Fátt er hættulegra lítilli þjóð en uppblásnar hugmyndir embættismanna um eigið ágæti. Forréttindakarl, sem rúllað hefur sjálfkjörinn í feitu puntembætti í fjölmörg ár, velur að varpa fyrir róða erfiðri og ómældri vinnu þingkjörinna fulltrúa þjóðarinnar. Af því að hann veit betur.
Við erum Ólafur Ragnar á Hrauninu, og Þröstur Hjörtur víðsfjarri.
Elísabet Arnardóttir
Ummæli (4)
Sigmundur Guðmundsson stærðfræðingur // 5.1 2010 kl. 18:04
Bægslagangur Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna í ICESAVE málinu hefur aðeins haft einn tilgang. Hann er sá að koma ríkisstjórninni frá. Þeir vilja sjálfir geta stjórnað „uppgjörinu“ við Davíðstímann.
hildigunnur // 5.1 2010 kl. 18:21
Sigmundur – nema nú þora þeir ekki… sjá hér.
Andrés // 5.1 2010 kl. 18:44
Nokkuð glúrin líking hjá þér.
Harpa J // 6.1 2010 kl. 11:41
Æ já. Þetta er þyngra en tárum taki.
Rita ummæli