Grænar baunir

Orð

2.12 2009 | 21:22 | 17 ummæli

Ég skil illa stjórnmál og getur varla heitið að ég sé mellufær í því, en stundum held ég að stjórnmálamenn stjórnist af hræðslu við menn.Og menn eru mishræðilegir í reiði sinni…Hef heyrt að fólk úti á landi eigi orð yfir höfuðborgina.  Krísuvík.  Ábyggilega vel meint og engin sneið til orðasúpugerðarinnar hér fyrir sönnan.

Spurði unga afgreiðslukonu í dag að því hvort dúnúlpan (sem ég var að máta) þyldi vætu.  Ha? sagði hún, og hafði ekki hugmynd um hvað „væta“ þýðir.  En stúlkan var ósköp indæl.  Talandi um orðin og unga fólkið.  Heyrði skemmtileg lýsingarorð hjá táningsvini mínum í gær.  Silkislakur og eplasvalur. Það ætla ég að vera á aðventunni.

Silkislök og eplasvöl.

Flokkar: Óflokkað | Facebook



Ummæli (17)

  •   ErlaHlyns // 2.12 2009 kl. 21:42

    Eplasvöl. Það hljómar virkilega vel og enn ferskara en að vera bara svöl.

  •   Guðlaug Hestnes // 2.12 2009 kl. 21:44

    Kannast ekki við Krísuvík, en Væluvík þekki ég af orðspori. Einnig heyrði ég að túrtappi þýddi lágvaxinn alkóhólisti. Sel þetta ekki dýrar en „kaupt“ var með kærri kveðju.

  •   Elísabet // 2.12 2009 kl. 22:39

    Einnig er Kreppuvík mikið notað

  •   Svanfríður // 2.12 2009 kl. 22:46

    Ég fór einhverntíman og ætlaði að versla mér vettlinga en einhverra hluta vegna þá sagði ég óvart „glófi“ eða er það „glóvi“ og konan vissi ekkert hvað ég átti við. Hef aldrei heyrt talað um höfuðborgina sem Krísuvík né Væluvík,bara borg óttans en mér finnst það nú ekki passa.

  •   Harpa J // 3.12 2009 kl. 10:52

    Krísuvík finnst mér flott og ætla að taka það upp samstundis.

  •   baun // 3.12 2009 kl. 21:49

    Hef aldrei skilið af hverju Reykjavík er stundum kölluð borg óttans. En ég skil mætavel af hverju hún er kölluð Krísuvík.

  •   ella // 3.12 2009 kl. 23:00

    Ætli það gæti verið út af stressinu í umferðinni?

  •   baun // 3.12 2009 kl. 23:27

    Kannski..annars hef ég ekki hugmynd. Mér finnst borg óttans hljóma svo yfirdramatískt eitthvað.

  •   Svanfríður // 4.12 2009 kl. 14:32

    Ég hef alltaf skilið það þannig,að borg óttans varð til vegna glæpa!Svona eins og þú segir,yfirdramatískt.

  •   parisardaman // 6.12 2009 kl. 11:00

    Ég hef alltaf skilið þetta sem húmor, en ég er kannski bara brengluð í skopskynsamlegum skilningi.

  •   baun // 6.12 2009 kl. 12:45

    Vissulega er þetta sprúðandi spaugilegt, en hvaðan er þetta? Úr einhverri skáldsögu?

  •   parisardaman // 6.12 2009 kl. 19:41

    Ekki græna glóru. Finnst ég hafa heyrt þetta oft, en get samt ekki sagt hvar :) (broskall!)

  •   Sigurbjörn // 6.12 2009 kl. 21:08

    er þetta Michael Caine á efri myndinni?

  •   Elísabet // 6.12 2009 kl. 21:59

    Uuuu, nei, þetta á að vera reiður sjómaður.

  •   hildigunnur // 7.12 2009 kl. 19:50

    parísardama, þér fer fram :D

  •   Arngrímur Vídalín // 8.12 2009 kl. 18:52

    Ég hef alltaf staðið í þeirri meiningu að Borg óttans sé upprunnið hjá Tvíhöfða fyrir sirka 12 árum. Skets útgefinn á plötunni Til hamingju og heitir að mig minnir Spilling.

  •   Elísabet // 8.12 2009 kl. 20:35

    Takk Arngrímur, það gæti vel passað.

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):