Ríkisstjórn hristir af sér hrakspár!

Ríkisstjórnin á víst afmæli í dag. Hún er um margt merkileg. Hún
tekur við versta búi síðan í kreppu millistríðsáranna. Hún hefur  mátt búa við ósvífnasta umtal allra tíma. Hún er með fleirri útundansérhlaupara  en nokkur önnur ríkisstjórn. Hún kaupir sér ekki vinsældir með ábyrgðarleysi.  Hún er  að meirihluta til skipuð konum.  Forsætisráðherran er kona og það er í fyrsta skipti hér á landi.  Og það sem merilegast er:  Ríkisstjórnin er að hrista af sér allar hraksspár  og er að ná mjög góðum árangri. Er að standa sig mjög vel.

18 ummæli

  1. Við skulum vona að þúsundirnar sem flúið hafa land fái numið þann boðskap að ríkisstjórnin sé að standa sig vel.

    Svo ekki sé nú minnst á þær tugþúsundir heimila í landinu sem ná ekki endum saman vegna atvinnuleysis, stökkbreyttra lána, verðtryggingar og ofsköttunar.

    Litlu verður Vöggur feginn.

  2. einmitt, þess vegna er verðbólgan yfir 6% ;)

  3. Við eigum að vera málefnaleg og sanngjörn.

    Þetta er mjög góð grein hjá Baldri.

  4. Baldur Kristjánsson

    Það varð hrun rósa mín! Kv. B

  5. Tek undir hvert orð Baldur. Það hefur einnig verið gríðarlegur kostur að fólk hefur getað farið utan og fengið vinnu í stað þess að veslast upp í atvinnuleysi hér. Síðar kemur þetta fólk forframað heim og lætur að öllum líkindum gott af sér leiða. Það er einmitt tilgangur hins opni vinnumarkaðar EES að gera þetta kleift, að miðla vinnukrafti á milli svæða eftir atvinnuástandi á hverjum stað.

  6. Mikið rétt: það „varð hrun“. Það þýðir hinsvegar ekki að þessi ríkisstjórn hafi sýnt ásættanlegan – hvað þá „góðan“ – árangur við að takast á við eftirstöðvar þess. Eftir hrun hefur nánast allt gengið á afturfótunum og hver mistökin rekið önnur; axarsköftin og klúðrin hrannast upp og öll orka stjórnarinnar farið í almannatengsl og innbyrðis átök í stað þess að vinna fyrir þjóðina í landinu.

    Allir þeir sem taka pólitísku gleraugun niður og skoða fordómalaust hvernig hér hefur verið haldið á spilum eftir hrun hljóta að viðurkenna að staða lands og þjóðar væri allt önnur – og betri – ef hér hefði almennileg ríkisstjórn, jafnvel þjóðstjórn vel gefinna einstaklinga, setið við völd.

    Jú, vissulega tók ríkisstjórnin við erfiðu búi en hefur á undraverðan hátt tekist að klúðra hverju málinu á fætur öðru svo gjörsamlega að þjóðin er nú í helmingi verri stöðu en var.

    Nú veit ég ekki hvernig er með ykkur hin, en á mínum vinnustað eru takmörk fyrir því hversu lengi menn fá að klúðra málunum og samtímis afsaka sig með því að starfið sé bara „svona erfitt“. Eftir þrjú ár í starfi en getandi samt ekki sýnt fram á neinn árangur, heldur þvert á móti gert stöðu fyrirtækisins sýnu verri … ég held að á flestum vinnustöðum væri slíkt fólk látið taka pokann sinn og þótt fyrr hefði verið.

    Enda er að fjara býsna hressilega undan þessari „ræfilsins“ stjórn (svo ég beiti fyrir mig hjartahlýju orðalagi stjórnarþingmanna); klappstýrur stjórnarinnar fáar og daprar í bragði, áróðursstríðið löngu tapað.

  7. Pétur postuli

    „Það er rétt hjá Lilju Mósesdóttur. Það er sanngirnishalli í Þjóðfélaginu. Réttlætinu er áfátt. Þeir sem sem áttu sitt í íbúðarhúsnæði sínu voru rændir í hruninu (eins og svo margir aðrir). Mikilvægt skref til réttlætis er að öll lán með veði í íbúðarhúsnæði verði skrúfuð niður um 15-20%. Rök þeirra sem þetta mæla eru sanngirnisrök. Þessi aðgerð þarf ekki síst að ná til þeirra sem fjárfestu af skynsemi í eigin íbúðarhúsnæði og hafa staðið í skilum. Og ræningjana þarf að elta uppi og gera þá að betri mönnum. Það á ekki að líða það að þeir flækist um á lúxsusbílum og búi í glæsivillum. Það er hins vegar gott í öllu fólki. Þeir gætu orðið góðir bakarar og slökkviliðsmenn (með fullri virðingu fyrir þeim stéttum) svo vísað sé í Kardimommubæinn.“

    Svo mörg voru orð séra Baldurs í síðasta pistli. Meinti hann ekkert með þeim?
    Hringsnýst nú séra Baldur og segir nú að ríkisstjórnin sé „standa sig mjög vel.“
    Hvað sagði Prédikarinn um hina hringsnúandi menn, sem séra Baldur nú?
    Að þeir væru aular, var það ekki séra Baldur?
    Hvað hefur ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur gert til að koma á réttlæti?
    Hefur hún ekki bara hringsnúist í kringum auðróna og fjárglæpamenn og talað tungu þeirra um að „því miður getum við ekkert meira gert“ (en að dansa í kringum glæpi þeirra og segja hallelúja)?
    Er ekki kominn tími til að séra Baldur lesi nú Prédikarann yfir hausamótum frú Jóhönnu og minni hana á að aldrei muni frú Jóhanna, sama hvað hún puði og puði með bankaglæpamönnum, öðlast fegurð lilja vallarins?

  8. Pétur postuli

    En það al-dapurlegasta er, að séra Baldur virðist alveg gleyma því að bæði Össur og f´ru Jóhanna sátu í hrunstjórninni og frú Jóhanna mas. í Fjármálanefnd ríkisstjórnar Geirs H. Haarde, ásamt ISG og ÁM. Frú Jóhanna ætti því að axla sína ábyrgð og fara fyrir Landsdóm.

  9. Sigurgeir St. Magg.

    Finnst þér það, Baldur?

    Hvað með atvinnumálin? Þau eru víst ekkert á dagskrá á næstunni.

    Finnst þér 7-8% atvinnuleysi þar sem meirparturinn eru karlar sem eru atvinnulausir, vera ásættanlegt?

    Þessu ástandi vill ríkisstjórnin viðhalda með því að hafa einungis sérúrræði fyrir konur í atvinnumálum.

    Ennfremur hefur þessi ríkisstjórn lögfest jákvæða mismunum á milli kynjanna þar sem að verulega hallar í karla í samfélaginu.

    Er það góður árangur?

    Og allar þær þúsundir manna sem flýja land til að finna sér lífsviðurværi og straumur þessi heldur áfram.

    Er það merki um góðan árangur?

    Ríkisstjórnin er búin að hafa þrjú ár til koma atvinnulífinu í lag eftir hrun, en hefur verið á móti ýmsum erlendum fjárfestingum vegna þess pólitískrar hugsjónavillu eða vegna þess að verulega hallar á konur við þessar ákveðnu fjárfestingar.

    Ríkisstjórn sem ekki nær atvinnuleysi niður fyrir 3%, fær falleinkunn hjá þjóðinni.

    Ríkisstjórn sem innleiðir jákvæða mismunum gegn karlmönnum, á ekki skilið að fá atkvæði frá neinum karlmanni.
    Þeir karlmenn sem kjósa slíka ríkisstjórn, eru að svíkja sitt eigið kyn.

  10. Baldur Kristjánsson

    Það varð hrun muniði strákar.(Pétur postuli steig nú ekki alltaf í vitið). Muniði’ hér hrundi allt. ,,svokallað“ hrun.

  11. Pétur postuli

    Mjög fróðlegt að lesa hvað séra Baldur segir um (Símon) Pétur postula.
    Skv. séra Baldri er kirkjan byggð upp af vitgrönnu bjargi, eða hvað?
    Mikið er samt séra Baldri gott að vera staðfastur í trúnni á frú Jóhönnu.

    Lof sé dýrð, hólí Jóhanna og postulinn Steingrímur og þá rís landið?
    Sumarið 2010 skrifaði Steingrímur postuli 6-pistla ritræpu um landris
    og ég er þess viss að séra Baldur hefur trúað þá jafn blint sem nú.

    Að blanda svo skefjalaust saman prestsskap og pólitískri blindu
    er ekki til þess fallið að auka manni virðingu fyrir kirkjunni.

  12. Baldur Kristjánsson

    Ég ber litla virðingu fyrir mönnum eins og þér sem geta ekki talað við mig án þess að vera sífelldu kirkju og trúarbulli. Ég tel að þú sért vitgrannur maður með sama hætti og sá sem segir brandara um pípulagningamenn í hvert skipti sem hann hittir píparann sinn. Vitgrannur og leiðingjarn.

  13. Baldur Kristjánsson

    og snautaðu út af heimasíðu minni og gerðu þarfir þínar einhvers staðar annars staðar.

  14. „Það varð hrun, strákar … það varð hrun!“ – þetta eru einu mótrök síðuskrifara og býsna döpur eru þau.

    Það er enginn að mótmæla því að það hafi orðið hrun. Látum liggja milli hluta hver bar ábyrgðina – vissulega hrundi hérna allt. Hættum svo aðeins að tala um hrunið, heldur tölum um eftirköst þess. Hættum (bara augnablik) að tala um fortíðina en tölum aðeins um núið: síðuskrifari heldur því nefninlega fram að sitjandi ríkisstjórn hafi staðið sig afar vel eftir hrun, og þar stendur hnífurinn í kúnni, því þar er sjálfsagt yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar hrópandi ósammála.

    Ástandið er eins og glæpamenn hafi kveikt í húsi og síðan hlaupist á brott. Slökkviliðið mætir á staðinn, býsna roggið og ánægt með sig og tilkynnir fréttamönnum að nú eigi aldeilis að taka til hendinni, slökkva bálið, byggja ennþá betra hús og koma böndum yfir brennuvargana.

    Síðan líða árin. Slökkviliðið gerir ekkert af viti nema hringsnúast um sjálft sig og rífast innbyrðis. Hluti slökkviliðsins tefur fyrir öllum aðgerðum; annar hluti vill fá slökkvilið frá öðrum löndum; flestir slökkviliðsmennirnir, sem eru orðnir nokkuð vil aldur og vinnulúnir, eru hinsvegar önnum kafnir við að tryggja sitt pláss og gæta þess því vel og vandlega að yngri og kröftugri slökkvuliðsmönnum sé haldið frá og komist hvergi að. Annað slagið tala svo yfirmenn slökkviliðsins hróðugir um hversu vel gangi að slökkva, en sannleikurinn er sá að bálið geisar sem aldrei fyrr: húsið er löngu hrunið, eldurinn er farinn að læsa sig í nærliggjandi hús og íbúar þeirra farnir að flytja á brott.

    Ef einhver viðrar þá skoðun að slökkviliðið sé ekki að standa sig neitt sérstaklega vel, þá líta yfirmenn þess hneykslaðir upp og segja: „Það var kveikt í! Vitið þið það ekki?“

    „Uuu, jú“, segir þá þjóðin, „en okkur finnst ganga mjög illa að slökkva. Sjáiði bara: eldurinn er að magnast ef eitthvað er, en samt eruð þið búin að væflast hérna um í þrjú ár? Á ekki að fara að taka til hendinni?“

    Þá benda slökkviliðsmenn fingrum ásakandi og segja: „Nú já … svo þú vilt fá brennuvargana aftur?“

    „Uuu, nei“, segir þá þjóðin, „bara einhvern annan en ykkur: einhvern sem getur slökkt bálið“.

    En ekkert gerist. Bálið geisar áfram og magnast sem aldrei fyrr; slökkviliðið gerir ekkert nema hrósa sér fyrir góðan árangur og lætur sem það sjái ekki að nú er öll húsalengjan farin að loga. Íbúarnir enda nánast allir búnir að forða sér.

    En endrum og eins bloggar einhver um hversu frábærlega slökkviliðið sé að standa sig. Þá líður slökkviliðinu vel.

    (Með fullri virðingu fyrir alvöru slökkviliðsmönnum, sem vinna frábært starf við erfiðar aðstæður.)

  15. Frábær samlíking hjá Birgi en Baldur, í hverju flest hinn „mjög góði árangur“? Ég bý hérna og ég fæ ekki séð að það sé neitt að gerast annað en það að stjórnarflokkarnir rífast innbyrðis vegna „útundasérhlaupara“ hvors annars?

  16. Baldur Kristjánsson

    Auðvitað er ástandið ekki ásættanlegt. En flestar hagtölur lofa góðu og fólk er farið að hagasér líkt og fyrir hrun. Gleymum því ekki að biðraðir voru líka fyrir hrun og ,,góðærisríkisstjórn“ framsóknar og Sjálfstæðis stóð í harðvítugum deilum við öryrkja. Erlendir spekingar eru og á einu máli um,góðan árangur ríkisstjórnar J & S.
    Áhyggjuefnið er auðvitað að við höfum lítið lært af hruninu og þá sérstaklega stjórnarandstaðan.

  17. Hrekkjalómur

    Þetta er athyglisverð umræða. Það væri reyndar athyglisvert að vita hvernig önnur ríkisstjórn hefði glímt við endurreisn eftir hrun. Núverandi stjórn vinnur einna helst úr hlutum sem fyrri ríkisstjórn kom á, svosem gjaldeyrishöftum, samstarfi við AGS og Icesave samningum. Gjaldmiðill okkar er ónýtur sem þýðir að það koma engir fjárfestar inn í landið á meðan svo er – hér er fjöldi fjárfesta fastur á bak við gjaldeyrishöft. Stórframkvæmdir segja sumir. Já, einmitt! Það er einmitt það sem okkur vantar núna. Samninga um stórframkvæmdir þar sem við yrðum að gefa orkuna til að ná þokkalegum samningi.
    Held það sé nær að vinna úr stöðunni hér heima við áður en við gefum frá okkur Gulleggin.

    Hrekkjalómur

  18. Pétur postuli

    Takk fyrir hlýleg orð í minn garð frá ríkisstarfsmanninum og safnaðar fé-hirðinum.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af fjórum og tveimur? Svar: