Lagt er til að ráðherrar fari fyrir dómara, verji sig eftir bestu getu og verði svo sakfelldir eða sýknaðir eftir atvikum.
Miðað við umfang hruns og eftirkasta, getur það varla talist ósanngjarnt?
Jú, menn týna eitt og annað til, en fæst mótrök hafa snertiflöt við málið.
Engu skiptir þó sumum þyki lögin kjánaleg og úrelt. Lögin liggja fyrir, með kostum og göllum; alþingi hefur haft áratugi til að lagfæra meinta hnökra.
Engu skiptir þó sekari aðilar sleppi. Það er vissulega grátlegt, en afsakar ekki þá ráðherra sem hér eru til umræðu.
Engu skiptir þó alþingismenn tali um vináttu, því þar eiga þeir við hagsmuni – sannir vinir reyna ekki að bjarga manni frá afleiðingum eigin gjörða, heldur hjálpa manni að viðurkenna mistök og standa svo með manni meðan tekist er á við eftirköstin.
Engu skipta ásakanir um hefndarþorsta, því hér er um hagsmunamál til framtíðar að ræða. Hvort sem viðkomandi ráðherrar verða sýknaðir eður ei, hafa þau skilaboð verið send til framtíðar að ráðherrar geta átt von á kröfu um ábyrgð. Kemur hvorki hefnd né baksýnisspeglum við.
Í hinu stóra samhengi er þetta mál mikilvægara en flest önnur. Það snýst um framtíðina og þörfina á að hreinsa til í íslenskri stjórsýslu. Það snýst um að kenna alþingi og ráðherrum að blekkingar, vanræksla og óhófleg samtrygging valdsins líðast ekki lengur á Íslandi.
Ef kjósendur láta alþingi komast upp með að vísa ákærunum frá, eru þeir ekki einungis að senda ábyrgðarleysið á næstu kynslóðir, heldur mun það festast enn betur í sessi.
Því ef ekki núna, eftir eitt stærsta efnahagshrun veraldarsögunnar – hvenær þá?
Ummæli (17)
Kalli // 28. sept. 2010 kl. 11:16
Hvernig gengur hjá rannsóknarréttinum, landsdóminum og sérstökum saksóknara í draumalandinu UK? Bankakerfið hrundi þar og ég bíð spenntur eftir fréttum af uppgjörinu.
Elfa Jóns // 28. sept. 2010 kl. 11:18
Eins og talað út úr mínu lyklaborði
Seiken // 28. sept. 2010 kl. 11:21
Sammála þér Baldur.
Baldur McQueen // 28. sept. 2010 kl. 11:24
Ég skal glaður rita um ráðherraábyrgð í Bretlandi síðar, Kalli. Þar má margt laga, þó hún sé töluvert virkari en á Íslandi.
En þykir þér þetta virkilega boðlegt innlegg í þessa umræðu?
Takk Elfa og Seiken.
Eyjólfur // 28. sept. 2010 kl. 11:50
„Úrelt“ er ekki í árum talið, heldur stjórnsýslulega, hvað viðvíkur stjórnarskrá, hefð (sem er sterkt hugtak í réttarríkinu) o.s.frv. Lög frá landnámi sem falla að stjórnskipun, þrískiptingu ríkisvaldsins og slíku eru betri en lög frá 2008 sem gera það ekki. Tökum nokkra punkta:
- Ákæruvaldið er pólitískt
- Hver er í hlutverki rannsakandans? Sbr hlutverk lögreglu í réttarríkinu
- Á Íslandi er hlutfall sakfellinga almennt um 80-90% og jafnan ekki lagt af stað í för þar sem sýkna þykir líklegri en ekki
- Eitt dómstig; enginn áfrýjunarréttur
Svar þitt til Kalla er svo sem góðra gjalda vert, en þar ertu að væntanlega að tala um pólitíska ábyrgð – afsagnir basically. Ég held að fáir muni halda fram að offramboð sé á slíku á Íslandi, en það kemur Landsdómi ekkert við. Ertu búinn að lesa þennan ótrúlega sparðatíning sem felst í ákærudrögunum? Sjá http://www.althingi.is/altext/138/s/1502.html
Haraldur Guðbjartsson // 28. sept. 2010 kl. 12:05
Rétt hjá þér þetta mál og þessi niðurstaða hver sem hún verðu mun hafa miklar ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir alþingi og þjóðina.
Anna // 28. sept. 2010 kl. 12:09
Algerlega sammála þér, Vona að almenningur standi nú í fæturnar.
Baldur McQueen // 28. sept. 2010 kl. 12:11
Eyjólfur; ég segi alþingi hafa haft áratugi til að laga meinta hnökra. Rétt eða rangt?
Þú hefur svo þitt álit á ákærudrögum – ég mitt. Dómstólar geta eflaust ráðið fram úr því.
Baldur McQueen // 28. sept. 2010 kl. 12:11
Takk fyrir innlitið, Haraldur og Anna.
Sigríður Guðmundsdóttir // 28. sept. 2010 kl. 12:17
Hjartanlega sammála og samantektin er mjög góð og skýr. Takk.
Heiður // 28. sept. 2010 kl. 12:24
Fullkomlega sammál Baldur.
Þetta er nákvæmlega punkturinn:
„…. Það snýst um að kenna alþingi og ráðherrum að blekkingar, vanræksla og óhófleg samtrygging valdsins líðast ekki lengur á Íslandi….“
Já ef ekki nú þá hvenær ?
Eyjólfur // 28. sept. 2010 kl. 12:26
Rétt er að alþingi hefur haft langan tíma til að bæta úr þessu, en það er líka moot point. Það var ekki gert.
Hvar á þetta svo að stoppa? Nú er t.d. býsna ljóst að Svandís Svavarsdóttir gekk á svig við landslög til að leggja stein í götu máls sem henni líkaði illa – líklega vitandi vits. Telja mætti sitthvað fleira til.
Niels Hermannsson // 28. sept. 2010 kl. 12:35
Ég er algerlega sammála greiningu þinni. Ef Alþingismenn heykjast á að láta reyna á landsdóm yfir fjórmenningunum þá verður tal um „gjá milli þings og þjóðar“ gagnslaust og úrelt. Sú var tíðin að þorri íslendinga taldi sig tilheyra sama samfélagi í lagalegri og siðferðilegri merkingu þess orðs. Sú tilfinning hefur orðið illa úti í gjörningahríð undafarinna 20 ára í íslenskri óstjórn. Ef alþingismenn klikka nú, hafa þeir gert gjána umtöluðu að regindjúpi, ekki bara milli mis“efnaðar“ hópa samfélagsins, heldur milli almennings og vaxandi hóps fólks sem telur sig yfir hann hafinn í öllum skilningi. Afleiðingarnar af skiptingunni sem þegar er staðreynd eru illar, ef alþingsmenn klikka nú verður fjandinn virkilega laus á Íslandi, því ekki verður hægt að tala um íslenkst samfélag, heldur í besta falli um klofna þjóð í vanda, stríðandi fylkingar sem ekki einu sinni tala sama mál þegar kemur að úrlausnarefnum fólks.
Hjörtur Hjartarson // 28. sept. 2010 kl. 12:41
Hárrétt hjá þér, Baldur. Bæði níumannanefndin og allsherjarnefnd hafa farið yfir síðbúnar aðfinnslur við landsdóm. Þær hafa verið hraktar. Dómurinn mun vonandi skera úr um þær einnig.
Annars hefur málflutningur margra sem vilja koma ráðherrunum fyrrverandi undan réttvísinni verið til háborinnar skammar. Ekki síst málflutningur forsætisráðherra, sem fól í sér vísvitandi blekkingar.
Baldur Kristinsson // 28. sept. 2010 kl. 13:53
Ég er sammála Baldri og finnst hann komast að kjarnanum í niðurlaginu:
„…Í hinu stóra samhengi er þetta mál mikilvægara en flest önnur. Það snýst um framtíðina og þörfina á að hreinsa til í íslenskri stjórsýslu. Það snýst um að kenna alþingi og ráðherrum að blekkingar, vanræksla og óhófleg samtrygging valdsins líðast ekki lengur á Íslandi.
Ef kjósendur láta alþingi komast upp með að vísa ákærunum frá, eru þeir ekki einungis að senda ábyrgðarleysið á næstu kynslóðir, heldur mun það festast enn betur í sessi.
Því ef ekki núna, eftir eitt stærsta efnahagshrun veraldarsögunnar – hvenær þá?“
skyr // 28. sept. 2010 kl. 14:13
100% sammála.
Jón Hnefill Jakobsson // 28. sept. 2010 kl. 14:15
Hittir naglann á höfuðið sem og svo oft áður Baldur.
Svo mega þessir blessuðu Alþingismenn fara að hætta að vorkenna sér yfir því að þurfa að taka erfiðar og umdeildar ákvarðanir. Þetta er vinnan þeirra for fucks sake.
Rita ummæli