Við sem bjóðum fram á L – lista Opins lýðræðis í VR erum ógn við lýðræðið að mati formanns Landssambands Verslunarmanna Ingibjargar R. Guðmundsdóttur. Þessi verkalýðsrekandi sem situr í yfir 30 nefndum á vegum hreyfingarinnar telur sig þess umkominn að dæma okkur 4 sem ógn við veldi sitt. Hún skrifa fjölpóst til félagsmanna og ákallar þá um að kjósa elítuna til valda. Það er umhugsunarvert fyrir venjulega félagsmenn eins og okkur á L listanum að formaður LV skuli nýta þannig tímann sinn sem hún er á launum hjá okkur öllum. Elítan fær að nota póstlista yfir félagsmenn til að koma þeim skilaboðum á framfæri að lýðræðislegar kosningar í VR séu til þess eins að ógna valdakerfi sem hefur viðgengist. Takið eftir að í stað gömlu verkalýðsforingjana eru komnir verkalýðsrekendur sem hafa það að aðalstarfi að gæta sjóða og leigja út sumarhús. „Stöðuleikasáttmáli“ er sem þessir verkalýðsrekendur hafa skrifað undir er ekkert annað en kvittun fyrir greiðslu okkar á hruninu.
Ógn við lýðræðið
17.3 2010 | 10:56 | 7 ummæli
→ 7 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .
Undarleg lýðræðisást formanns VR
13.3 2010 | 10:39 | 1 ummæli
Mig rak í rogastans þegar ég sá leiðara nýjasta tölublaðs VR. Þar veður formaður félagsins á súðum og úthúðar stórum hluta félagsmanna fyrir að vilja bjóða fram lista í félaginu og vilja kjósa á lýðræðislegan hátt. Það sem meira er, hann gerir lítið úr framboðinu og sjálfstæðri hugsun okkar sem eru á listanum. Við sem viljum halda áfram að þróa félagið í lýðræðislega átt erum orðin hættuleg lýðræðinu!?
Sannleikurinn er sá, að formaður og sú elíta innan félagins sem kallaði það „slys“ að aðrir en þeir sem voru þeim þóknanlegir voru kjörnir í fyrra, stilltu sínu fólki upp á lista. Þegar það var ljóst að engar breytingar áttu að eiga sér stað tók sig saman hópur fólks og bauð fram lista. Hópurinn naut dyggrar aðstoðar minnihluta stjórnar sem var ósáttur við uppstillingu formannsins og einkahlutafélagsins. Þegar svo er komið er ekki um annað að ræða en að bjóða fram annan kost. Meirihluti stjórnar og þessi „slysavarðstofa“ sættir sig ekki við slíkt lýðræði og skrumskælir allt sem því tengist. Í leiðaranum segir formaðurinn; Þrátt fyrir beina og óbeina þátttöku í þessu starfi [uppstillingu á lista] kusu fjórir stjórnarmenn í VR að safna saman fólki á framboðslista gegn lista sem þau tóku þátt í að gera. Er því að undra að maður spyrji hvað þeim gangi til? Hvar eru heilindin í starfi? Hver er trúverðugleikinn? Hvernig var valið á þann lista? Ljóst er í mínum huga að forsvarsmenn þessa mótframboðs munu hafa uppi málflutning sem í besta falli er byggður á vanþekkingu en í versta falli fara á móti betri vitund. Hér er öllu snúið á hvolf. Ég spyr; höfum við á L listanum minni þekkingu en hann á VR? Erum við að fara fram gegn betri vitund? Málflutningur formannsins undanfarið ber ekki þess merki að hann þekki vel til umbjóðenda sinna.
Ennfremur segir formaðurinn í leiðaranum; Allt síðastliðið ár hef ég unnið með stuðningi nýrra og eldri stjórnarmanna að því að gera félagið opnara og gegnsærra en áður og að það verði fararbroddi meðal annarra stéttarfélaga. Þetta er einfaldlega rangt. Það hefur EKKERT verið gert í að gera kosningafyrirkomulagið lýðræðislegra eða í upplýsingamálum. Það sem formaðurinn hefur gert fer svo hljótt að bara nánasta elíta veit það. Átakið Spilum saman sem farið var í með atvinnurekendum og engin veit hvað kostar var ekki einu sinni lagt fyrir stjórn.
„Ný stjórn hefur einnig tekið þann sið upp að birta niðurstöður stjórnarfunda á vef félagsins“ segir formaðurinn í leiðaranum. Það þarf ekki annað en að fara inn á vef VR til að sjá að síðasta fundargerðin er frá 16. desember. Stjórnarmenn fá ekki fundargerðir, óþekkir stjórnarmenn eru ekki boðaðir á fund eða beðnir um að mæta ekki og stór hluti stjórnar hefur ekki hugmynd um hvað er að gerast samanber áðurnefnd átak.
Að lokum segir formaðurinn í leiðaranum; „Kæri VR félagi, það er einmitt í anda lýðræðisins sem við erum nú að ganga til kosninga og því ber að fagna. En það er hættulegt lýðræðinu að umgangast það af léttúð“. Við sem bjóðum fram gegn honum erum að hans mati hættuleg lýðræðinu og umgöngumst það af léttúð. Hverjum dettur í hug, öðrum en formanni VR, svona orðfæri í elsta lýðræðisríki heims? Ef það má ekki bjóða fram í lýðræðislegu félagi þá er illa komið fyrir okkur.
Formaðurinn hefur farið í gegn um hamskipti frá því að hann var kjörinn. Fyrir kosningar í fyrra sagði hann að verðtryggingin væri krabbamein á samfélaginu – en nú segir hann í ályktun meirihluta stjórnar; „Er það virkilega ásetningur þremenningana [minnihluta stjórnar] að rýra eignir lífeyrissjóðsfélaga enn frekar“. Hann tekur hagsmuni lífeyrissjóðsins fram yfir hag félagsmanna sem í dag eru á vonarvöl vegna verðtryggingar. Um myntkörfulánin segir hann með meirihluta stjórnar þegar minnihlutinn krafðist aðgerða vegna þeirra; Hér er fullyrt að öll núverandi úrræði séu „óraunveruleg“. Ekki er hægt að taka undir það þó þau henti fólki misjafnlega. Úrræði stjórnvalda henta fólki svo misjafnlega að þau koma 85% fólks með slík lán ekki að gagni. Á hvaða plánetu er formaðurinn og meirihluti stjórnar? Er nema von að boðið sé fram gegn svona hugsunarhætti í stærsta verkalýðsfélagi landsins.
→ 1 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .
Pantað sjálfsálit meirihluta stjórnar VR
12.3 2010 | 10:28 | 3 ummæli
VR fékk Deloitte endurskoðun til að fara yfir kreditkortanotkun hjá félaginu. Starfsmenn og stjórn eru með kreditkort sem þeir nota að vild. Er eðlilegt að þeir hafi slík kort? Nei. Er til skrifleg heimild fyrir því? Nei. Ég starfaði hjá 100 þúsund manna fyrirtæki í USA og þar var enginn starfsmaður með kreditkort. Í „frétt“ á heimasíðu VR segir að engar athugasemdir hafi verið gerðar. Það er nú oft svo með „fréttir“ að það sem ekki er sagt er athyglisverðara en það sem sagt er. Þannig er það með þessa frétt.
Fyrir það fyrsta er Deloitte í áskrift að verktöku hjá VR þannig að niðurstaðan kemur ekkert á óvart. Hér er á ferðinni það sem ég kalla pantað sjálfsálit. Einstaklingar og fyrirtæki sem eru í vinnu hjá VR eru fengin til að gefa álit á húsbónda sínum. Pöntuð lögfræðiálit, endurskoðun, siðfræðiálit og og sjálfsálit breytir engu um réttlætiskennd eða hvað er löglegt en siðlaust. Þannig hefur VR pantað lögfræðiálit og siðfræðiálit frá áskrifendum að verktöku. Endurskoðunarfyrirtæki sögðu allt í stakasta lagi hjá bönkunum nokkrum vikum fyrir hrun enda voru þau í vinnu hjá þeim. Hlutlaus endurskoðandi hefði örugglega komist að annarri niðurstöðu og gert athugasemdir. Það má ekki fyrir nokkurn mun fá hlutlausa einstaklinga til að skoða eitt eða neitt hjá VR. Ekki má fá álit hjá einstaklingum eða fyrirtækjum sem hafa engra hagsmuna að gæta. Þessi pöntuðu sjálfsálit sem þekkjast úr bandarísku réttarfari eru að skjóta hér rótum. Allir vita, sem vilja vita að það er ekkert að marka slík sjálfsálit.
Það gleymist líka að geta athugasemda Deloitte innan um allt kraðakið. Það eru ekki til neinar skriflegar reglur um kortanotkun eða heimildir fyrir henni nema munnlegar. Ég spyr því almenna félagsmenn í VR; hvers vegna mátti hlutlaus endurskoðandi ekki skoða bókhald VR sem veltir á fimmta hundrað milljónum? Hvers vegna var ekki fenginn hlutlaus endurskoðandi til að skoða kortanotkunina? Hvers vegna fékk minnihlutinn í stjórn ekki að sjá skýrsluna frá Deloitte? Af hverju var farið á hundavaði yfir hana með PowerPoint svo engin leið var að gera sér grein fyrir henni? Hvað var verið að fela….??
Spyr sá sem ekki veit.
→ 3 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .
Á meðan ég man…..
10.3 2010 | 12:43 | Rita ummæli
Á meðan ég man þá tók ég hér út af bloggsíðu Ragnars Ingólfssonar (með leyfi) tölvupóstsamskipti „eingnarhaldsfélagins“ VR. Það er verið að senda skeyti á milli til að tryggja sér félagið aftur. Þetta fólk er hér að velta fyrir sér að búa til málefnahóp til að svona „slys“ gerist ekki aftur. Slysið varð þegar fólk komst inn í stjórn VR sem að mati þessa fólks er ekki í „VR fjölskyldunni“ eins og það er orðað. Síðast þegar ég heyrði um „fjölskyldu“ í þessu samhengi var í Guðföðurnum.
Viljum við svona eignarhaldsfélag við völd í VR? Ef ekki þá kýs VR fólk L lista opins lýðræðis.
—– Áframsent skeyti —–
Frá: „Stefania Magnusdottir“
Sent: Föstudagur, 3. apríl, 2009 23:00:44 GMT +00:00 Casablanca / Monrovia
Efni: RE: Hittingur hjá Skuggum ???
Sæl öllsömul og takk fyrir síðast og eins vil ég þakka öllum fráfarandi stjórnar- og trúnaðarráðsmönnum frábært samstarf með von um að við eigum eftir að starfa aftur saman að ári – a.m.k. mörg okkar
Það hefði auðvitað verið við hæfi að þakka í gærkvöldi – hátt og snjallt – en mér fannst salurinn svo niðurdrepandi að ég ákvað að sitja á mér.
Hugmyndin um að hittast yfir kaffibolla síðasta miðvikudag í mánuði finnst mér mjög góð – það er um að gera að setja það inn í dagatalaið eða sem áminningu í símann – því það er svo erfitt að muna allt ! Það þarf líka að hugsa fyrir stað sem auðvelt er að komast að og hann þarf að vera nokkuð rúmgóður. Mér dettur í hug kaffiterían í Perlunni en þið hafið kannski hugmyndir um betri stað og þá er um að gera að nefna hann og úmfram allt að ákveða stað og stund. Ég er líka með hugmynd um málefnahóp sem færi í þá vinnu að endurskoða lögin þannig að svona slys gerist aldrei aftur. Fyrst þurfum við að fá inn heilt og almennilegt trúnaðarráð en á næsta aðalfundi verður að breyta lögunum — en þá verðum við búin að fá „okkar“ fólk inn — þótt það kosti aðrar allsherjarkosningar.
Vanti einhvern á þennan netfangalista vona ég að þið sendið þetta áfram á þau og setjið mig gjarnan í cc svo ég geti uppfært llistann hjá mér.
Með VR kveðju
Níní
> Subject: Fw: Hittingur hjá Skuggum ???
> Date: Fri, 3 Apr 2009 20:54:59 +0000
> —– Original Message —–
> From: „Gunnar Böðvarsson“
> Sent: Friday, April 03, 2009 8:49 PM
> Subject: Hittingur hjá Skuggum ???
> > Sæl öll og takk fyrir síðast.
> >
> > Jæja, þá er dælan farin að slá hægar ! …en það er komin fram
> > frábær hugmynd um að „viðhalda VRfjölskyldunni“ -og ekki síst
> > vinskapnum og samheldninni.
> >
> > Væri ekki sniðugt til að halda hópinn og hittast t.d. einu sinni í
> > mánuði eftir vinnu og fá okkur saman kaffibolla á einhverju kaffihúsi miðsvæðis.
> > Auðvitað komast ekki allir en þeir sem eru lausir koma kannski.
> >
> > Þetta mætti vera t.d. síðasti miðvikudagur í hverjum mánuði…til að
> > koma með hugmynd.
> >
> > Svona kaffihittingur er ekki hugsað til fá uppl. um nyja formanninn
> > eða stjórn ( nema menn vilji skemmta okkur !!) (grín).
> >
> > Vinsaml. takið eftir að Benni er komin með heima-email.
> > jong@flugger.is gengur illa að komast í gegn og emailið hjá Stefaníu
> > líka.
> >
> > Ég var að reyna að „plata“ Jóhönnu til að búa til svona hópa í
> > tölvunni hjá sér. Ég kann það ekki. Stjórn ( einn hópur) Trúnaðarráð
> > (einn hópur) .
> > Kannski einh.fleiri hugmyndir.
> >
> > ……væri gaman að heyra frá ykkur með kaffihitting . Svo förum við
> > að fara rólega af stað. 12 mán. til stefnu að næstu kosningu !!!
> >
> > kveðja
> > Gunnar B
→ Rita ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .
Af hverju mótframboð?
10.3 2010 | 09:40 | 4 ummæli
Hvers vegna erum við sem bjóðum okkur fram til stjórnar VR yfirleitt að skipta okkur af málum VR? Af hverju erum við að leggja okkur sjálf að veði í slag við þá meirihlutaelítu sem stýrir og hefur alltaf stýrt VR?
Hvað sjálfan mig varðar þá hef ég einfaldlega fengið nóg af þeim stjórnarháttum sem meirihlutinn viðhefur. Kornið sem fyllti mælinn var ákvörðun meirihluta stjórnar að ráða lögfræðing og siðfræðing til þess að skoða blogg minnihlutans. Tilgangurinn var sá að skoða hvort minnihlutinn væri andfélagslegur. Þetta minnti á gömlu Sovétríkin eða McCarthyismann í USA. Tilefnið var að Bjarki Steingrímsson fv varaformaður fór fram á að fá að skoða bókhald VR með endurskoðanda sem hann ætlaði að greiða sjálfur fyrir. Þess má geta að þeir sem blogguðu í meirihlutanum höfðu lokað bloggi sínu skömmu eftir kosningar í fyrra til að ekki væri hægt að herma upp á þau loforðin frá því í kosningunum.Þeir gleymdu því að þessi blogg eru vel geymd.
Annað atriði sem hefur verið að gerjast undanfarið ár eru málefni Lífeyrissjóðs verslunarmanna. Þar hefur verið margreynt að fá upplýsingar um sjóðinn án árangurs. Fyrst var borið við bankaleynd en þegar sjóðurinn var rekinn til baka með þau rök var borið við persónuvernd. Minnihlutinn hefur lagt á sig ómælda vinnu til að komast til botns í því hver raunveruleg staða sjóðsins OKKAR er. Við vitum að það var braskað með eigur okkar og við vitum að það var lánað til stjórnarmanna og fyrirtækja þeirra. Allskonar fjölskyldu og vinatengsl voru og eru á milli sjóðsins og lántakenda. Þetta verður allt að koma upp á yfirborðið.
Síðast en ekki síst er farið í að spyrða okkur fjögur sem eru á L listanum við allskonar hreyfingar og félagsskap sem með réttu eða röngu er talinn óæskilegur (sjá ummæli við bloggið hér á undan). Ekkert okkar fjögurra hefur tengst þeim félagsskap sem þar um ræðir. Það væri nær fyrir viðkomandi að hjálpa til við að gera VR aftur að verkalýðsfélagi í stað þess að vera einkahlutafélag fámenns hóps sem braskar með fjármuni.
→ 4 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .
Að standa við loforðin
9.3 2010 | 15:26 | 8 ummæli
Enn er blásið til kosninga í VR. Í þetta sinn til að freista þess að VR verði aftur félag launþega. Einkahlutafélaginu VR er stjórnað af meirihluta sem að mínu mati þjónar ekki hagsmunum félagsmanna heldur fjármagnseigenda og einhverju huldu félagi sem ég kalla einkahlutafélag VR. Við á L lista opins lýðræðis viljum gera félagið aftur að opnu og lýðræðislegu verkalýðsfélagi.
Þeir sem kjósa hafa alltaf gert þá kröfu að þeir sem eru kjörnir standi við það sem þeir lofa. Í VR kom upp sú sérkennilega staða eftir síðustu kosningar að formaður og tveir þeirra sem voru kjörnir í stjórn hafa gjörsamlega gleymt öllu því sem lofað var. Allt sem hét afnám verðtryggingar, opnara félag, meiri upplýsingar, meira lýðræði og allt upp á borðið hjá Lífeyrissjóðnum var gleymt og grafið. Málin eru til skoðunar, athugunar, rannsóknar eða í nefnd. Formaður og stjórnarmenn sem sviku loforðin lokuðu jafnvel bloggum sínum til að ekki væri hægt að herma þau upp á þau. EN þau gleymdu „copy – paste“. Þetta er geymt en ekki gleymt. Það liggur allt fyrir sem þau sögðu FYRIR kosningar.
Þess vegna er boðinn fram listi aftur gegn meirihluta stjórnar. Að ná meirihluta og hrinda öllu þessu í framkvæmd. Okkar loforð, sem við ætlum að standa við eru þessi;
- Breyta kosningafyrirkomulagi og gefa fleiri félagsmönnum tækifæri – þar hefur ekkert verið gert og verður ekkert gert nema setja málið í nefnd.
- Hætta handvali á vinum, kunningjum, stjórnarmönnum og sjálfum sér í stjórnir, nefndir og ráð – Ingibjörg Guðjónsdóttir formaður LV situr í hátt í 30 nefndum.
- Frumkvæði í að koma á framfæri upplýsingum – í dag þurfa félagsmenn að sækja allt til forystunnar og toga út með töngum.
- Afnám verðtryggingar – meirihlutinn setur fram rök fjármagnseigenda sem sín rök með verðtryggingunni.
- Raunveruleg úrræði vegna myntkörfulána – „Stjórnvöld, í samráði við aðila vinnumarkaðarins - og þar með VR – eru að vinna og þróa frekari úrræði í gegnum stöðugleikasáttmálann“ Sem sagt; allt svæft.
- Raunhæfar aðgerðir fyrir atvinnulausa og fyrir þá sem eiga undir högg að sækja – Framkomu og daðurnámskeið hjá Heiðari hjálpar ekkert við að finna vinnu.
- Við höfnum „stöðuleikasáttmálaum“ endar eru allar forsendur hans brostnar – Verkalýðshreyfingin setti enga fyrirvara við stöðuleikasáttmálann en atvinnurekendur marga.
- Hvað varð um peningana okkar í Lífeyrissjóðnum? – Bankaleynd, persónuvernd, pukur og sjónhverfingar til að fela og samþykkja nauðarsamninga útrásarvíkinga án þess að við vitum hvað er þar á bakvið.
- Við viljum vita hvað margir stjórnarmenn í Lífeyrissjóði verslunarmanna og fyrirtæki þeirra hafa fengið lán úr sjóðnum eða hve mörg skuldabréf sjóðurinn á þar sem þeir og fyrirtæki þeirra eru skuldarar – bankaleynd, persónuvernd og pukur kemur í veg fyrir það.
- Hvaða fyrirtækjum lánaði Lífeyrissjóðurinn, gegn hvaða veðum og ekki síst af hverju – Hvaða skuldabréf voru keypt og af hverju? Bankaleynd, persónuvernd og pukur.
- Spara tugmilljónir með því að leggja niður Landssamband Verslunarmanna og gera VR að Landssambandi. Ganga úr ASÍ – stjórnendur ASI vilja ekki meiri áhrif Lífeyrissjóðsfélaga á stjórnun þeirra þó sjóðsfélagar vilji það.
- Burt með ritskoðanir á skrifum minnihluta stjórnar og þeirra sem skrifa gegn stjórnarháttum í VR –stjórn VR lét siðfræðing og lögfræðing fara yfir blogg minnihlutans. Vildi hinsvegar ekki hlutlausan endurskoðanda til að skoða bókhald VR. Munið kreditkortanotkunina.
→ 8 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .
Animal Farm
3.3 2010 | 16:15 | 1 ummæli
Þeir sem muna eftir sögunni Animal Farm eftir George Orwell muna líklega eftir þvi hvernig samfélag dýrin ætluðu að skapa eftir að hafa tekið völdin. Svínin fóru hinsvegar að temja sér lifnaðarhætti bóndans og smátt og smátt urðu „sumir jafnari en aðrir“.
Þannig líður líklega mörgum félagsmanninum í VR eftir loforð formanns og hluta minnihluta sem kjörin var í fyrra. Slagorð eins og „verðtryggingin er krabbamein á þjóðfélagin, “ einfaldra kosningafyrirkomulag, meira lýðræði, opnara félag, spillinguna burt og fleiri urðu að engu þegar ný stjórn var kjörin. Aðeins 3 einstaklingar sem voru kjörnir af lista geta kinnroðalaust horft framan í félaga sína í dag og sagt; við reyndum hvað við gátum að efna loforðin. Formaðurinn og tveir einstaklingar, þau Ásta Rut Jónasdóttir og Ágúst Guðbjörnsson skiptu hinvsegar um ham þegar kom í þægileg sæti. Ekki eitt einasta loforð þeirra hefur verið efnt. Það er allt í skoðun, athugun, verið kanna eða í nefnd. Öll loforðin voru inni á bloggum þeirra, en þeim var lokað snarlega þegar þægindi stólanna fóru að gera vart við sig. Enda ekki hægt að láta herma slíkt upp á sig. Sem betur fer tókst með aðstoð „Copy paste“ að forða miklu af því frá glötun.
Nú fá félagar í VR eitt tækifæri enn til að breyta. Þeir geta hafnað sótthreinsuðum lista sem stjórnin handvaldi. Því miður virðist það sem gerðist innan VR vera að gerast annars staðar í þjóðfélaginu. Þeir sem eiga að standa að breytingum og voru kjörnir eða skipaðir til þess eru eins og svínin í Animal Farm. Stólarnir eru allt of góðir til að vera óþekkir við elítuna.
→ 1 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .
Marklaus atkvæðagreiðsla
1.3 2010 | 20:36 | 10 ummæli
Það er skoðun Jóhönnu að þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave sé marklaus ef betri samningur liggi á borðinu. Það er sem sagt skoðun hennar að álit þjóðarinnar verði marklaust með þvi einu að þrældómurinn verði mildari.
Atkvæðagreiðslan verður táknræn fyrir þá sem vilja ekki greiða skuldir óreiðumanna. Hún verður táknræn fyrir þá sem ekki vilja hneppa þjóðina í þrældóm fyrir þá sem enn ganga lausir vegna Hrunsins. Hún verður táknræn fyrir þá sem enn hafa snefil af sjálfsvirðingu á meðal þjóða. Hún verður táknræn fyrir þá sem mótmæla um alla Evrópu að almenningur greiði fyrir sukk banka í öllum löndum.
→ 10 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .
Baráttan við (peninga)ofureflið
1.3 2010 | 12:27 | Rita ummæli
Ég hef marga fjöruna sopið í þing og sveitarstjórnarkosningum. Ég hef unnið fyrir nær alla flokka sem eiga sæti á þingi að upplýsingamálum og fleiri flokka sem eru gengnir. Ég man ekki eftir því að nokkurn tímann hafi sú barátta verið háð með höggum undir beltisstað eða bolabrögðum beitt. Áður fyrr var það nokkuð algengt að frambjóðendur væru reknir úr starfi ef eigendur fyrirtækjanna voru í öðrum flokki. Nú er hægt að beita öðrum brögðum og það í verkalýðshreyfingunni.
Ég er ábyrgðarmaður L lista – Opins lýðræðis sem býður fram til stjórnar og trúnaðarráðs í VR. Listinn er borinn fram gegn meirihluta stjórnar og trúnaðaráðs til að breyta og opna VR. Nokkrir frambjóðendur og hugsanlegir kjósendur okkar eru beittir ofurþrýstingi að draga framboð sín til baka eða kjósa okkur ekki. Því ef nefnilega þannig varið að eignarhaldsfélagið sem nú stýrir félaginu er ráðandi ásamt atvinnurekendum í stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna. Mörg fyrirtæki eru stórskuldug við sjóðinn, geta ekki greitt og sækjast eftir niðurfellingu skulda. Í þeirri stöðu er ekki hægt að hafa neina óæskilega í stjórn VR.
Ég hélt satt að segja að svona vinnubrögð tilheyrðu síðustu öld. Við erum bara venjulegir félagsmenn í VR sem viljum að félagið okkar sé opið og lýðræðislegt og að peningum okkar í Lífeyrissjóði VR sé skynsamlega varið. Annað vakir ekki fyrir okkur. Það náðist að fá inn nokkra í stjórn á síðasta ári en ekki nægjanlega marga til að hafa áhrif. Ennþá er huliðshjálmur yfir öllu sem skiptir máli hjá stjórn og Lífeyrissjóði. Borið er fyrir bankaleynd og ef það dugar ekki og LV rekið til baka með það er borið fyrir persónuleynd. Nú síðast var samþykkt að samþykkja nauðarsamninga Bakkavarar en þeir hafa aldrei greitt af skuldabréfum! Svör stjórnar VR við beiðnum um upplýsingar eru að það sé verið að skoða, kanna, athuga og velta fyrir sér. Kannist þið nokkuð við svörin úr stjórnmálunum?
Ég ætla rétt að vona fólk láti ekki hræða sig frá því að svipta hulunni af því sem er að gerast innan verkalýðsfélags þeirra og kjósi nýja stjórn sem hefur burði til að þjóna félagsmönnum en ekki fjármagnseigendum.
→ Rita ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .
Furðuframboð?
27.2 2010 | 16:47 | 16 ummæli
Ég tók þá ákvörðun að bjóða fram lista til stjórnar VR gegn lista meirihluta stjórnar. Sú ákvörðun var tekin eftir að útséð var um það að þær breytingar sem boðaðar voru í fyrra í kjölfar formannskjörs og stjórnarkjörs næðu fram að ganga. Allir sem buðu sig fram þá boðuðu það að opna félagið og auka lýðræði. Stór hluti félagsmanna í VR hefur hinsvegar ekki orðið var við að núverandi formaður eða hluti þeirra sem komu nýjir inn í stjórn hafi staðið við gefin loforð.
Í mörgum tilfellum er það þannig að þegar fólk kemst í þægilega stóla fjúka loforð oft út í veður og vind. Við þekkjum þetta vel úr stjórnmálunum. Þannig var fv formaður, Gunnar Páll Pálsson gagnrýndur fyrir að hygla sér og sínum og stjórnin fyrir að halda öllum upplýsingum fyrir sig. Undir stjórn nýs formanns og meirihluta stjórnar hefur hinsvegar ekkert breyst. Hluti þeirra sem kjörinn var í stjórn í fyrra gekk til liðs við þann hluta gömlu stjórnarinnar sem eftir var og kunni vel að meta þægilega stóla. Að auki fengu þeir ýmsar sporslur sem þeir hinir sömu höfðu gagnrýnt í fari fv stjórnar. Einn var kjörinn í miðstjórn ASÍ þrátt fyrir að vera gegn aðild VR að ASÍ og annar var kjörinn í stjórn Lífeyrissjóðs Verslunarmanna þrátt fyrir að gagnrýna stjórnarsetu í LV og VR samtímis.
Til að bjóða fram lista gegn lista meirihluta stjórnar var leitað samstarfs við minnihlutann um upplýsingar hvernig best væri að bera sig að í framboði. Minnihlutanum gekk vel í síðustu kosningum og gott að nýta reynsluna frá síðustu kosningum. VR er ekki lýðræðislegasta félagið á Íslandi svo vægt sé til orða tekið. Kosningakerfið er flókið og er til þess eins, að óæskilegir frambjóðendur komist ekki til áhrifa í félaginu enda eru þeir síaðir frá áður en til kosninga kemur. Það að leita samstarfs við minnihlutann vakti mikinn titring, sérstaklega hjá núverandi formanni sem kallaði framboðið Furðuframboð. Maðurinn sem var kjörinn ,vegna þess að hann vildi opna félagið kallar mótframboð Furðuframboð. Það er spurning hvað hans framboð og framboð þeirra sem buðu fram til stjórnar í fyrra hafi verið kallað af þáverandi valdhöfum. Skyldu þeir hafa kallað það Furðuframboð? Ef það má ekki bjóða fram gegn ríkjandi valdhöfum í félaginu í lýðræðislegum kosningum án þess að vera kallað Furðuframboð þá er verr komið fyrir lýðræðinu í félaginu en var áður en núverandi formaður var kjörinn.
→ 16 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .
Björn S. Lárusson