Bjarni Ben. tapar umræðunni!

Ég horfi með hryllingi til elliáranna og eftir daginn ákveðinn í að fresta þeim sem lengst. Ég ákvað nefnilega að horfa á umræðuna um tillögu Bjarna Benediktssonar slïkt horf mun vera helsta iðja ellibelgja. Þó uppgötvar maður ýmislegt: Árni Þór er betri en maður hélt. Þór Saari er beittasti hnífurinn í skúffunni. Karlar leika aðalhlutverkið á Alþingi. Gunnar Bragi ætti að vera í Sjálfstæðisflokknum. Ólöf Nordal talaði með hrokafullum hætti til Lúðvíks Geirssonar og hefur ekki efni á því og….þetta mál á ekkert erindi inn á Alþingi.  Kaupi ég ekki rök Atla Gíslasonar að enn og aftur þurfi hann og samþingsmenn hans að fara að velta við öllum steinum eins og hann orðar það. Menn verða bilaðir ef þeir setja sêr ekki mörk í steinaveltingi.  Og það stenst ekki skoðun, eins og umræðan er að leiða í ljós að, Alþingi sé að skipta sér af ferli þessa máls.  Það er og á að vera úr þess höndum.

Og frávísunartillaga er ágæt. Um hana verða ekki greidd atkvæði fyrr en eftir ítarlega 1. umræðu.

19 ummæli

  1. Sammála þessu í einu og öllu.

  2. „Menn verða bilaðir ef þeir setja sêr ekki mörk í steinaveltingi. “
    Hár-rétt, Baldur!
    Fiskarnir undan steinunum verða
    hvort sem er bara saltaðir og faldir undir næstu steinum.

  3. Mér finnst skrítið að menntaður maður í siðfræðum og guðfræðum skuli ekki færa betri rök fyrir málflutningi sínum en þetta. Hér koma fram skoðanir sem eru að mínu mati mannfyrirlitlegar og á skjön við meginreglur réttarfars í hinum vestræna heimi. Eða gerir Baldur sér ekki grein fyrir því, að ákæra Alþingis á hendur Geir Haarde skapar fordæmi til að stefna Jóhönnu og Steingrími fyrir Landsdómi vegna Icesave málsins sem má færa rök fyrir að vera landráð. Og ekki síst þá staðreynd að Steingrímur framseldi eignir Íslendinga sem nema hálfri þjóðarframleiðslu í hendur evrópskra glæpamanna. Þetta mál er ávísun á pólitískar blóðhefndir um langt árabil. Fordæmi krefst þess að sambærileg mál verði rekin fyrir Landsdómi.

    Heyr á eindemi!

    Það er skömm af því að jafn vel menntaður maður og Baldur skuli ekki gera betur grein fyrir málflutningi sínum sem er í alla staði alvarlegur.

  4. Akkúrat, Gunnar; um að gera að sjá rækilega til þess, að aldrei verði hægt að láta stjórnmálamenn bera ábyrgð á nokkrum sköpuðum hlut! Og ekki koma með að þeir fái sína refsingu í næstu kosningum; slík rök eru hin mesta rökleysa, enda setja þeir sér leikreglurnar sjálfur!

  5. Andrés Ingi

    Hin pólítísku gleraugu gerast sterk, nú um stundir.

  6. Uni Gíslason

    Baldur Kristjánsson, ég er þér innilega sammála. Vel sagt, vel skrifað.

    xD eru hræsnarar og hrokagikkir eins og oft áður – en Atli virðist þjást andlega, enda í tárum eftir atkvæðagreiðslur.

    Ásta Ragnheiður er ógeðsleg persóna – því er hún ekki í xD?

  7. Baldur Kristjánsson

    Slakaðu nú á Gunnar Kristinn. Maður þarf nú ekki að skrifa fræðigrein í hvert sinn sem maður mundar pennan. En það er satt hjá þér ég er vel menntaður og ég get bætt við, víðlesinn og gáfaður. Kveðja. Baldur

  8. Sammála Baldur. Ég vill síðan benda Gunnari á eftirfarandi: Steingrímur og Jóhanna voru kosin af sýnum stuðningsmönnum með ákveðin stefnumál í farteskinu. Þegar hinsvegar kemur í ljós að lítið sem ekkert af því sem þau lofuðu hefur skilað sér til þeirra sem kusu þau er mjög eðilegt að þau sæti einhverri ábyrgð.

    Ef þú ræður þig á stjórnunarstöðu hjá einkageiranum, þá leggur þú fyrir stjórn fyrirtækisins hvað þú munt leggja áherslur á næstu t.d. 6-12 mánuði og stjórnin samþykkir þær. Ef kemur í ljós hinsvegar eftir 6-12 mánuði að þú hefur gert allt þvert á það sem þú sagðist ætla að gera þá er næsta víst að stjórn fyrirtækisins myndi krefjast afsagnar um leið.

    Það hefur lítið sem ekkert verið gert fyrir fólkið í landinu hjá núverandi stjórn annað en að bæta við sköttum og skera niður í velferðarkerfinu.

  9. Árni Aðalsteinsson

    vel mælt Baldur Kristjánsson,þetta er allt „crap“ einsog ein hámenntuð úr flokki Gunnars Kristins gerði grein fyrir með afstöðu sína gagnvart stjórnlagaráði.

  10. Halldór Halldórsson

    Kannski heldur Baldur Kristjánsson að fólk hafi beðið með öndina í hálsinum eftir afstöðu hans til Landsdómsmálsins? Ég hefði getað sagt hverjum sem var, allt frá upphafi, að Baldur Kristjánsson myndi hafa þessa afstöðu nú. Allur hans framgangur og málflutningur er þannig!

  11. Helgi Jóhann Hauksson

    Sammála Baldri eins og oft.

  12. Hreggviður

    Baldur góður eins og ævinlega.

  13. Ólafur Adolfsson

    Það sem er svo skemmtilegt, (og það hef ég sjálfur gert oftar en ég vil kannast við) þegar menn af ástríðu taka eingöngu afstöðu til mála og málefna út frá því í hvaða liði þeir eru, þá verða þeir þegar tíminn líður fullkomlega meðvitaðir um að þeir hafi gert sig að algjörum fíflum. Þeir sem taka sig alvarlega læra af slíkum mistökum en því miður ekki alls ekki allir.

  14. Halldór Halldórsson

    Réttlætið sigraði að lokum 31 – 29! Málið fær nú að koma fyrir nefnd sem að vísu er yfirgengilega þung af „ranglætis“-fólki. Ætli það verði svæft?

  15. Baldur Kristjánsson

    Slakaðu nú á Halldór minn!

  16. Pétur Páll

    Varstu að horfa á þetta ruglað? Þór Saari beittasti hnífurinn í skúffunni! Mér fannst Þór vera lang, lang minnst gáfulegur í þessari umræðu, eins og hann er oftast og Árni Þór, sjálfumglaður gróðapungur úr SPRON æfintýrinu, hann á að skammast sín og segja af sér á hverjum degi. Ekki upplifði ég hroka hjá Ólöfu nema síður sé – en við verðum ekki sammála um neitt sýnist mér og það er allt í lagi.

  17. Ég kaupi þetta ekki kæri Baldur. Ákæran á hendur Geir er ekki uppgjör á hruninu !

    Menn geta skammast sín að halda það að það verði 1000 x betra Ísland ef Geir verður sakfelldur ?

    Þetta er algjörlega ógeðfellt að hálfu flestra samfylkingarmanna að voga sér að draga hann einan fyrir landsdóm í upphafi en það kom ekki til greina að þeirra ráðherrar færu þangað eða hvað þeir eru fljótir að „gleyma“ eða þykjast ekki muna að ÞIÐ ERUÐ PARTUR AF PROGRAMMET OG HLUTI AF HRUNSTJÓRNINNI- SKAMMIST YKKAR, HÍFIÐ UPPUM YKKUR BUXURNAR OG KOMIÐ LANDINU UPPÚR ÞESSU BÖLÆÐI SEM ER Í GANGI HÉRNA.

    Áfram Ísland ;)

  18. Baldur Kristjánsson

    Pétur Páll! Þennan tón kann ég við. Kv. Baldur

  19. Jón Halldór

    Sammála Baldri. Er samt hugsi yfir að það er þetta mál sem heitast brennur á Sjálfstæðisflokknum í dag. Lítt dulbúnar hótanir um pólitísk réttarhöld yfir Jóhönnu og Steingrími eru afar áhugavert innlegg.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af sjö og sex? Svar: