Meinfýsi, illgirni og hatur vaknar upp!

Það er furðulegt þetta hatur, meinfýsi og illgirni sem vaknar upp í mönnum slysist maður til að mæla ESB bót.  Þessi umræða framkallar það versta í fólki sama hvort um er að ræða svokallaða háttsetta stjórnmálamenn eða illa skrifandi unglinga.  Þetta er furðulegt í ljósi þess að hver einasta þjóð sem þar hefur inn gengið telur hag sínum betur borgið en ella enda er ESB fyrst og fremst bandalag utanum frjáls viðskipti en hefur einnig einbeitt sér að málum sem þjóðríkin hafa áhuga á í orði en síður á borði eins og mannréttindum (FRA) og réttindum neytenda.  Nú er svo að leiðirnar eru aðeins tvær sem hinn raunverulegi samtími bíður upp á.  Að vera innan bandalagsins með réttindum og skyldum sem því fylgja eða standa utan þess og beygja sig að samþykktum þess en vera áhrifalaus um þær. Þriðja leiðin er að vísu til að gefa lítið fyrir umhverfi sitt og fara ekki að leikreglum sem þar ríkja en við ættum að líta í eigin barm og skoða hvort við viljum eyða lífi okkar og barna okkar í slíkan barning og þá afhverju?

20 ummæli

  1. Þetta hefur minna með ESB að gera heldur en þorparabraginn í litlu samfélagi, sem telur sér ógnað af ferskum vindum sem koma utan af hafi. Þetta er í takt við eðli þess að tilheyra kirkju:

    Þeir sem verma kirkjubekkina vilja láta staðfesta að þeir séu á réttri leið og að allt sé á góðri leið.

    Þeir sem kenna, eru gagnrýnir og vilja fá fólkið sem þarfnast öryggis að spyrja grundvallarspurninga sem það vill ekki takast á við.

    Ef þú gerir þetta óhönduglega, lendirðu í varnarviðbrögðum fólks.

    Stundum lendirðu alltaf í varnarviðbrögðum, sérstaklega í samfélagi þar sem ekkert er öruggt nema klisja gærdagsins.

  2. Ómar Kristjánsson

    þetta sýnir hve þjóðrembingur er ótrúlega sterkt afl á íslandi. Serstaklega í afskekktum byggðum útá landi. þar er þetta miklu sterkara og almnnt samþykktara en í Rvk.

    Skilgreining á þjóðrembingi í þessu samhengi er sú trú að Ísland og íslendingar séu einhvernveginn frábærari en annað fólk og þá jafnvel genatískt. Útlendingar eru vondir og vitlausir og best að tala alls ekkert við þá. Ef svo mikið ef yrt er á útlendinga – þá er hætta á ferð. Menn geta orðið háðir því að tala við útlendinga.

  3. Sjálfsupphafning hjá esb-sinnum er viðbjóðsleg, og því fylgir auðvitað líka að líta niður á og rakka niður þá sem eru ekki sammála.

    „Þriðja leiðin er að vísu til að gefa lítið fyrir umhverfi sitt og fara ekki að leikreglum sem þar ríkja…“
    ..ef maður vill ekki láta stjórna sér með fjarstýringu frá Brussel þá er manni sama um umhverfið og vill brjóta allar reglur?
    Upplýstu áfram um þinn innri mann og þroska, Baldur. Go right ahead!

    Carlos: „Þeir sem kenna, eru gagnrýnir og vilja fá fólkið sem þarfnast öryggis að spyrja grundvallarspurninga sem það vill ekki takast á við.“
    Hahahaa…. þið eruð alveg ótrúlegir.
    Thomas Jefferson : Þeir sem vilja fórna frelsi fyrir öryggi, munu hvorki öðlast frelsi né öryggi.
    Hann var að tala til þín Carlos.

    Ramó
    …já er maður þjóðrembingur og lítur niður á aðra, ef maður vill ekki erlend yfirráð.

    Ykkur … er … einfaldlega … ekki … viðbjargandi!

    Sem betur fer er meirihluti þjóðarinnar ósammála þessu rugli í ykkur, en ekki að það hafi nein áhrif á heimtufrekjuna og hrokann í ykkur. Annað dæmi um ykkar innri menn.

    Blessaðir flytjið bara til ESB og lifið þar í himnesku sælunni ykkar, og látið okkur í friði. Þetta röfl í ykkur er hvimleitt til lengdar.

  4. Haukur Kristinsson

    @Ómar. Þjóðrembungurinn er síst minni hjá ykkur á mölinni fyrir sunnan.
    Það var enginn sveitamaður sem sagði eftirfarandi;
    - the only nation on earth to defeat the British Navy, not once but three times. With this unique track record, it is no wonder that young entrepreneurial Vikings have arrived in London full of confidence and ready to take on the world!

    I am convinced that our business culture, our way of thinking and our behaviour patterns, is rooted in our national identity.

    We are succeeding, BECAUSE WE ARE DIFFERENT.

    Það var nú enginn annar en Ólafur Ragnar, sem bullaði þetta í Londin 2005 að viðstöddu miklu fjölmenni.

  5. Palli,
    Hvaða frelsi ert þú að tala um? Fresli gæslummanna sérhagsmuna að nauðga fólki alla ævi þess? Ísland er viðbjóðslegt klíkusamfélag þar sem sérhagsmunir ákveðinna hópa ráða öllu.
    Það er ekkert frelsi á Íslandi.

    Væl um „erlend yfirráð“ við inngögnu í ESB bera vitni um þjóðernisrembing og einangrunarhyggju. Hræðsla við vonda útlendinga lætur þetta fólk pissa á sig.

  6. Guðjón E. Arngrímsson

    Þjóðrembingur er góður í hófi þó. Svona eins og sjálfsálit. Enginn kemst neitt án þess að það sé til staðar. Við sem smáþjóð höfum nú komist ýmislegt á rembingnum.

    Því miður hafa menn sem eru að stýra okkur inn í bandalagið rúið sjálfa sig öllu trausti. Fólk í stórum stíl treystir forrystukálfunum ekki lengur fyrir því að þeir séu að bera hag þjóðarinnar fyrir brjósti. Menn hafa það á tilfinningunni, að þeir séu að skara eld að eigin köku fyrst og fremst eins og áður þegar þeir voru að skenkja hluta úr almannaeign til ákveðinna aðila. Þetta þekkjum við öll sem viljum þekkja eitthvað.

    Varðandi útlendinga. Íslendingar eiga ákveðinn þjóðararf. Því verður ekki mótmælt, nema ef afnema á allan rétt til arfs. Það eru ótrúlega margir og stórir hlutar úr þessum þjóðararfi, þar sem útlenskir eru komnir með klærnar í. Hvernig það hefur gerst má spyrja um. Mín svör við því eru aðeins fyrir mig og þannig held ég að sé með flesta. Með galopnun landamæra óheft, hefur skapast hér ákveðið ástand sem ég er ekki viss um að menn hafi séð fyrir, en til vara, að þeim hafi verið skít sama. En sennilega er löggæslan betur í stakk búin til þess að svara þessu með tölfræði án rembings…

    Ja, ég segi nú svona…

  7. Ómar Kristjánsson

    Þjóðrembingur í þessu samhengi er alltaf slæmur og til skaða. Always.

    Haukur, já og hvaðan er þessu maður? Jú, frá einhverju krummaskuði rétt hjá Grænlandi! Halló. Rétt hjá Grænlandi.

    Eg er samt sem áður ekki að segja að þessi tendens sé ekki til staðar í Rvk. Eg er að segja að hann, þjóðrembingurinn, sé mun minna áberandi í Rvk og mun minna mikilvægur. þetta er svo mikilvægt í þessum afskekktu byggðum og fólk almennt trúir statt og stöðugt að þetta sé pjúra sannleikur.

    Eg skal segja ykkur það að ég hef óbeint rannsakað þetta. Maður dregur ekkert í efa frábærleika íslendinga og vonsku útlendinga í afskekktum byggðum útá landi. það þýðir bara almenn leiðindi og jafnvel á maður á hættu að verða laminn vegna slíks tals. þetta er bara eins og – hvað heta þeir þarna í Bandaríkjunum – Reddnekkar eða eitthvað.

  8. Ómar Kristjánsson

    Og ps. Afhverju hada menn að svo margir landsbyggðaringmenn séu eins og þeir eru? Afþvíbara? þeir eru svona þjóðrembingsbúrar. Jón Bjarna, Atli, Ásmyndur etc. etc. Halda menn að það sé bara tilviljun að þeir séu svona? Óheppni? Nei, það er það ekki. þessir menn endurspegla afskekktu og einangruðu samfélögin er þeir koma frá.

  9. Jónas, ég er ekki fylgjandi núverandi ástandi á Íslandi. Það þarf vissulega að taka til, breyta og bæta. Það verður ekki gert með því að fleygja sjálfstæði og fullveldi út um gluggann, til Brussels.

    Ég er mikill áhugamaður um persónukosningar og beint lýðræði. Það breytir hins vegar engu hvaða lýðræði er við lýði á Íslandi, ef við værum inn í ESB. Brussel stjórnar öllu. Punktur. Að halda því fram að við þurfum inn í ESB til að hafa áhrif á löggjöf, með okkar 0,8% vægi, en svæsnasti og heimskasti lygaáróður sem nokkru sinni hefur verið haldið á lofti.

  10. Og Ómar, þú ert ruglaðri og vitlausari en orð fá lýst.

  11. Gústaf Níelsson

    Þótt í eina tíð hafi allar leiðir legið til Rómar og hin síðari ár til Brussel, en það nú samt svo Baldur minn, að nafli alheimsins er alls ekki í Evrópu – Evrópa er miklu fremur eins konar útnári og afkimi. Ósammála?

  12. Baldur Kristjánsson

    Gott innlegg. En erum við ekki dæmd til að vera hluti af útnáranum með einhverjum hætti? Kv. Baldur

  13. Ákvað þessi palli að stíga fram fyrir skjöldu og láta fyrirsögn pistilsins rætast á versta mögulega máta eða er hann kannski bara svona illilega truflaður á geði? Nú mun ég auðvitað fá gusu úr einhverju graftarkýlinu sem hann hefur á sálinni, en það verður bara að hafa það.

  14. Baldur Kristjánsson

    Palli. Þú ættir að slaka á og skrifa svo undir fullu nafni. Þú yrðir marktækur maður fyrir vikið og væntanlega kurteisari. Kv. Baldur

  15. Þú gætir náttúrlega tekið upp þá ritstjórnarstefnu, Baldur, sem Harpa Hreinsdóttir tók upp í hitamáli sem hún skrifar um þessa dagana. Það er að fleygja öllum ummælum fólks sem gerir ekki grein fyrir sér.

  16. Baldur Kristjánsson

    Það er náttúrulega rétt. Mér bara leiðist umstangið jafnmikið og mér leiðist ókurteist fólk! Kv.

  17. Segið mér fyrst af hverju þið viljið endilega vita hvað ég heiti. Hverju breytir það fyrir ykkur?

    Og aldrei mun ég slaka á á móti trúarofstækisáróðri sem vill koma Íslandi undir erlend yfirráð í nafni einhverjar ESB-trúarkreddu. Ófáar kynslóðir Íslendinga þorðu vart að dreyma um sjálfstæði, aðrar börðust fyrir því. Nú viljið þið fleygja því öllu út um gluggann. Megi skömm ykkar verða ævarandi.

  18. Baldur Kristjánsson

    Vegna þess Palli að þá yrðir þú kurteisari og þar með marktækari! Gangi þér allt í haginn. Kv. B

  19. Kurteisari? Mér sýnist nú það þurfa að löðrunga sumt fólk upp úr dáinu sem það liggur í, og kurteisi skiptir því mig engu máli. Það hefur líka lengi talist íslenskur siður að rífa kjaft þegar það á við, en þið eruð auðvitað með óbeit á öllu sem heitir íslenskt, þið esbingar.

    Marktækari? Svona eins og að segja að heilastarfsemi sé betri í esb-sinnum?
    Og ég skrifa ekki ummæli fyrir þig eða aðra esbinga, heldur hitt fólkið sem hefur ekki áttað sig á lygaáróðrinum sem tugginn er ofan í það af prosac-pakkinu sem þið eruð. Ég hef gefið upp alla von um að ykkur sé viðbjargandi. Það er meiri séns að lið eins og þú skráir sig úr þjóðkirkjunni en að skipta um skoðun á hinu háheilaga esb. Þannig að þú getur tekið allt væl um marktæki og troðið því líka.

    Vonandi hef ég skýrt mína afstöðu nægilega til að hún skiljist, en ég held ekki í mér andanum með fólk eins og þig.

  20. Baldur Kristjánsson

    Málflutningur þinn er næstum því í lagi nema auðvitað vantar nafnið þannig að þess vegna gæti þetta bara verið raus úr tölvu. Kv. B

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af einum og sex? Svar: