október, 2011


28
okt. 11

Sjálfstæði, takk – öll mánaðarmót

Rúmlega helmingur heimila getur ekki borgað alla reikningana sína um hver mánaðarmót samkvæmt fréttum dagsins.

Launin okkar eru í krónum og það er frábært skv. nóbelsverðlaunahöfum í hagfræði frá því í gær, því þannig var mjög auðvelt að lækka þau.(rosa gott skv. þeim)

Við erum ein þjóða í Evrópu með verðtryggingu á lánunum okkar.(sem hagfræðingarnir í gær vissu ekki allir um)

Matur á Íslandi er sérstaklega dýr.

Unga fólkið vill búa, starfa og læra í ESB.  Það langar ekki að verða bændur eða sjómenn enda störfum að fækka þar ekki fjölga. Gott og vel, hér var hrun – ríkissjóður er að batna. En við eigum langt í land. Og þrátt fyrir erfiðleika í Evrópu upp á síðkastið þá er enn himin og haf á milli okkar og ESB ríkjanna.

Nú mala menn um að við megum alls ekki ganga í ESB því þá missum við ,,sjálfstæðið“!?

Ég veit ekki með ykkur en ég upplifi mig ekkert sérstaklega sjálfstæða þegar ég á ekki fyrir reikningunum mínum í lok hvers mánaðar.

Efast um að hér verði hægt að búa og nýta menntun sína ef engin lausn finnst á því að laða hingað erlendar fjárfestingar sem liggja nánast niðri vegna gjaldeyrishaftanna og þeirra staðreyndar að enginn vill eiga viðskipti með myntina okkar.

Ég upplifi mig heldur ekkert sérlega sjálfstæða þegar ég kaupi í matinni og svitna við kassann þegar ég sé hvað matarinnkaupin kosta.

Né heldur þegar ég heyri hvað bekkjafélagar mínir úr náminu í Hollandi eru með í laun.

Eða þegar mig dreymir um að komast í sumarfrí með fjölskylduna til sólarlanda og átta mig á því að það kostar annan handlegginn, því slíkt er jú selt í útlenskum peningum sem krónurnar mínar hafa ekki efni á.

Þessi seðill dugar fyrir einni samfellu handa 1 árs barni í sænskri barnafataverslun

Þegar ég átta mig á því að Legó lestin sem mig langar að gefa syni mínum í jólagjöf kostar 60 þúsund, ekki séns! Eða þegar ég áttaði mig á því að ein  barnasamfella í stærð 92 kostar 4590.-!

Ég hef ekki efni á meiru ,,sjálfstæði“ í skilgreiningu Nei-sinna.  Evrópusambandsaðild er líklegust allra leiða til framtíðar (ef einhverjar aðrar eru) til að koma okkur í þann stöðugleika sem flest okkar dreymir um. Hvert heimili mun ekki eignast skemmtisnekkjur og neyta kampavíns og kavíar í öll mál,  en það mun tryggja að minnsta kosti lægri vexti, enga verðtryggingu og lægri matvælaverð í krafti aukinnar samkeppni. Og launin okkur munu ekki rýrna eins og þau gerðu með krónunni.

Það er sjálfstæði í lagi – öll mánaðarmót.


25
okt. 11

Samtal í leigubíl

Hún: Heyrðu,  það var bara allt hvítt fyrir norðan

Hann: Já, það á líka að vera snjór hér í október en hlýnun jarðar hefur breytt því

Hún: Já ætli það ekki

suð í bakgrunni: ,,og Ísland verður að standa á eigin fótum..“

Hún: Ekki ertu að hlusta á Útvarp Sögu?

Hann: Jú

Hún: þú veist það kemur mikið af rangfærslum frá þeim sem tala á þeirri stöð

Hann: Ha!

Hún: Já, sérstaklega um Evrópusambandið

Hann: Ert þú ein af þessum sem vill ganga í Evrópusambandið?

Hún aðeins of áköf: jú einmitt

Hann: (fuss og svei) Ísland á að vera áfram sjálfstætt ríki

Hún: já, sammála eins og Danmörk, Svíþjóð og Finnland

Hann:  Ha! og snýr sér snögglega við.

Hún: þau eru sjálfstæð ríki er það ekki?

Hann undrandi: ha.. jú jú þannig

Hann: Við þurfum ekkert á þessu Evrópusambandið að halda, bara ekki neitt, við getum bara séð um okkur sjálf.

Hún: Já, en við erum auðvitað að hluta í Evrópusambandinu í gegnum EES og hvort sem er, en hvort erum við ,,sjálfstæðari“ við að sitja við borðið þar sem ákvarðanirnar eru teknar eða sitja út á gangi eins og nú er í gegnum EES?

Hann: Evrópusambandið er ekkert  nema reglur og ef við göngum inn þá verðum við að breyta öllum reglum um vinnulag hér fyrir vinnandi stéttir, ég vil það ekki

Hún: Já en við höfum innleitt í íslensk lög megnið að vinnulöggjöf ESB ef ekki alla.

Hann: Við eigum bara ekkert að vera í sambandi við þetta Evrópusamband, punktur.

Hún: ha! meinarðu að fara úr EES?

Þögn.

Hún: En ok, hvernig á sjá til þess að atvinnulífið blómstri hér undir höftum og tryggja ungu fólki vinnu?

Hann: við eigum bara að fjölga störfum í sjávarútvegi og landbúnaði..

Hún: en ungt fólk ætlar sér ekki framtíð í þeim greinum .. og meira segja hafa ungir Íslendingar sagt í könnunum að þau ætli sér að búa í ESB, bara spurning hvort Ísland verði í ESB svo þau mögulega kjósi að búa hér áfram.

Hann hastur:  heyrðu góða mín, er þetta ekki húsið?