona sig fram sem formaður Sjálfstæðisflokksins, hún segist vera kona sem vilji meiri samvinnu, sátt og ,,ný stjórnmál“. Á sama tíma segir hún að verði hún kosin formaður Sjálfstæðisflokksins ætli hún að koma í veg fyrir að þjóðin fái í eitt skipti fyrir öll að kjósa hvort hún vilji standa innan eða utan ESB.
Ákvörðun sem 65% landsmanna vilja fá að taka sem einstaklingar, ákvörðun sem 65% landsmanna vilja ekki að stjórnmálaflokkarnir taki fyrir sig, en sú kona sem nú stígur fram byrjar fyrsta daginn í framboði á að ætla að stöðva lýðræðislegt ferli og skerða ákvörðunartökurétt þinn sem kjósenda.
Það mun eingöngu bæta á þá óeiningu sem er í samfélaginu og koma í veg fyrir að sátt náist í þessu stóra máli – í stað þess að leiða það til lykta. Það er nefnilega eitt að vera á móti inngöngu í ESB og eitthvað allt annað að treysta ekki fólkinu í landiu til þess að taka ákvörðun um framtíð sína sjálft.
Til að toppa sig þá sagði hún einnig í dag að sú 30% lækkun sem hefur orðið á rástöfunartekjum okkar eftir hrun væri óásættanleg -algjörlega án þess að nefna að þá lækkun má tengja meira og minna þráðbeint við krónuna sem er jú ein helsta ástæðan fyrir því að við ættum að ganga í Evrópusambandið.
En nei, hún ætlar að sjá til þess að við fáum ekki að taka þá ákvörðun, og tryggja þar með að við sitjum uppi með handónýtan gjaldmiðil um aldur og ævi.
Konur sem tala um eitt og meina annað – boða nákvæmlega sömu sérhagsmuna- og forsjáhyggju stjórnmál sem hafa verið hér við lýði í höndum karla í áratugi. Því miður.

Ég er alveg sammála þér alveg þangað til í endann
Jú, karlar hafa meir og minna stjórnað
En 99 komma eitthvað prósent karla hafa verið í nákvæmlega sömu stöðu og konur síðustu 30 ár
Ég skal lofa þér því að þú hefur ekki fengið færri tækifæri en ég í þessu lífi, og mér fynnst leiðinlegt að vera alltaf settur í hóp með þessum 1-2 prósentum af stjórnsemis brjálæðingum sem hafa í krafti frekju og yfirgangs tekist að sölsa undir sig völd.
2% mannkyns eru psycopatar, einhverra hluta vegna eiga þeir auðvellt með að koma sér í stjórnunar stöður – það hefur ekki eins mikið með karlmenn að gera og kvennmenn í pólitík vilja láta
P.s annar af höfuðpaurum þeirrar stefnu sem kom öllu um koll eftir þrjátíu ára skeið var kona: Margreat Thatcher
Hanna Birna er í Sjálfstæðisflokknum. Meðlimir Sjálfstæðisflokksins hafa ályktað, og er á móti ESB aðild. ER eitthvað að því að sá sem bjóði sig fram til formanns fylgi stefnu flokksins? Sá formaður sem myndi ekki gera slíkt væri ekki lengi formaður? Menn sjá hvernig svona tvískinningur er að leika formann VG grátt að segja eitt, en meina eitthvað allt annað. 75% kosning til formanns og enginn annar málsmetandi í mótframboði. Huggulegar tölur? Næstum því jafn slæm kosning og þegar Ólafur Ragnar vann Ástþór Magnússon án þess að fá yfir 50% af kjörgengum Íslendingum til að kjósa sig.
Af hverju talar þetta samfylkingarfólk alltaf að það náist aldrei nein sátt í þjóðfélaginu nema stefna samfylkingarinnar náist í gegn? Í síðustu könnun sem var gerð, þá reyndist fylgi flokksins vera 25% minna en í síðustu kosningum. Varla getur það talist sem stuðningur við stefnu samfylkingarinnar í evrópumálum, orkumálum, fiskveiðistjórnunarmálum eða öðrum þeim málum sem flokkurinn lagði upp með að sátt yrði að nást um þegar flokkurinn settist í síðustu þrjár ríkisstjórnir?
Sáttin um lausnir samfylkingarinnar eru ekki meiri en svo að fylgið virðist tætast af flokknum, jafnt og þétt.
Já og annað p.s
einn helsti hugmyndafræðingur þeirrar stefnu sem kom öllu um koll og höfundur næst best seldu bókar í USA er kona líka: Ayn Rand
mest selda bókin er biblían btw
Hanna Birna kemur mér alltaf fyrir sjónir sem manneskja með algjöra munnræpu. Út úr munni hennar flæða orðin bókstaflega eins og foss, eða ætti ég kannski fremur að líkja henni við hríðskotabyssu?
„Versta ríkisstjórn allra tíma“ er ekki sú sem nú situr, heldur sú sem strandaði þjóðarskútunni. Skammastu þín Hanna Birna, þú átt ekki að kenna öðru fólki um það sem þinn flokkur ber fyrst og síðast ábyrgð á.
Þú ert hluti af strandáhöfninni, mundu það. Sá sem ekki kann að skammast sín og biðjast afsökunar ætti ekki að hætta sér út á völlinn. Og því síður að úthúða björgunarliðinu.
Ég vona þjóðarinnar vegna að bullukollur sem þú ert tapir eftirminnilega fyrir Vafningi.
Hanna Birna er ekki einu sinni komin inn á þing – hvað þá í stöðu til að ráða einhverju um afdrif umsóknarferlisins.
Aðildarsinni sem trúir á þessa Fréttablaðskönnun ætti ekki að hafa miklar áhyggjur. Ef svo mikill vilji er til að halda ferlinu áfram ættu ekki að vera miklar líkur á því að Hanna Birna fái brautargengi til að ráða neinu um afdrif málsins.
Kannski veit síðuritari það vel að það er ekki að ástæðulausu sem spurningu í tvemur liðum er ekki stillt gegn spurningu í einum lið í alvöru skoðanakönnunum. Útkoman verður brengluð.
Hvers vegna ætti hún annars að vera að skrifa þetta?
Algjörlega.
„… lækkun má tengja meira og minna þráðbeint við krónuna sem er jú ein helsta ástæðan fyrir því að við ættum að ganga í Evrópusambandið.“
Og þá taka upp Evru af því að hún er svo traust? Er þetta ekki að kasta steinum úr glerhúsi?
… ertekki að oftúlka orð Hönnu Birnu?
Voru nottla voða flottir hjá henni utanbókarlærðir frasarnir í Kastljósinu. En talandinn var slíkur að minnti mig helst á loðnudælu og af hverjum tíu þúsund orðum sem hún sagði voru kannski tvö sem höfðu eitthvað innihald.
Hanna er raunsæ. Hún er búin að kanna landið mjög vel og ákvörðun hennar er val milli tveggja kosta: framtíð í borgarpólitík eða landsmálapólitík? Val hennar segir okkur sitthvað um mat hennar á stöðu flokksins í borginni.
Hanna Birna er bara ekki einu sinni grin …bara bull og veit ekki og skilur ekki pólitik ….bara bullar úti eitt og Lætur aðra hlyða ser og nú vill hún komast burtu fra Gnarr þvi hann hefur aldrei hlytt henni og ekki einu sinni leyft henni að“ Bulla „..nema mjög litið …………!!!! Þó sjálfstæðið se ekki mitt .þá ætla eg rett að vona að þeir kasti ekki Bjarna út fyrir þessa ruglukollu !!