Grænar baunir

Tær* eiga betra skilið

9.11 2009 | 20:23 | 11 ummæli

Ekki er ég talandi um karlmenn sem lenda í því að eiga viðskipti á nektarstöðum, enda gæti sú umfjöllun skaðað Fótfimisambandið.  Hins vegar tók ég um daginn nokkrar myndir í skóbúðum höfuðborgarinnar.  Gúgglaði svo „shoes for strippers“.  Vitið þið hvaða skór eru gúgglaðir og hverjir fást niðri í bæ?

*á færeysku eru tær=þær

Flokkar: Óflokkað | Facebook



Ummæli (11)

  •   Ósk Gunnlaugsdóttir // 9.11 2009 kl. 21:44

    Óléttu tærnar mínar fóru í verkfall bara við það að skoða þessar myndir :o

    Hvað eru konur að fá borgað fyrir að ganga á þessum prikum?

  •   baun // 9.11 2009 kl. 21:56

    Æ, ég skil ekkert í þessum heimi. Það er eitthvað bogið við hann (enda er jörðin kúla).

  •   Kristín í París // 9.11 2009 kl. 22:13

    Númer 2, 3 og 5 fást niðri í bæ. Bakgrunnurinn kemur upp um það. Ég skil ekki konur sem vilja ganga á svona skóm og get fullyrt að sjálf hefði ég mig að fífli ef ég reyndi.

  •   baun // 9.11 2009 kl. 22:16

    Stundum finnst mér „fegurðarbransinn“ svo fíflalegur að það er varla fyndið, tala nú ekki um klámbullið. Get ekki annað en fundið til vorkunnar þegar ég sé ungar konur skæklast um á svona skótaui.

  •   parisardaman // 9.11 2009 kl. 23:11

    Skækjast um, meinarðu?

  •   baun // 9.11 2009 kl. 23:17

    Það sagði ég nú ekki.

  •   hildigunnur // 10.11 2009 kl. 08:55

    jamm, bakgrunnurinn – annan mun sér maður ekki. Og þó, platform og ekki platform.

  •   Harpa J // 10.11 2009 kl. 13:12

    Efni bandanna er mun vandaðra í ,,bæjarskónum“ sýnist mér.
    Og ég ætla að viðurkenna að mér finnast nr. 3 flottir. Allt of háir – en flottir. Hengið mig svo bara.

  •   Anna Helgadóttir // 10.11 2009 kl. 16:41

    Sammála Hörpu J, mér finnst nr 3 flottir, en ég myndi aldrei kaupa mér þá – einmitt útaf tánum.

    Hinir finnst mér einfaldlega ljótir :)

  •   baun // 10.11 2009 kl. 17:04

    Ég þekki unga konu sem keypti skó nr 3 og ég mátaði þá af því að mér fundust þeir svo fáránlega háir. Mér varð samstundis illt í kálfum, iljum og tám og þar að auki þynntist loftið svo ört að mig sundlaði.

  •   Örn Johnson ´67 // 20.11 2009 kl. 21:25

    Sem karlrembusvín get ég sagt að allir þessir skór gleðja karlmenn. Þeir sem ekki sjá fegurðina í þeim eru einfaldlega gay.

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):