Grænar baunir

Bakvél

25.1 2010 | 22:09 | 9 ummæli

Af ástæðum sem eru ekki vitund dularfullar var ég að skoða target.com, en Target var uppáhaldsbúðin mín þegar ég bjó í Amríku, fyrir margt löngu.  Það fæst allt í Target (nema friður á jörð), þar á meðal þetta þénuga tæki. 

Eins og allir sjá er þetta rakvél.  Svona er hún notuð..

Græjan heitir karlmannlegu nafni:  MANGROOMER Do-It-Yourself Electric Back Hair Shaver.

Hinir testesterónbústnu Bandaríkjamenn eru greinilega komnir í stríð við bakloðnuna.  Margt vitlausara í þeirra stríðsrekstri, oseisei já.

Flokkar: Óflokkað | Facebook



Ummæli (9)

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):