Allir eru að því

Sumt um allt frá hluta af öllum.

Yfirlætisfullur Ágúst Borgþór

20.12 2009 | 20:40 | 2 ummæli

„Nú er í sjálfu sér engin ástæða til að fordæma það að fólk lifi yfirborðslegu vitundarlífi. Sumir vilja bara horfa á barnalegar bandarískar afþreyingarmyndir, fara í ljós og lesa aldrei bækur. Ekkert að því. En hvaðan er sú hvöt runnin í blóð dagblaða að birta slíkt lífsviðhorf í sérstökum fjölmiðlapistlum fyrir almenning? Hvers vegna hafa dagblöðin búið til þessa hefð smágerðrar lágkúru?“

Með öðrum orðum: „Mér finnst allt í lagi að fólk lifi yfirborðslegu vitundarlífi – ég vil bara ekki vita af því.“

Flokkar: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Efnisorð:



Ummæli (2)

  •   Helgi // 20.12 2009 kl. 22:57

    Betra er yfirlæti en uppgerðarlítillæti!

    Svo mikið er víst.

  •   Jakob Bjarnar // 21.12 2009 kl. 00:17

    Já, ég verð eiginlega að taka undir með Bloggþóri: Þetta er afskaplega hjárænulegir pistlar frá ykkur blaðamönnum þarna á Fréttablaðinu :)

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):