Silfrið og áratuga aðlögun

… ég get barasta ekki setið á mér eftir að hafa horft á ,,umræðuna“ í Silfrinu áðan.

Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur og hvatti til þess að umræðan yrði þroskaðri í Silfrinu en fór sjálf ítrekað með rangt mál – svo í þágu aukins ,,þroska“  tek  ég barasta að mér að leiðrétta hana.

Hin fyrsta rangfærslan hennar var að við værum í ,,aðlögunarferli“ en ekki samningarferli.   Þetta var að vísu leiðrétt hjá Eiríki Bergmann stjórnmálafræðingi sem benti á að þetta væri nokkurn vegin hið sama samningaferli og hefði verið gagnvart þeim 21 ríki sem hafa gengið hafa í ESB.  Ef ferlið hefði komið einhverjum á óvart (lesist stjórnmálafræðingum og landbúnaðarráðherrum!) þá hefði viðkomandi einfaldlega ekki lesið heima áður en hann samþykkti aðildarviðræðurnar eða tjáði sig um þær.

Eiríkur  lét það reyndar ósagt að utanríkisráðherra hafi marg ítrekað tekið það fram til að róa þá sem kynnu að hafa heyrt þessa rangfærslu,  að ekki stæði til að breyta lögum hér á landi til að ,,aðlaga“ okkur að ESB vegna aðildarviðræðanna eins og andstæðingar hafa haldið fram.

Að venju kom ekki heldur fram í þessari umræðulotu um ESB, frekar en fyrri daginn – sú magnaða staðreynd að við erum stöðugt að AÐLAGA okkur að reglum og lögum Evrópusambandsins án þess að hafa nokkuð um það að segja – en það er ekki vegna aðildarviðræðanna heldur bara vegna þess að við erum í EES.  Þessi AÐLÖGUN hefur staðið í nær tvo áratugi og hefur að mér skilst hreinlega farið gersamlega framhjá andstæðingum ,,aðlögunar“ – sem vilja þrátt fyrir ólýðræðislegu EES aðlögunina – þó ekki yfirgefa EES?!

Þetta er nú allt ,,sjálfstæðið“ sem við nú höfum gagnvart ESB í dag – en með aðild fengjum við auðvitað sæti við borðið þar sem ákvarðanirnar eru teknar – en það túlka andstæðingar ,,aðlögunar“  SJÁLFSTÆÐISMISSI! (lesist með tilþrifum)

Nú jæja – þá var mikið rætt um flokkana og hvernig ,,allir“ aðrir flokkar á þingi nema einn væru á móti aðild að Evrópusambandinu sem ekki er allskostar rétt.  Eru nokkrir mikilvægir hlutir í því samhengi.*

1) Samfylkingin og þorri Vinstri grænna eru fylgjandi aðildarviðræðum, jafnfram hefur Hreyfingin sagt að þau myndu ekki stoppa aðildarviðræður nú heldur ætla að treysta þjóðinni til að kjósa,  sama má segja um nokkra þingmenn Framsóknar, Sjálfstæðisflokksins og óháða sem kusu með aðildarviðræðum á sínum tíma eða hafa stutt að aðildarviðræðurnar klárist.

2) 64% þjóðarinnar vill kjósa um aðildarsamning þegar hann liggur fyrir samkvæmt nýjustu könnunum og um 40% vill ganga í ESB án þess að hafa séð aðildarsamninginn!

3) Innan t.d. Vinstri grænna er stór hópur hlynntur inngöngu í ESB í dag án samnings, þetta hefur ítrekað komið fram í könnunum þó lítið hafið farið fyrir þessari staðreynd hjá forystu VG. (enda t.d. þorri löggjafar á Íslandi um umhverfismál og náttúruvernd komin til vegna EES samningsins)

4) Sjaldan eða aldrei hefur jafn stór hluti kjósenda sagt í könnunum að þeir muni ekki ætla að kjósa þá flokka sem fyrir eru, eða segjast vera óákveðnir. Þetta þýðir að stjórnmálafræðingar þurfa að fara að gera grein fyrir þessum gríðastóra hóp sem ekki fellur undir fylgi stjórnmálaflokkanna sem nú eru í boði.

5) Ég gat ekki heyrt annað en að Stefanía Óskarsdóttir virðist ekki gera greinamun á  frjálshyggju og frjálslyndi?!

Nú jæja, restin af Silfrinu var svo virkilega áhugaverð – svo fleira var það ekki í bili.

* Pál Vilhjálmsson nenni ég ekki að karpa um.

4 ummæli

  1. Hrafn Arnarson

    Páll Vilhjálmsson(Heimssýn og Tilfallandi athugasemdir) fór langt með að eyðileggja þáttin. Ég hef lesið skrif Páls um nokkurt skeið og skrif hans einkennast af mikilli þráhyggju og endalausum endurtekningum. Varðandi aðlögun fór aðaðatriði málsins algerlega framhjá honum. Utanríkisráðherra hefur lýst því yfir að engin aðlögun eigi sér stað á samningstíma. Þetta er formlega viðurkennt af ESB , m,á, í rýniskýrslu um landbúnaðarmál. Þar er beðið um að landbúnaðarhárherra íslandi leggi fram áætlun um hvernig staðið verði að lögleiðingu laga/reglugerða í lándbúnaði þegar og ef aðildarsamningur verður samþykktur. Sem ráðherra í fullvalda ríki er Jóni að sjálfsögði í sjálfsvald sett hvernig áætlunin er útfærð, t.d.hversu ítarleg og sundurliðuð hún er. Utanríkisráðherra hefur ítrekað þetta í þingræðu. En því miður virðist landbúnaðarráðherra í fullvalda ríki ekki geta skilið þetta. Hann vill fá skýringar frá esb um það hvernig svarið eigi að vera!!!Dettur einhverjum í hug að hann sé að reyna að tefja viðræðurnar eins mikið og hann getur. Eiríkur beergmann stóð sig vel í þættinum.

  2. skynsemi.is var ekki búinn að ná 6000 undirskriftum í gærkvöld eftir langt úthald. Lítur út fyrir að skynsemin ætli að sigra í þessu máli.

  3. Nú er mikið gert úr því að það sé munur á frjálslyndi og jafnaðarmennsku. En er ekki hægt að vera frjálslyndur jafnaðarmaður?

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af þremur og fjórum? Svar: