Sú stétt manna sem ég ber einna mesta virðingu fyrir eru listamenn. Ber virðingu fyrir fólki sem skapar, af því að það hefur eitthvað að segja, af því að það verður að gera það, af því bara. Ímynda mér að það sé frjálsara einhvern veginn en við hin. Þegar ég fer í leikhús, þegar ég fer á tónleika, þegar ég les góða bók, þegar ég fæ gæsahúð af hrifningu, hvort sem hún kviknar af ljóði, hljóði, litum eða orðum. Þakklæti. Á erfiðum tímum held ég að listamenn séu með verðmætustu þegnum hverrar þjóðar. Listamenn og venjulega fólkið.
Í gærkvöld borðaði ég hangiket með níundubekkingum og fjölskyldum þeirra, svona til að fagna aðventunni. Ég þekkti fáa þarna, en spjallaði eins og gengur við sessunauta mína, börn og fullorðna. Það var notalegt að kynnast nýju fólki og skrítinni spurningu skaut upp í kollinum á mér: Er þetta venjulega fólkið? Enginn að spyrja: Hvað gerir þú?, eða hvað kýst þú?, hvað þá að minnast á afstöðu til fyrirbæris sem ég get hvorki sagt né skrifað án þess að það framkalli ógnarkröftugt tannkul í heilanum á mér. Bara fjölskyldur að borða, tala og hlæja, t.d. að asnalegum færeyskum orðum* og því að setja grænar baunir upp í töflureikniforrit til að áætla hve margar eigi að vera á mann í svona boði. Kertaljós og hangiket og samvera og laufabrauð og ís með ávöxtum. Harla gott.
Svo hitti ég bráðskemmtilegan öldung í dag sem fór með húsgang fyrir mig, sem hann sagðist hafa lært í æsku (á öndverðri 20.öld). Húsgangurinn er svona:
Ef kemurðu á bæ þar sem kaffi er ekki á borðum
og kunnir ekki við að biðja um það með orðum,
stattu þá hjá húsfreyjunni um stund án þess að tala,
og strjúktu henni um bakið, þá fer hún að mala.
Verð að játa feginleik yfir því að sá agnarpartur af heiminum sem birtist t.d. í athugasemdakerfi Egils H segir ekki alla söguna um hver við erum. Það er til líf án illmælgi, dómhörku og beiskju og stundum þarf ég að minna mig á það. Annars verð ég óskaplega döpur.
*dæmi: góðgætisbúkur=sælkeri, bert starfsfólk=aðeins (fyrir) starfsfólk
Elísabet Arnardóttir
Ummæli (12)
Kristján Elís // 11.12 2009 kl. 23:13
fallega mælt
Kristín í París // 12.12 2009 kl. 08:17
„Við hin“? Ég myndi nú stilla þér upp í hóp skapandi listamanna. En kannski er ekkert mark takandi á mér, ef mig skyldi kalla. Ekki vera döpur. Illmælgi og aðrar neikvæðar hliðar eru líklega allt of áberandi hérna, en gullmolar eins og þú rétta það af.
hildigunnur // 12.12 2009 kl. 11:17
snilldarvísa atarna
Já annars sem betur fer er mest af okkur venjulega fólkinu, ýmsir kommentarar á Eyjunni og Moggablogginu (sáluga) og er.is sýnir hliðar á fólki sem ég vissi ekki að væru til og ég vildi helst ekki vita að væru til.
Regína // 12.12 2009 kl. 12:36
Beta mín, þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir mikilvægi þess að skapandi og skemmtilegt fólk eins og þú skrifir reglulega pistla. Við, ,,venjulega fólkið“, erum komin með upp í kok af öllu þessu argaþrasi.
Þórdís // 12.12 2009 kl. 16:42
Þú ert nú meiri dúllubaunin.
Elísabet // 12.12 2009 kl. 16:42
Þakka hlý orð í minn garð.
Harpa J // 12.12 2009 kl. 17:04
Sammála öllum hér fyrir ofan.
En mér þætti svolítið gaman að sjá grænubaunareiknilíkanið.
Guðlaug Hestnes // 12.12 2009 kl. 17:49
Sammála öllu sem hefur verið skrifað. Við erum venjulegt fólk og eigum að borða sirka 25 grænar með ketinu! Jú jú mín kæra, ég get spilað á hvolfi, en engin átakaverk. Gaman að þessu með kærri í bæinn.
Lesandi // 12.12 2009 kl. 19:56
Tek undir með öðrum skrifurum hér. Manni líður betur eftir að hafa lesið pistlana þína. Illskan og reiðin sem er allsráðandi hér í bloggheimum þarf að fara að láta undan. Hún er að mörgu leyti skiljanleg, en skilar litlu öðru en meiri vanlíðan….
Wisserbesser // 13.12 2009 kl. 22:53
Do I detect a touch of the maudlin?
Elísabet // 13.12 2009 kl. 23:01
Á einni baun eru margar hliðar.
Svanfríður // 15.12 2009 kl. 18:39
Þetta var svo sannarlega góður pistill.Ef ég má segja hug minn á þér þá þykir mér þú með eindæmum klár kona,þú kemur vel fyrir þig orði,ert húmoristi,sönn þér og úr því að ég hef nu bara aldrei hitt þig né talað við þig fyrir utan netheima þá segi ég og skrifa að þú ert falleg kona.
Rita ummæli