Bíóblogg

blogg á eyjan.is

The Proposal

24.2 2010 | 10:19 | Rita ummæli

Í The Proposal leikur Sandra Bullock hina kanadísku Margaret Tate sem kúgar undirmann sinn og ritara til að giftast sér svo henni verði ekki vísað úr landi. Ryan Reynolds leikur Andrew Paxton sem bæði neyðist til að trúlofast óþolandi yfirmanni sínum og fara með henni í 90 ára afmæli ömmu sinnar…

…í staðinn fyrir þessa lygi eygir Andrew von um að fá stöðuhækkun sem hann sannarlega á skilið.

Margaret fær alltaf sínu fram

Anne Fletcher leikstýrir The Proposal en áður hefur hún leikstýrt 27 Dresses og Step Up þannig að þessar rómantísku myndir liggja greinilega vel fyrir henni. Mér finnst yfirleitt leikararnir og handritið vera mikilvægari en leikstjórarnir en Anne er að mínu mati á réttri leið með verkefnaval. Það var ekki sérlega mikið um húmor í Step Up en afskaplega mikil rómantík og aðeins of mikið af klisjum (sem að vísu skapaði húmor -en ég var ansi oft sú eina sem hló í salnum).

27 Dresses var fyndin, rómantísk og tók sig ekki of hátíðlega og The Proposal er í sama pakkanum.

Það kom oft fyrir þegar ég var að horfa á myndina að mér fannst ég vita hvað kæmi næst (vegna þess að ég hef jú séð nokkrar rómantískar gamanmyndir) en því var yfirleitt snúið einhvern veginn og útkoman varð brandari.

Sandra Bullock er ofsalega skemmtileg gamanleikkona. Þegar ný mynd með henni kemur á markaðinn vil ég helst sjá hana sem fyrst. Ég var hins vegar með smá fordóma fyrir Ryan Reynolds sem gamanleikara því hann hefur farið í taugarnar á mér í þáttum og myndum sem eiga að vera til skemmtunar. Hann kom mér hins vegar á óvart í þessari mynd og pirraði mig aldrei, kannski vegna þess að karakterinn hans var ekki aumingi í samskiptum sínum við Margaret?

Í The Proposal er Margaret yfirmaður með örlög Andrews í hendi sér en þegar staða hennar breytist skyndilega er framtíð hennar alveg undir honum komin. Hún á það á hættu að missa vinnuna, landvistarleyfið og stöðuna ef Andrew hjálpar henni ekki. Hann gæti auðveldlega verið andstyggilegur til að hefna sín á meðferð undanfarinni ára en nýja staðan gagnast honum líka. Hann dreymir um að verða útgefandi og þannig er samningurinn þeirra; hún veitir honum stöðuhækkun og þau giftast.

Margaret er búin að vera ein öll sín fullorðinsár og er orðin vön því að hugsa eingöngu um sjálfa sig og sína framtíð. Andrew er í hennar huga aðeins þrep sem hún getur notfært sér til að komast enn hærra í lífinu. En þegar hún kynnist fólkinu sem hann skildi eftir þegar hann fór til New York og skilur hvað það er sem rekur hann áfram reynist henni ekki alveg eins auðvelt að vaða yfir hann og hún hafði gert ráð fyrir. Andrew sömuleiðis sér aðra hlið á yfirmanni sínum þegar hún er ekki í sínu „náttúrulega“ umhverfi og nær að kíkja aðeins yfir múrana sem hún hefur reist í kringum sig.

Sandra og Ryan virka vel saman í þessari gamanmynd og ég væri alveg til í að sjá þau saman í fleiri myndum. Hinir karakterarnir eru líka alveg frábærir og ég mæli með því að sjá þessa mynd bara til að sjá Betty White og Oscar Nuñez í aukahlutverkum. Betty leikur Annie, níræða ömmu Andrews, hún er besti klæðskeri suðaustur Alaska, afkomandi Rússa og indjána og sérlegur áhugamaður um getnað barnabarnabarns. Oscar leikur Ramone sem sinnir ýmsum hlutverkum í þessu litla samfélagi því hann birtist í hverju atriði á fætur öðru, til þjónustu og skemmtunar reiðubúinn.

http://www.youtube.com/watch?v=kPgZcW8MCaA

The Proposal er sumsé afskaplega góð bíómynd (og ekki að ég skilji hvernig nokkur geti verið á móti rómantískum gamanmyndum) þá ætti hún ekki að kvelja neinn þann sem horfir til ólífis.

Myndin er nýkomin út á DVD og það er hægt að kaupa hana útum allt. Fyrir þá sem vilja ekki leggja útí fjárfestingu er hún ugglaust til á vídeóleigum um allt landið og er sömuleiðis fáanleg á nokkrum bókasöfnum.

Kerfisstjóri Flokkar: Gaman
Efnisorð: , , , , , , , ,



Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af sjö og átta? Svar: