Pólsku konurnar í vinnunni eru komnar á danska kúrinn. Ég hef aldrei nennt megrunarkúrum, en í ár ákvað ég að gera það sem ég hef aldrei áður gert – ég er byrjuð að æfa í líkamsræktarstöð. Fara í ræktina, eins og það heitir.
Fyrir líkamsræktarrata eins og mig er það hreint ótrúleg upplifun að bifast á bretti innan um bylgjandi hafhold samborgaranna. Stigvélar, hlaupabretti og þrekhjól í breiðum röðum, örugglega uppundir hundrað stykki. Og allir flatskjáirnir, maður lifandi. Dúandi rassar, massaðir gaurar, allskonar fólk. Mikill sviti. Hold kroppar hold kroppar hold kroppar hold kroppar líkamar. Einhvern veginn hef ég hingað til paufast í gegnum lífið án þess að kunna nokkurn skapaðan hrærandi hlut á líkamsræktartæki og tól, en nú verður breyting á, nú rækta ég mitt hold á þartilgerðri stassjón. Ekkert múður með Lalla lúður.
En tæknilegir hlutir hafa alla tíð vafist fyrir mér. Í dag, er ég stóð þyrst og rjóð fyrir framan brunn og starði á hann án þess að nokkurt vatn léti á sér kræla, vék sér að mér snöfurmannlegur náungi sem sýndi mér hreyfiskynjara í brunninum. Örlítið fannst mér maðurinn kunnuglegur, enda tjáði partnerinn mér að þarna hefði ég fengið svölunartengda aðstoð hjá sjálfum Þorgrími Þráinssyni *dæs*.
Mikið dæmalaust líður manni annars vel eftir svona sprikl. Mér finnst ég orðin helmössuð, en það eru trúlega andlegir vöðvar, því ég er bara búin að fara tvisvar í ræktina.
Elísabet Arnardóttir
Ummæli (6)
Guðlaug Hestnes // 11.1 2010 kl. 22:18
Ha ha mín kæra baun, þú endar í boltanum með kærri þrekkveðju !
ragganagli // 12.1 2010 kl. 05:57
Ánægð með þig, það jafnast ekkert á við sveitta ræktarferð innan um pumpaða tappa og stinna kúlurassa. Gangi þér vel!!
baun // 12.1 2010 kl. 12:00
Þakka upppepp:)
ella // 12.1 2010 kl. 13:12
Dáistaððér. Hef einu sinni farið á svona stöð og veit ekki margt leiðinlegra. Hugsanlega myndi ég þó harka af mér ef ekki væru 30 kílómetrar þangað. Er samt að hugsa um að fá mér hjól hérna í sjónvarps og tölvustofuna.
Harpa J // 12.1 2010 kl. 14:08
Dugleg!
Ég læt klappstýruæfingarnar og gönguferðirnar nægja í bili. En það á reyndar að fara að opna voða fína stöð hérna í þorpinu bráðum og börnin mín eru of ung til að fara ein – þannig að kannski verð ég dregin þangað inn, hver veit.
Kristín í París // 13.1 2010 kl. 14:18
Áfram Baun!
Rita ummæli