… ég get barasta ekki setið á mér eftir að hafa horft á ,,umræðuna“ í Silfrinu áðan.
Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur og hvatti til þess að umræðan yrði þroskaðri í Silfrinu en fór sjálf ítrekað með rangt mál – svo í þágu aukins ,,þroska“ tek ég barasta að mér að leiðrétta hana.
Hin fyrsta rangfærslan hennar var að við værum í ,,aðlögunarferli“ en ekki samningarferli. Þetta var að vísu leiðrétt hjá Eiríki Bergmann stjórnmálafræðingi sem benti á að þetta væri nokkurn vegin hið sama samningaferli og hefði verið gagnvart þeim 21 ríki sem hafa gengið hafa í ESB. Ef ferlið hefði komið einhverjum á óvart (lesist stjórnmálafræðingum og landbúnaðarráðherrum!) þá hefði viðkomandi einfaldlega ekki lesið heima áður en hann samþykkti aðildarviðræðurnar eða tjáði sig um þær.
Eiríkur lét það reyndar ósagt að utanríkisráðherra hafi marg ítrekað tekið það fram til að róa þá sem kynnu að hafa heyrt þessa rangfærslu, að ekki stæði til að breyta lögum hér á landi til að ,,aðlaga“ okkur að ESB vegna aðildarviðræðanna eins og andstæðingar hafa haldið fram.
Að venju kom ekki heldur fram í þessari umræðulotu um ESB, frekar en fyrri daginn – sú magnaða staðreynd að við erum stöðugt að AÐLAGA okkur að reglum og lögum Evrópusambandsins án þess að hafa nokkuð um það að segja – en það er ekki vegna aðildarviðræðanna heldur bara vegna þess að við erum í EES. Þessi AÐLÖGUN hefur staðið í nær tvo áratugi og hefur að mér skilst hreinlega farið gersamlega framhjá andstæðingum ,,aðlögunar“ – sem vilja þrátt fyrir ólýðræðislegu EES aðlögunina – þó ekki yfirgefa EES?!
Þetta er nú allt ,,sjálfstæðið“ sem við nú höfum gagnvart ESB í dag – en með aðild fengjum við auðvitað sæti við borðið þar sem ákvarðanirnar eru teknar – en það túlka andstæðingar ,,aðlögunar“ SJÁLFSTÆÐISMISSI! (lesist með tilþrifum)
Nú jæja – þá var mikið rætt um flokkana og hvernig ,,allir“ aðrir flokkar á þingi nema einn væru á móti aðild að Evrópusambandinu sem ekki er allskostar rétt. Eru nokkrir mikilvægir hlutir í því samhengi.*
1) Samfylkingin og þorri Vinstri grænna eru fylgjandi aðildarviðræðum, jafnfram hefur Hreyfingin sagt að þau myndu ekki stoppa aðildarviðræður nú heldur ætla að treysta þjóðinni til að kjósa, sama má segja um nokkra þingmenn Framsóknar, Sjálfstæðisflokksins og óháða sem kusu með aðildarviðræðum á sínum tíma eða hafa stutt að aðildarviðræðurnar klárist.
2) 64% þjóðarinnar vill kjósa um aðildarsamning þegar hann liggur fyrir samkvæmt nýjustu könnunum og um 40% vill ganga í ESB án þess að hafa séð aðildarsamninginn!
3) Innan t.d. Vinstri grænna er stór hópur hlynntur inngöngu í ESB í dag án samnings, þetta hefur ítrekað komið fram í könnunum þó lítið hafið farið fyrir þessari staðreynd hjá forystu VG. (enda t.d. þorri löggjafar á Íslandi um umhverfismál og náttúruvernd komin til vegna EES samningsins)
4) Sjaldan eða aldrei hefur jafn stór hluti kjósenda sagt í könnunum að þeir muni ekki ætla að kjósa þá flokka sem fyrir eru, eða segjast vera óákveðnir. Þetta þýðir að stjórnmálafræðingar þurfa að fara að gera grein fyrir þessum gríðastóra hóp sem ekki fellur undir fylgi stjórnmálaflokkanna sem nú eru í boði.
5) Ég gat ekki heyrt annað en að Stefanía Óskarsdóttir virðist ekki gera greinamun á frjálshyggju og frjálslyndi?!
Nú jæja, restin af Silfrinu var svo virkilega áhugaverð – svo fleira var það ekki í bili.
* Pál Vilhjálmsson nenni ég ekki að karpa um.
Í mörg ár sýndu skoðanakannanir að meirihluti þjóðarinnar vildi hefja viðræður við Evrópusambandið, þá hristu andstæðingar aðildar hausinn ákaft og sögðu að það væri ekki rétti tíminn því það væri svo mikill uppgangur á Íslandi – við fengjum bara lélegan samning ef við værum of rík.