Grænar baunir

Latabeta í latastrák

8.1 2010 | 20:20 | 15 ummæli

Æ, ég er eiginlega hætt að nenna þessu rafpári en ígrunda þess í stað útgáfu gamla bloggsins í leðurbandi.  Blessað bloggið sem var og hét og var um allt sem hét milli himins og jarðar.

Hef sveiflast svolítið í ísbjargarmálum undanfarið og sé af og til ágæt rök fyrir hinu og þessu, á bágt með að höggva skoðanir mínar í stein eins og sumir virðast gera.  Kallið mig vingul ef þið viljið, mér er slétt sama.

Þessi vinnuvika var erfið og bjánalega löng, maður er fljótur að venjast því að sofa út og éta mikið en lengi að venjast því að vakna snemma og vinna mikið.  Þegar partnerinn sótti mig í dag stóð til ferð í Bónus, ekki það skemmtilegasta sem ég geri eftir langan vinnudag að fara í það heiðgula helvíti.  Partnerinn sagðist þurfa að skreppa í eina tölvubúð á leiðinni, það gæti tekið smá tíma og réði mér frá því að hanga úti í bíl á meðan.  Ég staulaðist með honum, heilinn þegar byrjaður að gíra sig niður í tæpa bónusvitund með sjálfstýringu.   Veit síðan ekki af mér fyrr en ég er komin inn á ókunna snyrtistofu og indælis kona farin að nudda á mér fæturna.  Kallinn fór í búð á meðan og eldaði síðan handa mér hreint dásamlegan mat.   Og hér sit ég í latastrák, með silkimjúkar tær, belginn fullan af lúðu og meðtek hljóðin í uppvaskinu frammi í bland við sérkennilegan sjónvarpssöng ungs manns í skrítinni peysu.  Útsvar að byrja bráðum.  Lífið gæti verið verra skal ég segja ykkur.

Það er e.t.v. ekki fallega gert að sælugrobba svona og ég geri mér vitaskuld grein fyrir því að fá ykkar hafa þroska til að samgleðjast mér.  En stundum verður kona bara að gera það sem kona vill gera, jafnvel þótt hún sé ekki forseti.

Flokkar: Óflokkað | Facebook



Ummæli (15)

  •   Regína // 8.1 2010 kl. 21:23

    Livet er ikke det værste man har
    og om lidt er kaffen klar……

  •   Ari // 8.1 2010 kl. 22:29

    Ég samgleðst innilega. Þú hefur örugglega átt þetta skilið (eins og alltaf Hjálmar).

  •   Guðlaug Hestnes // 8.1 2010 kl. 23:27

    Jú, latabaun, ég hef sko þroskann til að samgleðjast! Góða helgi með kærri í gott kot.

  •   baun // 8.1 2010 kl. 23:52

    Takk:) Þið þrjú eruð mjög þroskuð (ég er ekki að segja að þið séuð gömul).

  •   Eyja // 9.1 2010 kl. 01:00

    Það eina sem ég er viss um í Ísbjargarmálinu er að það er flókið og mörg verðug rök til í því á ýmsa kanta og að þeir sem telja einhverja tiltekna niðurstöðu augljósa (og dylgja jafnvel um greindarskort þeirra sem eru á annarri skoðun) hafa alveg áreiðanlega rangt fyrir sér.

  •   Eyja // 9.1 2010 kl. 01:01

    Já og sælugrobb er gott.

  •   baun // 9.1 2010 kl. 11:46

    Eyja, ég hef líka rekið mig á ótrúlega hörð viðbrögð þegar ég anda því framan í fólk að til sé önnur skoðun á málinu, á hvorn veginn sem er. Hef barasta áhyggjur af þessum trúarhita í samlöndum mínum, það er ekki mikið hægt að ræða málin í svona andrúmslofti.

  •   Anna Helgadóttir // 9.1 2010 kl. 12:47

    Má ekki alveg eins deila góðum hlutum á bloggi eins og slæmum? Þetta hljómar meira eins og yndislegur endir á erfiðri viku. Þið eruð mjög heppin að finna hvort annað.

  •   baun // 9.1 2010 kl. 14:18

    Jú, Anna, algjörlega rétt hjá þér. En ég held að bloggið sé að þróast yfir í að verða pólitískt karp og lítið annað og er þar sjálfsagt ekki við aðra að sakast en bloggarana sjálfa. Vond þróun þykir mér, fyrir þetta ágæta ritform.

  •   Anna Helgadóttir // 9.1 2010 kl. 14:55

    Sammála, ef það er þróunin er hún afar sorgleg.

  •   Harpa J // 10.1 2010 kl. 14:02

    Það má alveg skrifa um eitthvað annað en vesen og vandræði og ég samgleðst þér í sælunni.

  •   SVanfríður // 10.1 2010 kl. 14:16

    Ég gleðst með þér,ekki spurning:)

  •   hildigunnur // 12.1 2010 kl. 08:53

    ég nenni voða sjaldan að blogga um Ísbjörgu og finnst svona átjánþúsundsinnum skemmtilegra að lesa svona færslur. Meira takk!

  •   ella // 12.1 2010 kl. 13:08

    Sleppi pólitísku bloggunum. Reyni að mynda mér skoðanir eftir því sem ég heyri hjá því fólki sem mér hefur fundist vera treystandi hingað til en það er nú ekki einfalt því að flestir hafa lag á að vera afar sannfærandi.
    Stundum er vissulega mjög gott að vera til.

  •   Kristín í París // 13.1 2010 kl. 14:20

    Það er allta verið að segja að bloggið sé að breytast í karpstöð Íslands, en á sama tíma erum við þó nokkur að gera eitthvað allt annað og örugglega fullt af öðru fólki líka. Mjög fáir af mínum leslista eru í karpinu.

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):