Baun kemur ponku lúin undan helginni, gul blá og marin. Fór í árlegt húsmæðraorlof með vinkonum
mínum, miklum ágætis- og ofurskvísum sem ég hef þekkt síðan í menntaskóla, og sumar lengur. Við renndum í Munaðarnes í blíðskaparveðri og þegar í bústað var komið fylltist ég æskugleði og helgaði mér efri koju. Svo flaug tíminn eins og venjulega í húsmæðraorlofi, vinkonurnar byrjuðu á því að endurskipuleggja bústaðinn, færa til fjögurhundruðkílóa hornsófa og nokkur rúm, þvo búsáhöld og leirtau og raða í skápa og skúffur eftir Djúí kerfi. Þá fyrst gátum við eldað mat, borðað vel og drukkið hóflega. Og auðvitað farið í pottinn og talið stjörnurnar (þær voru 28). Við mösuðum um huggulega hluti, til dæmis minnisleysi sem fylgir breytingaskeiðinu (minnir mig). Þegar veisluþreytan var við það að yfirbuga mig, henti ég gerfitönnunum í glas, vippaði mér í flúnelið og hugðist ganga til náða. Kom þá í ljós að kojuskrattinn var ólýsanlega erfiður uppgöngu og enn verri niðurgöngu og skemmst frá því að segja að eftir þá viðureign sér meira á mér en kojunni.
Í húsmæðraorlofi að ári stefni ég lóðbeint á neðri koju. Maður er enginn api.
Elísabet Arnardóttir
Ummæli (8)
baun // 10.11 2009 kl. 21:41
Ji, var að lesa yfir og fannst þetta allt í einu hljóma eins og ég hafi verið blindfull dettandi ofan úr koju, en þannig var það nú ekki.
En fjandakornið hvað maður er orðinn stirður og bjánalegur í kojupríli.
Kolla // 10.11 2009 kl. 21:57
Þetta hefur eflaust verið pissuhlátursskemmtilegt á að horfa! Í mínu húsmæðraorlofi er maður „dæmdur“ til að vera í efri koju. Sá sem er síðastur í orlof endar í rjáfrinu.
Guðlaug Hestnes // 10.11 2009 kl. 22:30
Ég legg til flatsæng í svona orlofsstússi, þá er lítil hætta á ferðum! Kojupríl er fjandakornið bara fyrir ungskáta. Kærust í bæinn.
parisardaman // 10.11 2009 kl. 22:54
Ah, húsmæðraorlof. Ætti að binda slík í lög. Með eða án efrikoja. Koja er svo kúl orð, gæti verið finnska. Eða eitthvað. Eða ekki.
hildigunnur // 11.11 2009 kl. 08:59
hahaha já svona orlof eru snilld – ég er einmitt löngu búin að fatta þetta með efri kojurnar…
baun // 11.11 2009 kl. 12:09
Húsmæðraorlof eru afar heilsusamleg, ef undan er skilið kojuprílið. Koja koja koja – já, þetta er frábært orð:)
Harpa J // 12.11 2009 kl. 09:13
Í mínu húsmæðraorlofi eru engar kojur. En það er reyndar háaloft.
Sigurbjörn // 12.11 2009 kl. 19:58
Þið hljómið eins og þið séuð komnar með annan fótinn í gröfina.