Nú hef ég í nokkra daga dregið býsna rækilega úr nethangsi. Bloggið er reyndar ekki svo mikill tímaþjófur, nei, það er fésbókin. Ég á nefnilega svo fáránlega skemmtilega fésbókarvini. Spurning hvort ég geti beðið þá um að vera leiðinlegri, af tillitsemi við mig og fjölskylduna sem þarf umhyggju og næringu við og við.
Helgin hefur farið í skápatiltekt. Fátt er manni hollara en að taka til í skápum. Ísskápsþrif eru á við 20 tíma hjá sálfræðingi og tvo í ræktinni. Segi og skrifa.
Prófkjör, handboltaleiki og svoleiðis grín hef ég látið framhjá mér fara. Ég stórhneykslaði fimm konur á hárgreiðslustofunni um daginn með því að vita ekki hver kynþokkafyllsti karlmaður landsins væri (samkvæmt Rás 2), ekki einu sinni þótt mér væri sagt nafnið á honum. Svo gúgglaði ég dulítið og sýnist pilturinn ljómandi geðslegur. Reyndar finnst mér álíka gáfulegt að keppa í kynþokka og að keppa í fegurð. Þótt ég skilji ekki baun í íþróttum, skil ég samt alveg að hægt er að keppa í handbolta og sé ekki betur en það sé töluvert vinsælt bara. Í prófkjörum er keppt í kjörþokka. Í ókjörum er keppt í óþokka. Mér finnst merkilegt að þokkapiltur sé neikvætt orð, þótt piltur og þokki séu það ekki. Þannig er alls ekki hægt að segja um kynþokkafulla handboltamanninn að hann sé þokkapiltur, þrátt fyrir titilinn sem hann ber.
Mál er að linni, munið eftir skápunum.
Elísabet Arnardóttir
Ummæli (6)
Harpa J // 24.1 2010 kl. 17:36
Ég hef ekki hugmynd um hver er mest sexí samkvæmt rás 2 og ég nenni ekki að tékka á því.
Ísskapaþrif eru sálarbætandi, það er víst ábyggilega satt og rétt.
Guðlaug Hestnes // 24.1 2010 kl. 21:46
Líkt og Harpa J er ég úti að aka í sexímannskeppninni, en ég veit upp á mig skömmina með ísskápinn. Kærust í bæinn.
Kristín í París // 25.1 2010 kl. 07:57
Ég er búin að tala um það í a.m.k. ár að þrífa kannski ísskápinn. Ég þríf grænmetissúffuna reglulega, annars væri hún orðin full af mold. Svo blettahreinsa ég eftir þörfum. En ég þarf einmitt að hitta sálfræðing, kannski ég slái tvær flugur í einu höggi og drulli mér í þrifin í vikunni?
Keppni í kynþokka og fegurð er fyrir mér á svipuðu plani og keppni í hand- og fótbolta. Gersamlega sneydd áhuga á þessu. Finnst þó skárri tilhugsun að börnin mín detti í boltann en að þau detti í fegurðarsamkeppnir.
Hvað facebook varðar, innilega sammála. Ætla að vera duglegri við að logga mig út:)
SVanfríður // 25.1 2010 kl. 13:50
Já en peningarnir liggja í smábarnafegurðarsamkeppnum og ég á tvo litla..
baun // 25.1 2010 kl. 16:04
Harpa og Guðlaug:-)
Kristín, trúðu mér, það er sáluhjálp fólgin í skápatiltekt. En ef þú ferð að sjást sjaldnar á fésbókinni, þá mun ég gera það líka þar sem skemmtigildi hennar mun falla með fjarveru þinni..
Svanfríður, það verður ekki af Amríkönum skafið fegurðarsamkeppnisæðið.
Ikki Túliníus // 17.2 2010 kl. 10:47
Ég tók einu sinni til í skáp fyrrverandi unnustu frænda míns fyrir norðan (á Hestnesvöllum, n.t.) og fann í honum dauðan kött sem þáverandi nágranni unnustunnar hafði lýst eftir um jólin, og nokkra skraufþurra rottuunga sem hafa líklega geispað golunni um sama leiti og kötturinn.
Síðan hef ég verið lítið fyrir skápatiltektir, enda er ég oftast úti hvort sem er.
Rita ummæli