Allir eru að því

Sumt um allt frá hluta af öllum.

Stelpur plata líka

29.12 2009 | 18:07 | 2 ummæli

According to Jim fylgir sömu forskrift og sirka allir bandarískir gamanþættir (nema þessir stórkostlegu, 30 Rock og fleiri). Jim er óalandi mannapi og eiginkonan Cheryl var annaðhvort á sterkum hugbreytandi lyfjum þegar hún féllst á að giftast honum eða með svo mölbrotna sjálfsmynd að hún lætur sig hafa líf með ömurlegum manni í nafni ameríska draumsins, að sjálfsögðu.

Þættirnir hefjast yfirleitt á því að Jim klúðrar einhverju og eyðir svo góðum tíma í að hylma yfir klúðrið þangað til í endann þegar hún kemst að öllu. Hann eyðir svo síðustu mínútunum í að segja sorrí og auðvitað fyrirgefur hún honum allt – rétt eins og eiginkonur Rays, Dougs og tjahh, Hómers.

Ég horfi að sjálfsögðu spenntur á þessa þætti þegar ég kemst í þá. Amerísk lágkúra höfðar sérstaklega vel til mín og beygluð sjálfsmynd fær tímabundna innspýtingu þegar maður sér að ömurlegir menn geta nælt sér í fjallmyndalegar ofurskvísur sem kunna að elda og ala upp börn. Eða þú veist.

Þegar Skjár einn opnaðist tímabundið á dögunum sá ég hálfan þátt af According to Jim sem var afar hressandi vegna þess að hlutverkin snerust við. Ég náði ekki byrjuninni, en þegar ég byrjaði að horfa var Cheryl búin að ljúga því að Jim að hún ætti að vera rúmliggjandi næstu daga vegna þess að hún var kasólétt. Undir þeim formerkjum sendi hún þann gamla út í búð að kaupa súkkulaðiís, sem hann gerði.

Í búðinni hitti hann lækninn hennar sem furðaði sig á því að Jim væri að gera þetta, þegar hann hafði beinlínis ráðlagt Cheryl að hreyfa sig smá – til dæmis fara út í búð. En þegar Jim vatt sér upp að svikulli eiginkonunni setti hún á svið sýningu, hélt ræðu um breytt fjölskyldumynstur og þóttist loks gráta þar til honum rann reiðin.

Skjár einn lokaði á mig áður en þættinum lauk, en ég býst við að Cheryl hafi fengið makleg málagjöld. Það er nefnilega ljótt að plata, en það er hressandi að vita til þess að stelpur gera það líka í amerískum sjónvarpsþáttum.

Við tækið-pistill Fréttablaðsins 28. desember.

Flokkar: Dægurmál | Facebook
Efnisorð: ,



Ummæli (2)

  •   Halldór AS // 29.12 2009 kl. 19:24

    Þetta er gamalt þema í amerískum gamanþáttum – mér fannst til dæmis annar hver Friendsþáttur snúast um einhverjar kjánalegar lygar sem ‘vinirnir’ voru að segja hver öðrum til að halda andlitinu og forðast vesen. Mér þótti þetta nú ekkert sérlega vingjarnlegt allt saman – verð nú bara að segja það!

    En jú, svo er rétt að núorðið virðist þetta helst sjást í þessari undarlega vinsælu ‘feitur leiðinlegur kall með flottri konu og skrýtnu ættingjar þeirra’-formúlu.

  •   Anna R // 29.12 2009 kl. 21:07

    Mér finnst According to Jim alveg óbærilega leiðinlegur þáttur.

    En ég verð að játa á mig þá ósvinnu að ég fíla lúmskt The King of Queens (þótt hann fylgi þessari furðulegu formúlu: eiginkonan algjör skutla en eiginmaðurinn feitur lúser og í þessu tilfelli alveg ótrúlega heimskur og barnalegur).

    Ég afsaka mig með því að þau hjón eru barnlaus. Það sýnir, að mínu mati, að eiginkonan er löngu búin að sjá það út að hann Doug (þótt krúttlegur bangsi sé og yfirhöfuð mjög auðveldur viðfangs) er ekkert efni í foreldri. Bæði vegna þess að erfðaefnið er ekkert til að hrópa húrra fyrir og líka að hann er hálfgert barn sjálfur.

    Eiginkonan í King of Queens er nefnilega dáldið bitch, annað en þessi dula í According to Jim.

    Svo finnst mér tengdafaðirinn sem býr í kjallaranum (síðast þegar ég vissi til) vera skemmtilega absúrd persóna.

    King of Queens er ekkert sérlega hátt skrifað sit-com í BNA en nýtur hinsvegar feykivinsælda í Evrópu. Þegar leikarinn sem leikur Doug (hvað svo sem hann heitir) sýnir sig á svæðinu er honum nánast fagnað sem þjóðhöfðingja.

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):