Allir eru að því

Sumt um allt frá hluta af öllum.

Leitin að G-blettinum

6.1 2010 | 22:25 | 2 ummæli

Fréttastofa Ríkisútvarpsins greindi frá því á dögunum að G-bletturinn væri horfinn. Samkvæmt fréttinni telja breskir vísindamenn að G-bletturinn sé goðsögn, sem setur hann á stall með snjómanninum ógurlega, Stórfæti, geimverum, Loch Ness-skrímslinu og Lagarfljótsorminum. G-bletturinn hefur hingað til fengið víðtækari stuðning en ofangreind skrímsli og þeir sem trúa á tilvist hans hafa ekki fengið á sig sama stimpil og þeir sem hafa helgað líf sitt leitinni að Loch Ness-skrímslinu. Nú hafa breskir vísindamenn snúið almennu viðhorfi á hvolf og þeir sem telja sig vita hvar G-blettinn er að finna verða framvegis álitnir rugludallar.

Geimverur hafa verið vinsælt viðfangsefni kvikmynda. Nú þegar búið er að afsanna tilvist G-blettsins má búast við að nýr kafli verði skrifaður og að hann fái æðri stall í kvikmyndasögunni. Lærðar heimildarmyndir um G-blettinn eru hluti af vanþróaðri fortíð okkar og eftir nokkrar ódýrar „Leitin að G-blettinum“-myndum rennur tími stórslysamyndanna upp. Margir muna eftir kvikmyndinni Independence Day sem fjallaði á hádramatískan og ærslafullan hátt um innrás geimvera. Hún náði miklum vinsældum sem ætti að opna fyrir möguleikann á sams konar kvikmynd um G-blettinn; örlög mannkyns eru í stórhættu þegar her G-bletta ræðst á jörðina og tortímir öllu sem fyrir honum verður. Gamanmyndir fylgja ávallt með og því ætti sprenghlægilega gamanmyndin Móðir mín, G-blettur að slá í gegn; röð tilviljana verða til þess að ungur maður uppgötvar að móðir hans er í raun G-blettur í dulargervi.

Þeir sem trúa á tilvist G-blettsins verða einnig áberandi í náinni framtíð. Sjónvarpsþættirnir X-Files fjölluðu um geimverur og það ætti ekki að vera langt í þættina G-Files. Þeir myndu fjalla um tvo alríkislögreglumenn sem rannsaka furðuleg mál sem ýta undir tiltrú á G-blettinn og áður en langt um líður verða stofnuð samtök fólks sem meðtekur boðskap þáttarins: Ég vil trúa.

Við tækið-pistill Fréttablaðsins í dag.

Flokkar: Dægurmál | Facebook
Efnisorð:



Ummæli (2)

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):