Meiri skrifletin í mér, er með hausinn fullan af hugmyndum sem ráfa stefnulaust um. Flestar auðvitað týndar eins og allir sokkar og hanskar sem ég kemst í tæri við. Hvað er tæri?
Afrekaði að fara í nýju búðina hans Sullenbergers um daginn. Þar var ýmislegt að finna, t.d. risastóra poka af Arion kattasandi (nafnið hljómaði kunnuglega) og súrar Krakus gúrkur (ahh, Krakus. Minnir mig á kramin og föl jarðarber í sykurlegi æsku minnar). Einnig fann ég Oreo kex í pakkningu á stærð við kommóðu og níðþunga hveitisekki. Kostur virðist því hugsaður fyrir stórar fjölskyldur og afbrigðilega svangt fólk. Allt í lagi með það. Annars finnst okkur partnernum Europris eiginlega skemmtilegasta búðin í bænum, þar er margt eigulegra muna.
Uppgötvaði nýlega að ég er haldin skoðanadoða. Fólk æsir sig yfir öllu mögulegu í kringum mig og ég stari tómlega út í loftið og sýg upp í nefið. Er mikið að spá í að vera ekkert að ergja mig yfir því. Allt fer þetta einhvern veginn.
Elísabet Arnardóttir
Ummæli (14)
hke // 25.11 2009 kl. 23:52
Hélt einmitt lengi vel að jarðarber væru grá. Hef ekki komið í Kost ennþá til þess að næla mér í vörubretti af þessum varningi í jólafrómasinn, efast um að ég nái að beygja út úr umferðarslaufu á réttum stað til þess að ná þangað eina mínútu í. Varðandi skoðanir á því sem efst er á baugi þessa stundina hefur einmitt verið uppselt hjá mér og lokað um óákveðinn tíma frá því í haust.
parisardaman // 26.11 2009 kl. 07:11
Ég er einmitt að sligast undan skoðunum mínum, má ég ekki senda ykkur smá?
Ég horfði á tæri í smá stund og sá skyndilega ljósið, þetta er stytting á táfæri, sem er að komast í minna en tálengd frá hlutnum.
Sigurbjörn // 26.11 2009 kl. 10:52
Skoðanir eru bara til vandræða.
Guðlaug Hestnes // 26.11 2009 kl. 12:42
Veistu ekki að það er í tísku og vænlegt til frama að hafa skoðun á öllu mögulegu! Með kærri kveðju yfir.
baun // 26.11 2009 kl. 18:19
hke, gráfölt frómas úr krakus jarðarberjum, mmm…maður fær vatn í munninn.
Kristín, þú snjallasta Parísardama allra Parísardamna, auðvitað er tæri=táfæri!
Sigurbjörn og Guðlaug, menn hafa greinilega ýmsar skoðanir á skoðunum:)
Kristín í París // 26.11 2009 kl. 19:36
Ég skammast mín samt dálítið, það er nefnilega að komast í minna en, eða jafnt og, táfæri. Ef ég gleymi smáatriði eins og EÐA JAFNT OG í merkingarfræðiprófinu, er ég í slæmum málum. En gott að ég gerði villuna hér og nú, vonandi hef ég lært af henni.
baun // 26.11 2009 kl. 19:41
Haha, við erum nú ekkert í tittlingaskítnum hér gæskan.
hildigunnur // 26.11 2009 kl. 21:15
mér finnast gráfölu jarðarberin í sykurleginum góð
ella // 26.11 2009 kl. 23:42
Júróprís er með ódýrustu oragrænar á Akureyri. Jæja eða þannig var það í haust.
Harpa J // 27.11 2009 kl. 17:59
Sullenberger búðin hljómar sem sagt eins og sniðin fyrir foreldra unglings drengja…
Ég er í skoðanafríi.
Tóta // 28.11 2009 kl. 18:45
ég held að skoðanadofi á þessum tímum sé ágætur, að minnsta kosti ef maður vill halda geðheilsu sinni
Svanfríður // 30.11 2009 kl. 18:56
Krakus minnir mig á Krampus…andstæðu St.Niclaus.
Ester // 1.12 2009 kl. 14:15
Eru líka til Krakus súrar gúrkur þar? Þarf að skoða herlegheitin…
baun // 1.12 2009 kl. 14:54
Þær eru mjög góðar, við erum næstum búin með væna krukku af þessu ljúfmeti:)
Rita ummæli