Hvernig víkur því við að engin sæmilega hæf manneskja stígur fram í sviðsljósið, lýsir því yfir með þeim hætti að eftir verði tekið að hún ætli að verða forseti Íslands. Núverandi forseti hafi beðist undan því að vera áfram, hafi skilað eftirminnilegri forsetatíð og nú sé kominn tími fyrir nýja hugsun, nýja nálgun, nýja manneskju. Í staðinn högum við okkur eins og Ólafur sé hálfguð en ekki bara klár persóna og þeir sem í íslensku samélagi hafa gerst málaliðar fjarstöðu við heiminn, málsvarar krónunnar, tollamúra og hrunsafneitarar hafa í hópum farið niður á hnén og grátbeðið guðinn að vera áfram og fara þar samhnjáa gamlir framsóknarjálkar með þann fyndnasta í broddi fylkingar, sanntrúaðir frjálshyggjumenn einnig með þann fyndnasta í fararbroddi og ófyndnir forystumenn sósíalista í landinu bláa upp úr miðjum síðasta áratug.
Baldur Kristjánsson
Ein ástæða gæti verið peningaskortur. Þetta framboð kostar sitt. Önnur ástæða verið áhugaleysi á embættinu. Sem er vel skiljanleg í ljósi þeirrar „gengisfellingar“ sem á því hefur orðið í tíð ÓRG.
Og svo eru eflaust fleiri ástæður.
Ég held að Möðruvellingarir vilji taka upp gerð Múmía hérlendis.
Ein ástæðan er sú að menn sjá að embættið er hégómi einn.
Hver vill helga líf sitt hégóma?
Við erum föst í limbói. Enginn vill bjóða sig fram því að það veit ekki hvort Ólafur býður sig fram (það þorir ekki þá á móti honum því að hann vinnur sennilegast alla ef hann býður sig fram). Hann sjálfur vill ekki útiloka framboð því að hann vill sjá hvort nægur stuðningur sé enn við hann(þá mun hann bjóða sig fram) eða hvort sterk framboð koma. Senaríóið mun eflaust verða það að hann býður sig aftur fram á seinustu stundu vegna þess stuðnings sem hann hefur fengið (og að ekkert sterkt framboð hefur litið dagsins ljós) og hann vinnur kosningarnar
Mjög rétt.
Þetta er óskiljanlegt.
Jafn óskiljanlegt og að einhver sæmilega óbrjáluð manneskja skuli ekki stíga fram og lýsa sig tilbúna til að taka við formennsku í Samfylkingunni.
Flottur formaður þar Rósa mín!
Tja, ætli nokkur sæmilega skynsöm manneskja langi í slíkan leðjuslag?
Kveðja að norðan.
Mér skilst á almannatengslasérfræðingum að það sé lítil kænska fólgin í því að boða framboð sitt til forsetaembættisins löngu áður en forsætisráðuneytið hefur auglýst framboð og kjör til forseta Íslands, en það gerist venjulega í mars. Þvert á móti sé klókt að neita öllum sögusögnum um framboð þar til rétti tíminn sé kominn og fjöldi áskorana hafi borist. Er þetta annars ekki leikur sem ÓGR er að leika. Sá sem ætlar í sitjandi forseta hefur ekki efni á að leika af sér.
Ólafur Ragnar hálfguð??? Þetta er nú hreinasta guðlast fyrir mér. Hann gæti kannski fengið að sveifla pálma til svölunar alvöru guð, ef hann væri með lokaðan munninn… en nær kemst hann ekki. Fussum svei ágæti Baldur;)
Hver segir að Ólafur sé hálfguð? Það stendur hvergi ágæta Helga, þvert á móti! Kv. B
Ágætis spurning hjá þér, ég er alveg jafnhissa og þú á þessu.
Þar sem að Ólafur okkar er búinn að gera forseta embættið virkt verð ég að segja að ég myndi vilja sjá eftirmann hans á svipuðum nótum, bara mikið, mikið grimmari í því að framfylgja þeirri stefnu Ólafs að vera öryggisventill fyrir þjóðina gagnvart spilltum og hrokafullum embættismönnum og ráðherrum.
Spurning hvort að við ættum ekki bara að leyfa Ólafi að tilnefna arftaka sinn með þessum formerkjum fyrir þjóðina.
Líkur sækir líkann heim, hann hlýtur að þekkja einhvern sér yngri og grimmari karlinn.
Um 25 þús. manns eru á annarri skoðun,og fer fjölgandi.
Ég mun svo sannarlega kjósa Ólaf Ragnar aftur ef hann býður sig fram, við þurfum mann eins og hann til að standa með þjóðinni.
Ætli það sé ekki bara vegna þess að þetta sæmilega hæfa fólk vill bara hafa ÓRG áfram, enda búinn að standa með þjóðinni, sem er meira en ríkisstjórnarræfillinn.
„Standa með þjóðinni…!“ Jésús, Pétur og postularnir allir! (Og ég treysti því að Séra Baldur fyrirgefi mér þetta komment!)
Ég segi fyrir mig að ég mundi kjósa hann aftur – og aftur! Flottast væri náttúrlega að við fengjum einhvern yngri og ENN grimmari eins og Guðmundur Þórarinsson segir.
Ólafur hefur gjörbreytt stöðunni úr vemmilegu embætti, sem var að sligast undan þjóðarrmebingi og tilgerðarlegri ást á íslensku tungumáli. Vigdís vakti jú athygli út um allan heim, en EKKI vegna þess hvað hún væri mikill skörungur heldur FYRST OG FREMST vegna þess að hún var KONA !!!!.
Guð forði íslenskri þjóð frá því að fá nýjan forseta, sem ekki stendur með þjóðinni og ætlar sér að snúa embættinu til fyrri vega.
Þér er frjálst að bjóða þig fram krafta þína Baldur, ef þú þorir
Þú værir betri!
Guðmundur Þórarinsson segir:
ég myndi vilja sjá eftirmann hans á svipuðum nótum, bara mikið, mikið grimmari í því að framfylgja þeirri stefnu Ólafs að vera öryggisventill fyrir þjóðina gagnvart spilltum og hrokafullum embættismönnum og ráðherrum.
Spurning hvort að við ættum ekki bara að leyfa Ólafi að tilnefna arftaka sinn með þessum formerkjum fyrir þjóðina.
Nokkuð sérstakt að sjá menn stinga upp á EINVELDI í þessari umræðu. Kannski getum við breytt lýðveldinu í konungsríki og krýnt Ólaf sem konung yfir Íslandi??
Ég spyr, hvaða töfralausn höfum við til að ekki kjósist í valdameira forsetaembætti en við höfum haft spilltur og hrokafullur einstaklingur?
Hvað er Salvör Nordal að hugsa?
Nordal, Eldjárn, Hafstein, Schram, Arnalds, Stephensen, Sivertsen, Blöndal…….halló, getum við ekki bara fengið einhvern Jón Jónsson?
Það gafst nú vel með Eldjárn
Einar Karl, við höfum enga töfralausn á því.
Sá sem við neyðumst til þess að kjósa verður að vera Homo Sapiens ekki satt?
Við gætum allteins sagt að við þyrftum syndlausan mann í þetta embætti, veistu um einn slíkann?
Hmmm….kosturinn við algert einveldi væri náttúrulega sá að við ættum mun auðveldara með að finna okkur blóraböggul ef eitthvað færi úrskeiðis hjá okkur. Þyrftum þá að reka þann varnagla við í stjórnarskránni að við mættum dæma hann til dauða ef hann misstigi sig eitthvað að ráði, það yrði fljótafgreiddara en að kjafta hann í hel.
Svo værum við auðvitað laus við uppihaldið á restinni af liðinu, engir embættismenn og sligað stjórnkerfi, bara kóngurinn okkar og nýr IBM til að reikna fyrir hann helstu ákvarðanir.
Eða þurfa kannski allir bara að fara að sjá að lífið snýst um að vera til fyrir aðra, ekki bara að bóna bossann sinn.
Þá dettur mér bara einn í hug, það er Jesús Kristur.