26.8 2011 | 13:10 | 17 ummæli
Að taka þátt í stjórnmálum á að snúast um að hafa áhrif til góðs fyrir samfélagið. Sumir eru bak við tjöldin í starfi stjórnmálaflokka meðan aðrir eru andlit flokksins út á við og taka sæti á Alþingi eða í bæjarstjórn. Báðir aðilar eru jafnmikilvægir því stjórnmálaflokkur er hópur fólks. Það er einmitt fólkið í flokknum sem ákveður stefnuna, ekki einn aðili, hver svo sem hann er.
Ég hef verið lánsöm þar sem mér hefur ítrekað verið treyst fyrir stöðum innan Framsóknar sem gera mér kleift að hafa áhrif. Ég var formaður Sambands ungra Framsóknarmanna frá júní 2008 til september 2010, er varaþingmaður Suðurkjördæmis frá því í alþingiskosningunum árið 2009 og oddviti framsóknarflokksins í Grindavík frá því í sveitarstjórnarkosningum árið 2010 og forseti bæjarstjórnar.
Í prófkjöri Framsóknar fyrir þingkosningarnar 2009 var ég spurð að því fyrir hvað ég stæði í pólitík. Spyrjandanum fannst stefnan mín ekki skýr þar sem ég vísaði í að markmið mitt væri að fylgja stefnu flokksins frá glæsilegu flokksþingi Framsóknar nokkrum mánuðum áður. Ég hugsaði lengi um þessa spurningu og það var nokkru seinna sem mér tókst að koma minni stefnu í orð – stefna mín í pólitík er vinnubrögð. Það skiptir máli hvernig maður nær árangri, hvernig maður vinnur að stefnumálum sínum og hvernig maður hefur áhrif. Ég tel að tilgangurinn helgi ekki alltaf meðalið.
Eftir flokksþing Framsóknar árið 2009 voru miklar væntingar innan flokksins um ný og betri vinnubrögð í stjórnmálum, ef til vill of miklar væntingar, sem gerir fallið því stórt þegar væntingarnar standast ekki. Því miður hafa vinnubrögð innan flokksins ekki staðið undir mínum væntingum Ef til vill voru væntingar mínar of háar og ef til vill ætlast ég til of mikils af fólki. En ég trúi því að vinnubrögð innan stjórnmálaflokks séu spegilmynd af þeim vinnubrögðum er munu eiga sér stað ef sá stjórnmálaflokkur kemst til valda. Falleg orð um ný stjórnmál skipta engu máli ef bak við tjöldin er enþá starfað eftir gömlu leikreglunum. Ég hef marg oft orðið vitni af lélegum vinnubrögðum og hvernig brugðist er við ábendingum um æskilegri vinnubrögð. Viðbrögð við gagnrýni á vinnubrögð flokksins á landsvísu eru þau að útiloka gagnrýnendur frá starfi flokksins og tryggja að já-menn séu í öllum nauðsynlegum stöðum. Slíkt er ekki vænlegt til árangurs og líkurnar á því að Framsóknarflokkurinn verði í fararbroddi við að innleiða ný vinnubrögð í pólitík eru litlar að ég tel.
Stefna Framsóknarflokksins tók miklum breytingum á flokksþingi flokksins nú í apríl frá árinu 2009. Ég er ekki að tala eingöngu um stefnu flokksins varðandi Evrópusambandið líkt og svo margir hafa bent á, heldur líka framsetningu á stefnumálum flokksins. Allir þeir sem lesa ályktanir frá 2009, sem er um 50 bls. og bera þær saman við stefnuna sem var samþykkt í ár, sem er rétt rúmar 20 bls., sjá mikla stefnubreytingu.Flokkurinn fór frá hnitmiðaðri og ítarlegri stefnuskrá svo ljóst væri hverju grasrótin vildi stefna að, yfir í loðna og óljósa stefnu þar sem hver og einn framsóknarmaður túlkar stefnuna eftir sínu nefi.(sbr. ESB stefnu flokksins núna, sumir segja að það megi draga til baka viðræður og aðrir ekki og ég get ekki metið hvor hefur rétt fyrir sér enda var bæði fellt að draga til baka viðræður og að halda áfram viðræðum og leggja samning fyrir þjóðina). Ég vil þó ítreka að stefnubreytingin var samþykkt á flokksþinginu og það er meirihlutinn sem ræður – það er lýðræði. Það þýðir samt ekki að ég verði að styðja þá stefnu ef ég hef ekki sannfæringu fyrir henni.
Í ljósu óánægju minnar með vinnubrögð flokksins og þeirra stefnubreytinga sem orðið hafa á stefnu flokksins á landsvísu frá því í seinustu alþingiskosningum þykir mér rétt að segja af mér varaþingmennsku.
Mér gefst þá kostur til að einbeita mér algjörlega að starfi mínu í bæjarstjórn Grindavíkur þar sem ég sit fyrir hönd Framsóknarfélags Grindavíkur. Vonandi get ég þar lagt mitt af mörkum við að koma á nýjum vinnubrögðum í stjórnmálum.
Bryndís Gunnlaugsdóttir
Flokkar: Óflokkað
Eftirfarandi grein birtist á heimasíðu Framsóknar í Grindavík í kvöld eftir bæjarfulltrúa flokksins. Í ljósi umfjöllunar á Pressunni og mbl.is í dag þykir rétt að okkar afstaða komi í ljós.
Einnig er vert að minna á að sex bæjarfulltrúar af sjö samþykktu að selja Festi hæstbjóðanda í samræmi við nýlega tillögu um miðbæjarskipulag.
Hugsanleg sala á Festi – grein eftir bæjarfulltrúa Framsóknar í Grindavík
Á fundi bæjarstjórnar Grindavíkur 15. ágúst 2011 var samþykkt að veita stjórnarmönnum í Víkurbraut 58 ehf. heimild til að selja félagsheimilið Festi. Málefni Festis hafa verið bæjarbúum hugleikin síðustu ár enda var þetta áður glæsilegt hús og þaðan eiga margir góðar minningar. Síðustu árin hefur húsið hins vegar staðið tómt og engum verið til sóma. Á meðan hafa stjórnmálamenn ekki komið sér saman um hvað ætti að gera við húsið. Ljóst var að ákvörðun varð að taka og vitað frá upphafi að aldrei yrðu allir ánægðir með niðurstöðuna, sama hver hún yrði, enda misjafnar skoðanir hjá bæjarbúum.
Stefna Framsóknar í síðustu bæjarstjórnarkosningum varðandi Festi var að það ætti að endurbyggja húsið í upprunalegri mynd og finna út hvaða stofnanir og þjónusta ætti best heima í þar. Ekki ætti að fara í tímabundnar lausnir sem væru dýrari fyrir bæjarfélagið til lengri tíma litið og að Festi ætti að vera lifandi húsnæði en ekki standa tómt meginhluta ársins.
Stofnanir Grindavíkurbæjar sem vantar húsnæði í dag eru bókasafn og tónlistarskóli. Einnig er mjög slæm aðstaða fyrir allar gólf-íþróttir, svo sem júdó, fimleika og íþróttaskóla barna. Eftir umræður í bæjarstjórn síðasta vetur kom upp sú tillaga að sameina almenningsbókasafn og skólabókasafn þannig að rekið verði eitt mjög gott bókasafn. Af skiljanlegum ástæðum þarf sameinað bókasafn að vera við grunnskólann við Ásabraut og eru umræður um að rífa niður gamla íþróttasalinn og byggja þar veglegt bókasafn enda löngu kominn tími til þess að bókasafnið fái viðunandi húsnæði. Varðandi tónlistarskólann þá er þægilegast að hafa tónlistarskólann eins nálægt grunnskólanum og hægt er þar sem þá geta nemendur farið í tónlistarskólann yfir daginn en ekki aðeins þegar skóla líkur, slíkt eykur samfellu í degi nemenda og nýtur tíma tónlistarskólakennara betur þar sem hægt er að kenna yfir allan daginn. Er því Festi ekki hentugur staður fyrir tónlistarskólann en ljóst er að finna verður honum stað.
Hugmyndir hafa komið upp um að færa skrifstofur bæjarins í Festi þrátt fyrir að tugum milljóna hafi verið eytt í núverandi aðstöðu. Rökin fyrir því að færa skrifstofurnar í Festi hafa verið meðal annars að auka verslunarrými í bæjarfélaginu. Nú hafa einkaaðilar gert tilboð í Festi til þess að breyta Festi í verslunarrými. Er því algjör óþarfi að flytja bæjarskrifstofurnar í annað húsnæði þegar þess er ekki þörf. Með hliðsjón af öllu ofangreindu var niðurstaðan að heppilegt væri að selja Festi.
Ein af aðalástæðum þess að margir vilja gera upp Festi er salurinn sem var í húsnæðinu, salur til að halda stórar veislur eins og lokahóf íþróttadeilda, þorrablót, kútmagakvöld og fleira í þeim dúr. Allir bæjarfulltrúar eru sammála því að nauðsynlegt er að bæjarfélagið eigi slíkan sal en sá salur þarf ekki að vera staðsettur í Festi. Okkar hugmyndir sem og hjá fleirum er að byggja við íþróttahúsið stóran sal sem getur nýst fyrir júdó, tækwando, fimleika og íþróttaskóla barna. Sal sem væri dagsdaglega með dýnur yfir gólfum. En ef á þarf að halda sé hægt að breyta salnum í veislusal með því einu að fjarlægja dýnurnar af gólfinu. Þannig er hægt að fullnægja þörf minni íþróttadeilda fyrir viðunandi aðstöðu auk þess sem bæjarfélagið hefur greiðan aðgang að veislusal sem rúmar 350-400 manna veislu.
Við verðum nefnilega að gera okkur grein fyrir því að það er ekki hlutverk bæjarfélags að vera í samkeppni við veitingaaðila í Grindavík. Það eru því aðeins stórir atburðir sem fara inn í sal sem þennan, hvort sem hann er við íþróttahúsið eða í Festi. Einnig er rétt að árétta að í flest öll skipti sem salurinn í Festi var leigður út þá sóttu aðilar um styrk til bæjarins til að greiða kostnaðinn við salinn. Því var staðan orðin sú að Festi var sjaldnast raunverulega leigt út heldur lánað félagasamtökum í bæjarfélaginu. Því teljum við best að slíkur salur nýtist einmitt þessum félagasamtökum sem best, ekki bara þegar halda á lokahóf heldur líka á virkum dögum þegar ungmenni bæjarins eru við æfingar.
Eins og flestir vita í dag þá á Grindavíkurbær ágætis sjóð en við verðum að gera okkur grein fyrir því að það kostar ekki bara að byggja hús, það kostar að reka hús. Því verður að horfa fram í tímann þegar ákvarðanir um byggingar eru teknar. Í síðustu fjárhagsáætlun þurftu bæjarfulltrúar að standa í því að skera niður rekstrarkostnað í Grindavík, við litla ánægju margra bæjarbúa, enda verið að skerða þjónustu og/eða auka kostnað íbúa. Ekki er neitt svigrúm eins og er, til að auka rekstrarkostnaðinn um of nema þá með því að skera niður á öðrum stöðum. Því teljum við ekki hægt að byggja upp betri aðstöðu fyrir minni íþróttagreinar auk þess að reka sal í Festi og ódýrara og einfaldara sé að sameina þetta í eina byggingu.
Varðandi tillögu er fulltrúi D-lista lagði fram á bæjarstjórnarfundi um íbúakosningu og ábendingar hans um að útboðið hafi ekki verið framkvæmt á sem bestan hátt viljum við benda á að þessi sami fulltrúi neitaði tillögum minnihlutans um íbúakosningu um Festi snemma þessa árs. Einnig að þessi sami fulltrúi situr í bæjarstjórn, bæjarráði og í stjórn Víkurbrautar 58 ehf. og tók fullan þátt í því útboðsferli sem átti sér stað og hafði næg tækifæri til að koma að sínum athugasemdum sem og tillögum um aðra aðferðarfræði og fram að umræddum bæjarstjórnarfundi hafði fulltrúin samþykkt allar tillögur varðandi ferlið í bæjarráði og stjórn félagsins. Slíkar tillögur um nýja auglýsingu eða íbúakosningu komu aldrei fram fyrr en á bæjarstjórnarfundi í gær. Líkt og kom fram í bókun okkar á áðurnefndum fundi þá er engum greiði gerður með því að fresta ákvarðanatöku um þetta málið. Síðustu bæjarstjórnir voru ávallt að bíða eftir betra tilboði, annarri hugmynd, nýrri nefnd og svo mætti lengi telja. Ákvörðun þarf að taka og allt ferlið fram að ákvörðunartökunni á fundinum í gær var opið öllum bæjarfulltrúum þar sem allar hugmyndir og athugasemdir voru ræddar.
Félagsheimilið Festi var byggt á sínum tíma utan um félagsstarf hér í bæjarfélaginu, fyrir Ungmennafélag Grindavíkur og kvenfélagið. Í dag er kvenfélagið án aðstöðu og deildir UMFG eru með litla aðstöðu langt frá íþróttarsvæðinu við grunnskólann við Ásabraut. Það eru einmitt félagasamtök í bænum sem vantar stóran sal. Í stað þess að ausa pening undir bæjarskrifstofur og sal sem stendur tómur meirihluta ársins teljum við því rétt að byggja upp slíka aðstöðu við íþróttasvæðið þar sem bæði kvenfélagið og deildir UMFG fá viðunandi aðstöðu og gólfíþróttirnar geta loksins fengið aðstöðu við hæfi. Salur fullur að lífi og fjöri er mun betri fjárfesting fyrir Grindvíkinga auk þess sem einkaaðilar geta byggt upp Festi og haldið heiðri þess og minningum á lofti.
Virðingarfyllst
Bæjarfulltrúar Framsóknar í Grindavík
Flokkar: Óflokkað
15.3 2010 | 13:11 | 16 ummæli
Ég hitti 14 unga dani í gærkvöldi, þeir eru hér á Íslandi í námsferð og vildu ræða við ungt fólk í stjórnmálum á Íslandi. Settust þeir niður með mér og varaformanni SUF í gær og ræddum við um stjórnmálaástandið hér á Íslandi. Það má með sanni segja að þessi umræða hafi opnað augun almennilega hjá mér, opnað augun fyrir því að hér á landi er óstarfhæf ríkisstjórn.
Það er ekki nema von að enginn vilji semja við Íslendinga, enginn vilji koma með erlent fjármagn hingað til landsins eða fjárfesta í verkefnum hérlendis. Það veit ENGINN hvert við erum að stefna, hvernig land við viljum byggja upp, hvernig þjóð við viljum vera. Í ofan á lag er hér vonlaus ríkisstjórn sem veit ekkert hvert hún er að fara með þjóðina. Ráðherrar keppast við að kveðja tillögur hvers annars niður í fjölmiðlum, einn segjist vilja álver, annar ekki, einn styður einkasjúkrahús, hinn ekki. Hver eru skilaboðin?
Það er satt sem kom fram á blogginu hans Egils, í stjórnmálum á Íslandi er það regla að ALDREI nota góðar hugmyndir sem koma frá öðrum flokkum en þeim sem er í ríkisstjórn.
Horfum til baka, til febrúar 2009 þegar Framsóknarmenn töluðu um 20% niðurfellingu skulda almennings…. sem var ekki hægt sagði ríkisstjórnin….hvað hefur gerst? Nýju bankarnir fengu þetta á brjáluðum afskriftum, afskriftum sem með réttu áttu að skila sér til almennings að hluta.
Tillaga sjálfstæðismanna að skattleggja lífeyrissjóðsgreiðslur á leiðinni inn í sjóðinni en ekki út. Afhverju er þessi tillaga ekki rædd ítarlega og gáð hvort hún sé geranleg? Eru ekki allar tillögur sem verða til þess að hægt er að minnka niðurskurð og stoppa hækkun skatta þess verðar að þær séu skoðaðar ítarlega?
Ég held að þjóðstjórn, þar sem hæfasta fólkið úr hverjum flokki er valið til að vera ráðherrar sé eina leiðin fyrir okkur úr kreppunni, eina leiðin til að fá hlutina til að ganga, eina leiðin til þess að allir möguleikar úr ástandinu séu skoðaðir.
Ég vona að stjórnmálamenn axli þá ábyrgð sem fylgir því að stjórna landinu – opni augun og átti sig á því að núverandi ástand er ekki boðlegt íslensku þjóðinni til lengdar.
Myndum þjóðstjórn og vinnum saman – leysið málin á ríkisstjórnarfundi og talið einni röddu til þjóðarinnar og umheimsins – hættið að rífast í fjölmiðlum, sendið skýr skilaboð hvert við erum að fara.
Flokkar: Óflokkað
Framsóknarmenn hafa ætíð treyst ungu fólki og erum við með yngsta formann stjórnmálaflokks á Íslandi, svo ungan að hann telst en til ungra framsóknarmanna. Birkir Jón, varaformaður er einnig gjaldgengur í SUF og þingflokkur framsóknarmanna er sá yngsti á þingi.
Við framsóknarmenn erum stolt af okkar unga fólk og þótt að einstaka sinnum sé gert grín að því að ekki séu til ungir framsóknarmenn þá tökum við flest slíku ekki illa enda vitum við sannleikann. Framsóknarmenn treysta ungu fólki.
Samband ungra framsóknarmanna stendur fyrir stjórnmálaskóla fyrir ungt fólk á laugardaginn kemur. Skólanum lýkur síðan með pub-quiz þar sem hinn ungi formaður Framsóknar, Sigmundur Davíð, verður spyrill og verður spennandi að fylgjast með því hvaða spurningar hann mun leggja fyrir okkur unga fólkið.
Ég vonast til að sjá ykkur flest en dagskráin á laugardaginn er eftirfarandi:
Stjórnmálaskóli SUF
Laugardaginn 20. febrúar nk. mun Samband ungra framsóknarmanna standa fyrir stjórnmálaskóla í Reykjavík. Skólinn er öllum opinn en þar verður farið yfir allt sem þú veist og veist ekki en þarft að vita um stjórnmál og félagsstörf.
Drög að dagskrá:
13:00 Setning
Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins
13:15 Hugmyndafræði og saga Framsóknarflokksins
Heiðar Lind Hansson, sagnfræðingur og ritstjóri SUF
13:50 Hlutverk SUF og FUF félaga
Bryndís Gunnlaugsdóttir, formaður SUF
14:00 Undirstöðuatriðin í ræðumennsku
Helgi Guðmundsson, varalandsforseti JCI
14:45 Að starfa í hóp
Guðrún Snorradóttir, landsfulltrúi UMFÍ
15:25 Kaffihlé
15:40 „Spilar þú golf?“ – Grunnatriði í markaðssetningu
Einar Skúlason, oddviti Framsóknarflokksins í borgarstjórnarkosningunum 2010
16:20 Sveitastjórnamál frá A-Ö
Sigurður Ingi Jóhannsson, alþingismaður
17:00 Heimsókn á Alþingi
Eygló Harðardóttir, ritari Framsóknarflokksins
18:30 Skólaslit með léttum veitingum. Að loknum mat stýrir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins léttu „pop quizzi” eins og honum einum er lagið.
Öll kennsla fer fram í húsnæði Framsóknarflokksins að Hverfisgötu 33. í Reykjavík.
Flokkar: Óflokkað · Stjórnmál og samfélag
19.11 2009 | 13:42 | 6 ummæli
Vönduð vinnubrögð….það er eitthvað sem íslendingar ættu að geta krafist af öllum ráðuneytum, sérstaklega þegar málin snerta hag allra íslendinga. Skattar er eitthvað sem snerta alla íslendinga og núna er ríkisstjórnin að stefna að því að breyta skattkerfinu ansi mikið.
Ég ætla ekki að ræða þessar breytingar þar sem ég hef ekki skoðað þær nógu vel. En fjármálaráðuneytið sendi frá sér útreikninga fyrir fólk til að hafa til hliðsjónar og þessir útreikningar voru birtir í öllum blöðum landsins í dag. Það vill samt þannig til að útreikningarnir eru RANGIR……, ráðuneytið sjálft sem sér um að reikna hagræðið í því að hækka skattana á hina og þessa vegu er búið að reikna dæmið VITLAUST. Getum við treyst því að þessir skattar skili auknum tekjum þegar ráðuneytið gat ekki einu sinni sent frá sér ímynduð reikningsdæmi til að sýna fram á hækkun skatta á fólk? Ríkisstjórnin hefur sagt að breytingin á tekjuskatti muni skila 10milljörðum aukalega í tekjur fyrir ríkið…..voru þessir útreikningar notaðir við þann reikning? Eða réttur útreikningur? Þetta er ekki traustvekjandi……
Fjármálaráðuneytið segir að sameiginleg skattbyrði hjóna með 350.000 kr hvort í mánaðarlaun sé 180.691 krónur á mánuði. Í mínum útreikningum (og allra í kringum mig sem vinna í skattaumhverfinu) þá fengum við 168.992 krónur á mánuði í skatt (miðað við 13,03% í útsvar og 44.205 kr í persónuafslátt). Og áður en fólk fer að benda mér á að ÉG hafi reiknað vitlaust, þá var hringt í fjármálaráðuneytið og þeir staðfestu að það væru villur í dæmunum þeirra og leiðrétting yrði send til fjölmiðla á morgun, villan var sú að þeir gleymdu að draga frá lífeyrissjóðsgreiðslur……..
Sem sagt, fjármálaráðuneytið sem reiknar auknar tekjur af þessum skattbreytingum getur ekki sent frá sér einföld dæmi. Er þetta sama ráðuneytið og reiknaði Icesave og segir að við getum greitt Icesave?
Vönduð vinnubrögð er sanngjörn krafa íslendinga og ég skora á ríkisstjórnina að yfirfara alla sína útreikninga og koma á vandaðri vinnubrögðum.
Flokkar: Óflokkað
29.9 2009 | 10:00 | 8 ummæli
Það var ömulegt að lesa fréttir í gær um að verð á smokkum hefur hækkað gífurlega eftir hrunið og að notkun á getnaðarvörnum hefur snarminnkað og telja margir að það sé bein tenging milli hækkandi verðs og minnkandi notkunar. Í kosningabaráttunni síðasta vor þá börðust ungir framsóknarmenn meðal annars fyrir því að virðisaukaskattur á getnaðarvörnum yrði lækkaður úr 24,5% niður í 7% og vöruðu við því að hækkandi verð myndi minnka notkun á getnaðarvörnum og þannig auka líkurnar á kynsjúkdómasmitum og ótímabærum þungunum. Því miður töluðum við fyrir daufum eyrum og meðal annars var ég skömmuð fyrir það að standa fyrir því að SUF dreifði fríum smokkum til framhaldsskólanema. Nú hefur komið á daginn að áhyggjur okkar vorum á rökum reistar.
Stjórn SUF sendi frá sér eftirfarandi ályktun í dag vegna frétta um málið í gær:
Ungt framsóknarfólk vill lækka virðisaukaskatt af getnaðarvörnumKynheilbrigðismál eru eitt helsta heilbrigðismál ungs fólks í dag. Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna telur það verulegt áhyggjuefni að sala á getnaðarvörnum hafi dregist saman á árinu og verð á þeim nærri tvöfaldast. Tekur stjórnin undir áhyggjur heilbrigðisstarfsfólks þar um.
Ungt framsóknarfólk benti í liðinni kosningabaráttu á að hækkandi verð á getnaðarvörnum gæti leitt til þess að ungt fólk leitaði í ódýrari varnir eða hætti notkun þeirra. Mikil þörf er á að bæta aðgengi að getnaðarvörnum fyrir ungt fólk og efla opna umræðu um getnaðarvarnir og ábyrgt kynlíf. Þá ítrekar stjórnin þá skoðun sína að rétt sé að lækka virðisaukaskatt á öllum getnaðarvörnum úr 24,5% í 7%. Lægra skattþrep, lækkar verð á getnaðarvörnum, leiðir til aukinnar notkunar þeirra sem spornar þannig gegn ótímabærum þungunum og dregur úr líkum á kynsjúkdómum. Það mun því skila sér í sparnaði fyrir hið opinbera til lengri tíma litið.
Flokkar: Óflokkað
25.9 2009 | 16:08 | 3 ummæli
Já, ég er víst ein af þessum 50 frambjóðendum sem eru búin að skila inn fjárhagsupplýsingum vegna prófkjörs til Ríkisendurskoðunar. Textinn var nú ansi stuttur og einfaldur enda eyddi ég litlu sem engu í prófkjörið….Ég væri nú samt til í að sjá einhverjar tölur um það hvar fólk lenti í prófkjörum og bera saman þá sem eyddu mest miðað við þá sem eyddu minna.
En yfirlýsingin mín var svohljóðandi:
Ég, Bryndís Gunnlaugsdóttir, kt. 030181-4339, tók þátt í prófkjöri Framsóknar í Suðurkjördæmi er fór fram með póstkosningu í marsmánuði 2009.
Ég lýsi því hér með yfir að viðlögðum drengskap að heildarkostnaður vegna framboðs míns í prófkjörinu var ekki hærri en 300 þús.kr. Með vísan til 10. gr. laga nr. 162/2006 um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðanda og um upplýsingaskyldu þeirra er ég því undanþegin uppgjörsskyldu vegna prófkjörsins.
_____________________________
Bryndís Gunnlaugsdóttir
Lögfræðingur
Flokkar: Óflokkað
11.9 2009 | 12:55 | 7 ummæli
Nú um helgina, dagana 12.-13. september, fer fram sambandsþing Sambands ungra framsóknarmanna í Mosfellsbæ. SUF hefur allt frá stofnun verið hreyfiafl í íslensku samfélagi, uppspretta nýra hugmynda og staður þar sem margir leiðtogar landsins hafa stigið sín fyrstu spor. Af leiðtogum þjóðarinnar í dag má nefna Siv Friðleifsdóttur sem gegndi formennsku í sambandinu 1990-1992 og Birki Jón Jónsson sem var varaformaður 2002-2003.
Eitt af hlutverkum SUF er að efla framgang ungs fólks innan Framsóknarflokksins. Framsóknarmenn hafa alla tíð verið duglegir við að treysta ungu fólki til forystustarfa. Halldór Ásgrímsson var t.d. 26 ára þegar hann var fyrst kjörinn á þing líkt og Eysteinn Jónsson sem var orðinn fjármálaráðherra ári síðar. En líklega aldrei hafa framsóknarmenn treyst ungu fólki jafn vel og í vetur þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var kjörinn formaður flokksins aðeins 33 ára að aldri. Birkir Jón Jónsson sem kjörinn var varaformaður var þá aðeins 29 ára.
Í dag er þingflokkur framsóknarmanna yngstur allra flokka á þingi. Meðalaldurinn er rúmlega 39 ár, tæplega tíu árum yngri að meðaltali en þeir næstu. Meðalaldur allra annarra þingflokka er yfir 48 ár. Þannig eru þeir allir eldri að meðaltali en elsti þingmaður Framsóknarflokksins.
Það er kannski einföldun að meta árangur ungs fólks innan stjórnmálaflokka einungis eftir fjölda ungra þingmanna. Engu að síður sýnir sú upptalning sem hér hefur farið fram að ungu fólki innan Framsóknarflokksins hefur verið treyst til ábyrgðarstarfa og aldrei eins og nú. Ungir framsóknarmenn munu þó hér eftir sem hingað til halda uppi baráttu fyrir hagsmunum ungs fólks.
Við viljum að lokum bjóða þér, Mosfellingur góður, að kíkja til okkar um helgina í Háholt 14, sal Framsóknarfélags í Mosfellsbæjar. Hægt er að lesa dagskrána á vefsíðunni www.suf.is, en þar má m.a. finna upplýsingar um opinn fund í hádeginu á laugardegi þar sem fjallað verður um kunningjaþjóðfélagið og kreppuna. Sérstaklega viljum við bjóða ungt framsóknarfólk velkomið sem kynnast vill flokksstarfinu hér í Mosfellsbæ eða á landsvísu.
Bryndís Gunnlaugsdóttir, formaður SUF
Eggert Sólberg Jónsson, varaformaður SUF
Greinin birtist í Mosfelling 11. september 2009
Flokkar: Óflokkað
24.8 2009 | 10:43 | 1 ummæli
Það er búið að vera frábært að fylgjast með íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta sem hefur leik á EM seinna í dag. Þessar stelpur hafa staðið sig frábærlega og þessi árangur hjá þeim sýnir hversu magnaðar og einbeittar þær og fólkið í kringum liðið er.
En þessi árangur á sér langa sögu. Uppbygging íslensk kvennafótbolta hófst fyrir mörgum árum síðan. Ég hef fylgst með uppbyggingu kvennafótboltans í Grindavík þar sem pabbi minn var einn af þeim sem barðist hetjulega fyrir kvennafótboltann í bæjarfélaginu. Í starfi hans hjá KSÍ ferðaðist hann með A-landsliði kvenna þegar Vanda Sig, Ásta B og fleiri hetjur leiddu liðið og baráttuna áfram og sem lítil stúlka fannst mér fátt skemmtilegra en að fá að fylgja pabba á æfingu og sjá stjörnunar. Þetta var þegar blaðaumfjöllun um kvk-landsleiki var lítil sem enginn og fámenni í stúkunni. Pabbi minn er einn af mönnunum bak við tjöldin, svona menn eru út um allt land og á bakvið öll kvennalið í landinu, þessir ósýnilegu menn og konur sem bjuggu til aðstæður er gerðu landsliðskonunum kleift að blómstra og komast á EM.
Árangur kvennalandsliðsins í dag er uppskera á vinnu sem hófst fyrir áratugum síðan, vinnu við að byggja upp góð kvennalið út um allt land, krefjast þess að íslenskar stelpur fengu jöfn tækifæri og strákarnir innan knattspyrnuhreyfingarinnar.
Mig langar að óska pabba mínum og öllum þeim sem hafa lagt sitt af mörkum við að byggja upp íslenska kvennaknattspyrnu innilega til hamingju með daginn.
ÁFRAM ÍSLAND.
Flokkar: Óflokkað
21.8 2009 | 09:44 | 6 ummæli
Kæru vinir
Ég hef ákveðið að gefa kost á mér til endurkjörs sem formaður Sambands ungra framsóknarmanna (SUF). Ég var kosin formaður SUF á 70 ára afmælisþingi sambandsins þann 8. júní 2008. Síðan þá hafa átt sér stað miklar breytingar, bæði innan Framsóknarflokksins sem og í íslensku samfélagi. Framsóknarflokkurinn hefur farið í gegnum mikla endurnýjun og er uppbyggingarstarf innan hans í fullum gangi. Það má með sanni segja að flokkurinn standi sterkari í dag en hann gerði fyrir ári síðan. SUF hefur gegnt og mun gegna lykilhlutverki í uppbyggingu flokksins. Þess vegna skiptir máli að í forsvari SUF sé forysta sem tilbúin er að takast á við þau erfiðu verkefni sem fyrir liggja og hræðist ekki breytingar. Ungt fólk er framtíð flokksins og því er nauðsynlegt að starf SUF haldi áfram að blómstra, enda treysta framsóknarmenn ungu fólki til ábyrgðastarfa.
Ég hef verið svo heppin að starfa með fjölbreyttum hópi góðs fólks innan SUF og flokksins í vetur. Því hefur mörgu verið komið í verk. Á næstunni þurfum við í sameiningu að ráðast í enn fleiri verkefni innan SUF, t.d. að styrkja enn frekar félög ungs framsóknarfólks um land allt og efla tengsl þeirra við SUF. Þá þarf að skoða uppbyggingu SUF og hlutverk sambandsins til framtíðar. Síðast en ekki síst verða sveitastjórnarkosningar haldnar næsta vor þar sem ungt fólk þarf að vera áberandi í forystusveit flokksins. Mikilvægt er að halda áfram með starf sem einkennist af jákvæðni, samvinnu og baráttu með uppbyggingu Framsóknar að leiðarljósi. Það þarf að virkja og hvetja ungt framsóknarfólk um land allt til þess að starfa enn meira með og fyrir flokkinn.
Ef þú hefur einhverjar spurningar um mig eða mínar hugmyndir er þér velkomið að hafa samband við mig með því að senda tölvupóst á bryndisgunnlaugs (hja) gmail.com
Með von um þitt traust og stuðning á SUF-þinginu í Mosfellsbæ þann 12. – 13. september.
Bryndís Gunnlaugsdóttir
Formaður Sambands ungra framsóknarmanna
Flokkar: Óflokkað