Guðsmenn eru ekkert öðruvísi en við hinir. Það hefur meira að segja sýnt sig að mannlegur breyskleiki á jafnvel betur við þá sem fara með trú sína út í öfgar, líkt og annað öfgafólk. Eitthvað hlýtur það að byrgja inni, eins og Guðmundur, sem sýndi á sér hina hliðina í frægu kynlífsmyndbandi sem ég óska engum að sjá.
Í dag sagði Vísir.is frá því að Gunnar í Krossinum hafi, í félagi við vini sína, keypt skemmtibát á milljónir. Í fréttinni kemur fram að báturinn verði notaður til skemmtisiglinga og sjóstangveiða og nafnið verður að öllum líkindum úr biblíunni.
Í boðorðunum, sem Gunnar vinnur við að boða og ná að framfleyta honum ágætlega, segir:
„Þú skalt ekki leggja nafn Drottins Guðs þíns við hégóma, því að Drottinn mun ekki láta þeim óhegnt, sem leggur nafn hans við hégóma.“
Bátar til skemmtisiglinga eru hégómlegustu farartæki á jörðinni. Aðeins einkaþotur komast með nefið þar sem þeir hafa bakborða. Við getum því gefið okkur að bátur Gunnars verði ekki nefndur Drottinn, Guð, Hinn Almáttugi eða eitthvað í þá áttina.
Ég velti því fyrir mér hvers nafn Gunnar ætlar að leggja við þennan fljótandi hégóma, sem hann getur nýtt heilaga hvíldardaga í að sigla. Ég get ekki beðið eftir því að vita hvort Móse eða Aron bróðir hans verði gerðir eilífir í bátaskrá í nafni annars boðorðsins.
Atli Fannar Bjarkason
