Bjarni Karlsson

blogg á eyjan.is

Góðverkin kalla – frábær sýning!

6.3 2011 | 20:21 | Rita ummæli

Ég var að koma af uppsetningu Halaleikhópsins á nýjum gamanleik sem varpar skemmtilegu ljósi á íslenska þjóðarsál og ber heitið Góðverkin kalla.

Árvisst fé ég ásamt fermingarbörnum Laugarneskirkju að sjá framlag Halaleikhópsins og tveggja tíma sýning dagsins í dag hélt krökkunum með á nótunum allan tímann með sönglist og dansi, hröðum innkomum og spennandi söguþræði þar sem hópur áhugaleikara gaf ekki eftir eitt augnablik.

Það er sannarlega hægt að mæla með þessum sér-íslenska farsa sem leikstjórnarhjónin Margrét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson leikstýra.

Við í Laugarneskirkju þökkum fyrir okkur þetta árið.

Kíkið á www.halaleikhopurinn.is

Flokkar: Óflokkað



Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af sjö og átta? Svar: