Grænar baunir

Bolti, brók og þjóð

13.1 2010 | 21:20 | 3 ummæli

Það er boltaleikur í sjónvarpinu, mikið skelfing þykir mér það óáhugavert efni. Skipulagðar íþróttir ná fæstar að kveikja í mér, þótt sumar hafi auðvitað skemmtigildi fyrir óinnvígða, t.d. krulla  og ganga (Ólympíugrein sem snýst um að rykkjast áfram á sérkennilega vanþokkafullan hátt).

Ég er ekki alltaf í boltanum.  Í gær stofnaði ég fésbókarhóp um nærbuxur.  Áðan borðaði ég skyr í sturtu.  Hvorugt hafði ég áður prófað.

Ef þið ætlið að taka þátt í þessari könnun, munið þá að skrifa „Íslendingar“.  Og passið ykkur á myrkrinu í rembunni.

Að lokum mæli ég með því að þið segið Hannes Valur þrisvar sinnum í röð.

Flokkar: Óflokkað | Facebook



Ummæli (3)

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):