Valkostur fyrir Sjálfstæðismenn!

Lilja Mósesdóttir er að vísu undanútandsérhlaupari en það var nokkuð ljóst frá upphafi að hún passaði ekki inn í pólitíska mynstrið. Það má hins vegar ekki taka frá henni að hún hefur beitt sér fyrir réttlætismálum svo eftir hefur verið tekið og verður gaman að sjá hvað hún hefur fram að færa á morgun. Framboð hennar ætti ekki síst að vera valkostur fyrir  gamla kjósendur Sjálfstæðisflokksins sem vilja gera upp hrunið,  Eitthvað verða þeir að geta kosið og Lilja réttlætisins er auðvitað prýðilegur valkostur fyrir þá.

11 ummæli

  1. Með fullri virðingu fyrir Lilju, sem vissulega hefur lagt til ágætar tillögur eins og t.d. lyklaleiðina, þá er útilokað að vinna með henni. Hún getur ekki tekið ákvörðun, finnst alltaf að eitthvað vanti upp á og getur því ekki lokið málum. Þess vegna er það ábyrgðar hlutur af þér að vísa kjósendum á þennan valkost.

  2. Eyjólfur

    Mér sýnist nú ríkisstjórnin búin að standa sig ágætlega við að reka þá alla heim aftur.

  3. En hvað með gamla kjósendur Samfylkingarinnar sem vilja gera upp hrunið? Eitthvað verða þeir að geta kosið og fyrir löngu útséð að sitjandi ríkisstjórn hefur enga löngun til að leggja út í þetta uppgjör.

    Eitthvað segir mér að Lilja muni sækja jafn mikið ef ekki meira fylgi til vonsvikinna fyrrum stuðningsmanna ríkisstjórnarinnar, en það er etv. of beizkur kaleikur fyrir suma að bergja á.

  4. MARTEINN

    Birgir samfylkingarfólk vill ekki gera upp hrunið heldur lifa áfram í þeirri trú að þeirra sé mátturinn og dýrðin að eilífu AMEN.

  5. Held að Lilja verði ágætur valkostur fyrir heiðarlega kjósendur, sem vilja og geta treyst því að stjórnmálamenn ætli að vinna eftir stefnu sinni.

    Ég held því að margt af kjósendum VG muni flykkja sér um Lilju Mósesdóttur. Sama á eflaust líka við heiðarlegt Samfylkingarfólk sem hefur verið illa svikið af sínum flokki af sviknum loforðum í lagfæringu á himinháum og óréttlátum vöxtum af húsnæðislánum sínum. Einnig allir þeir fjölmörgu sem vilja að þjóðin standi fyrir utan ESB, þeir munu líka geta treyst Lilju Mósesdóttur í því máli.

  6. Lilja er valkostu þeirra sem vilja gömlu gildin aftur.

    Ég hef margoft beðið hana um aðstoð í málum sem snúa að því að jafna stöðu almennings og auðmanna en hún hefur ítrekað greitt því atkvæði sitt að veita auðmönnum margvíslegar ívilnanir sem almenningi bjóðast ekki.

    Hvers vegna? Jú, hún segir að þessi ójöfnuður sé nauðsynlegur til að endurreisa landið…

    Svoleiðis rök eru bull og augljóst að hún vill ekki aðrar breytingar en þær að komast til valda og raka að sér völdum.

  7. Guðbjörn Guðbjörnsson

    Illa þekkir þú fyrrverandi sjálfstæðismenn, segi ekki meira!

  8. Það er líklegt að Sjálfstæðismenn fari að kjósa gamaldags sósíalista…

  9. Gústaf Níelsson

    Draumórar ykkar framsóknarkommanna eru hreint alveg kostulegir. Í mesta lagi hefur þú sjálfur úr meiru að moða í kjörklefanum í næstu kosningum Baldur.

  10. Baldur Kristjánsson

    Mér tókst þó að draga ykkur draugana Gústaf og Dude að lyklaborðinu. Kv. B

  11. Lilja er ágæt en þessi uppákoma með nýja flokkinn er næstum fáránlegt, ráða ekki einu sinni við að korleggja nafnið með sóma!

    Af hverju ættu kjósendur að kjósa flokk fólks sem blaðrar og blaðrar allan daginn?

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af þremur og átta? Svar: