Evrópa hætt að loga!

Síðastliðinn mánuð hefur Evrópa skíðlogað, óeirðir á götum úti, esb að splundrast, evran að hrynja, Merkel að taka völdin.  Já, ég keypti moggann í mánuð.  Nú er ég hættur því og landið er að rísa. Allar þjóðir innan Esb telja sig betur staddar innan en utan bandalagsins, evran með stöðugustu gjaldmiðlum heims. Evrópuríkin flest í góðum gír og vinna faglega úr sínum málum. Stjórnmálamenn sem þrífast á makríldeilum eru menn gærdagsins. Sameginlegir hagsmunir guðspjall dagsins.

2 ummæli

  1. Emil Zola

    Guðspjall dagsins, gærdagsins og morgundagsins, um aldir alda, allt til enda veraldarinnar.

  2. Stórríki Commísarana í Brussel lifi, í Guðs nafni ! AMEN !

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af átta og fimm? Svar: