Íslenski krónukúrinn

Útlenskt nammi á íslenskri grundu

Nú þegar hausta tekur og inn um lúguna streyma tilboð um leiðina að granna mittinu, sléttum maga – vil ég minna á að áhrifaríkasta megrunin er alveg ókeypis.

Í kúrnum felst nefnilega sú staðreynd að hér í Krónulandi hækka verðbólga og vextir jafnt og þétt og því má gera ráð fyrir að afar lítill peningur sé eftir á hverju heimili til að kaupa mat.   Nú ef einhver afgangur er,  má reyna að skrapa saman fyrir íslenskri mjólkur- og kjötframleiðslu en verðinu á þeim nauðsynjavörum er tryggilega haldið uppi með sérstaklega háum verndartollum sem heldur þjóðinni frá alfarið frá öllu ofáti.

Það gleymist gjarnan að höfum þegar niðurgreitt tvisvar sinnum meira til þessarar framleiðslu en nágrannar okkar í Evrópusambandinu gera fyrir sambærilega landbúnaðarframleiðslu.  En allt skal í sölurnar lagt til að forðast fitudrauginn ógurlega.

Fæstir hafa auðvitað ekki efni á þessu varning hvort eð er og geta haldið sér gangandi á bankabyggi og grænkáli.  Ekki má lengur flytja inn kjöt og mjólkurvörur erlendis frá nema á því séu um 600% tollar og krónugreyið dugar skammt í slíkum kaupum.

Stundum er það í raun þannig að  íslenska kjötið er allt uppselt því bændur hafa fært út kvíarnar og  selja nú niðurgreitt kjötið sem mest til útlanda enda útlenskir peningar auðvitað miklu verðmætari en krónan.  Enda ekki til sú þjóð í heiminum fyrir utan okkar sem er tilbúin að eiga viðskipti með íslensku krónuna, meira segja útgerðafélögin okkar eru steinhætt að nota krónuna – nota frekar Evruna.

Og þrátt fyrir gjaldeyrishöftin sem halda uppi krónunni sér hún til þess að enginn missi sig í gleypugangi – því það þarf að minnsta kosti tvær fyrirvinnur til að eiga fyrir mat ofan í meðal fjölskyldu – og svo taka náttúrlega flestir út séreignasparnaðinn líka.  Enda hver þarf svo sem á verðlausum krónum að halda í ellinni.

Það er því náttúrlega bara kindarlegt (já jarm) þegar kvart og kvein undan krónunni heyrist hér á þessu megrunarsjúka landi.  Því nú loks er boðið upp á  heilsteypta megrunaráætlun sem allir fá að taka þátt í – enginn þarf að sprikla neitt í haust enda það óþarfa eyðsla á dýrmætri orku – þeir frekjuhundar sem vilja fjölbreytt matvælaúrval, lægra vöruverð, lægri vexti ættu bara að skammast sín.  Því hvað getur verið þjóðlegra en að fá skyrbjúg?

Fyrir þá sem vilja endilega troða sig út af útlenskum varningi þá er gaman að segja frá því að þrátt fyrir ítrekaðar hörmungaspár Evrópuandstæðinga þá gengur bara býsna vel í ESB og áhugavert að bera Krónukúrinn við þann í Evrópusambandinu.   Það er tollafrelsi á milli ríkjanna og bara heilmikið í boði og bæði verð á matvælum almennt lægra og það sem besta er – engin verðtrygging.

Standard & Poor gefur 21 ESB ríki betra lánshæfismat en Íslandi, 15 þeirra nota evru. Þrjú ríki ESB fá lakari lánshæfismat en Ísland og aðeins eitt þeirra notar Evru.  Svipaða sögu er að segja af einkunnargjöf Fitch þegar það kemur að lánshæfismati.  26 ESB ríki fá betri lánshæfismat en Ísland, 16 þeirra nota evru. Aðeins eitt ríki innan ESB fær lakari lánshæfismat og notar evru.

En þetta eru auðvitað bara fitubollur.

8 ummæli

  1. Mikið er ég sammála þér. Íslenska krónan er alveg gagnlaus og bara fyrir moldríka útgerðarmenn. Venjulegt fólk á íslandi sem vinnur í fiski og þvottahúsum hefur ekki efni á kaupa innlent lúxusfæði í krónum talið. Þær eru svo vondar fyrir almenning.

    Legg til að við skiptum út krónum fyrir evrur og lækkum matvælaverðið þannig á einu bretti um tugi prósenta. Þannig fær almenningur væna búbót í vasann og allir græða.

  2. borðar þú íslenskt kjöt ?

  3. Frikki Gunn.

    Hér kemur nýjasti spuninn úr áróðursspunavélum Samfylkingarinnar.

    Nú heitir það að hér sé svo mikil kjötskortur og þar með sé ekki neinu fæðuöryggi til að dreifa lengur.

    Og hver er tilgangurinn með þessum spuna?

    Jú, hann er til að skapa umræðu þar sem niðurstaðan sé sú, að við VERÐUM að ganga í ESB til að losna við kjötskortinn.

    Tilgangurinn helgar jú meðalið, og allt skynsamt fólk sér í gegnum þessa leiksýningu Samfylkingarinnar.

  4. Góð grein. Kúrinn virðist samt ekki virka á Sigmund Davíð. Hann hefur bara fitnað. Ætli það sé ekki vegna þess að hann er ekki á sama báti og við hin

  5. Ég tek algerlega undir með „Frikka Gunn“ hér að ofan.

    Þetta er dæmigerður Samfylkingarspuni umvafið ESB trúboðinu. Enda er ekki síðuhöfundur á launum frá ESB, ég bara spyr ?

    Íslenska krónan er hér rökkuð niður eins og fyrri daginn og vegið að íslenskum bændum og afurðum þeirra.

    Síðan sleppir hún því að skuldatryggingarálag Íslands er mun lægra en meðaltal allra ESB ríkjanna. Íslenska ríkið hefur nýlegaselt skuldabréf á alþjóðlegum mörkuðum með 4,93% vöxtum.

  6. hvorki á launum hjá ESB né Samfylkingu og hér er ekki vegið að bændum heldur forystubænda og kerfinu sem þeir sjálfir þurfa að þola (ásamt neytendum) – láglaunastéttin sem þeir flestir eru.

    allt sem ég skrifaði er rétt – þú getur verið ósammála því en að hrópa bara að þetta sé ,,samfylkinga eitthvað“er ekki rök.

    Krónan er verðlaus, og landbúnaðarkerfið vonlaust. Maturinn er dýr og fólk á mínum aldri nær varla endum saman, þrátt fyrir að vera vel menntað og með atvinnu. Ég tel ESB aðild geta haft mikið að segja í því að breyta þessu – hvað vilja andstæðingar ESB? hvaða gjaldmiðil? hvernig á að lækka verð á mat? hvernig á að tryggja þannig framtíð að ungt menntað fólk vilji vera hér áfram?

    osfv..

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af átta og sjö? Svar: