Distant Drums (1951) heitir er gömul ‘góðir-kúrekar-drepa-vonda-indjána-mynd’ með Gary Cooper. 
Hún er fyrsti svokallaði „Florida vestrinn“, sem var ákveðin gerð vestra er einbeitti sér að frásögnum af síðari Seminóla stríðinu. Eitt af fjölmörgum kynþáttastríðum sem mótuðu hið ágæta heimsveldi Bandaríki Norður-Ameríku. Í dag er Distant Drums þó best þekkt fyrir að frumflytja „Wilhelm öskrið“. Frægustu hljóðbrellu kvikmyndasögunnar.
Þið sem hélduð að þið væruð að fara að lesa um eitthvað málefnalegt. Ha ha plataði ykkur! Já, þessi færsla er um eina litla hljóðbrellu, ekki löngu gleymt þjóðarmorð.
„Wilhelm öskrið“ heyrðist fyrst í ofangreindri ræmu er óheppinn hermaður var tættur af krókódílskjafti. Sama hljóð var svo notað fimm sinnum til viðbótar í myndinni og hefur síðan heyrst í yfir 150 myndum, yfir 30 sjónvarpsþáttaröðum og yfir 40 tölvuleikjum.
George Lucas virðist hafa einskonar fetish fyrir öskrinu, enda heyrist það í hverri einustu Star Wars mynd og hverri einustu Indiana jones mynd.
Hér er samtýningur af nokkrum öskrandi dæmum:
Enginn veit þó hví sándfæll þessi kallast „Wilhelm öskrið“. Líklega hét hann Wilhelm, maðurinn sem öskraði það. Er það ekki líklegt? Ég veit það ekki.
Hulli
Ummæli (5)
Margrét // 23.2 2010 kl. 14:39
Takk fyrir þennan fróðlega fróðleiksmola Hugleikur.
Jóhann Guðmundsson // 23.2 2010 kl. 15:28
Hérna eru fleiri hljóðklisjur, og meira um Wilhelmsöskrið.
http://filmsound.org/cliche/
Bobby Breiðholt // 23.2 2010 kl. 15:59
http://www.youtube.com/watch?v=hf6_hok4-lo
Youragh! er nýja Wilhelm.
Hugleikur Dagsson // 23.2 2010 kl. 16:06
þakkir!
wilhelm | siggimus // 24.2 2010 kl. 11:00
[...] [via] [more on wilhelm & other movie clichés] 10:58, Wednesday, February 24th, 2010 tv&film [...]
Rita ummæli