Allir eru að því

Sumt um allt frá hluta af öllum.

Áfram Þóra!

23.2 2009 | 2 athugasemdir

Besta frétt sem ég hef lesið í dag byrjar svona:

„Þóra Þórarinsdóttir fyrrverandi ritstjóri fréttablaðsins Gluggans á Suðurlandi hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2.-3. sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.“

Ég trúi ekki öðru en að Þóra nái því sæti sem hún sækist eftir. Hún er algjör snillingur.

Þóra er einn besti yfirmaður sem ég hef haft, en ég vann sem blaðamaður á héraðsfréttablaðinu Glugganum fyrir nokkrum árum þar sem hún var ritstjóri. Ég ætti að þekkja góða ritstjóra þegar ég sé þá, enda starfað undir sex slíkum á þremur árum. Fimm af þessum ristjórum stoppuðu stutt á Blaðinu/24 stundum.

Þóra er frábær kennari sem var einmitt það sem ég þurfti þegar ég starfaði hjá henni, enda var ég rennandi blautur á bakvið eyrun.

Svo er hún líka ótrúlega skemmtileg, en á sama tíma hörð í horn að taka. Það kemst enginn upp með neitt kjaftæði hjá henni Þóru.

Ég trúi ekki öðru en að sunnlenskt Samfylkingarfólk kunni að meta það sem Þóra hefur fram að færa.

Flokkar: Stjórnmál og samfélag