Allir eru að því

Sumt um allt frá hluta af öllum.

Færslur fyrir: nóvember 2009

Vandamál íslenskra karla

14.11 2009 | 18 athugasemdir

Í vikunni las ég sorglega frétt um að einhleypir karlmenn séu í miklum meirihluta á Íslandi. Um 46 prósent íslenskra karlmanna eru á lausu, en aðeins um 35 prósent af kvenþjóðinni. Íslenskir karlmenn eru nokkrum þúsundum fleiri en konurnar, sem þýðir að gríðarlegur fjöldi einhleypra karla ráfar eymdarlega um göturnar á degi hverjum. En hvernig stendur á þessu?

Kannski eru íslenskar konur búnar að fá nóg. Kannski leita þær í auknum mæli út fyrir landsteinana í von um ást og umhyggju. Hvað útskýrir það? Jú, kannski er íslenski karlmaðurinn loksins að súpa seyðið af áralangri og vel heppnaðri markaðssetningu um að íslenskar konur séu fallegustu konur heims.

Ekki ætla ég að rengja það – íslenskar konur eru upp til hópa megaskutlur. En markaðssetningin er búin að búa til afgangsstærð úr íslenskum karlmönnum. Þegar erlendir fjölmiðlar birta lærðar greinar um fegurð íslensku konunnar er hvergi minnst á atgervi íslenska karlmannsins – hvað þá útlit. Við erum ekkert í augum heimsins.

Nú virðist markaðssetningin vera byrjuð að skila tölfræðilegum árangri. Útlendingar eru ekki þeir einu sem telja að íslenska konan sé sú glæsilegasta – heldur trúa þær því sjálfar. Íslenska konan er orðin svo góð með sig að hún sækir ást til útlanda. Líklegast þykir mér að suðrænir sjarmörar með nöfn eins og Juan og Fernando séu að stela kvenfólkinu okkar, enda erfitt að keppa við menn sem eru súkkulaðibrúnir frá náttúrunnar hendi og leggja sig ekki í lífshættu til að bæta næpuhvítan húðlitinn.

hvað er til ráða? Við þurfum að fá stelpurnar til að trúa að við séum betri en ofurmennin úr suðri. Við þurfum að hefja öfluga markaðssetningu sem byggir á nýjum gildum. Ekki getum við sagst vera sterkastir – það er ekkert töff lengur. Við getum ekki heldur sagst vera ríkastir – af augljósum ástæðum. Við þurfum eitthvað annað: Við þurfum að verða fyndnustu karlmenn heims.

Flestar konur eru sammála því að karlmaður sem kemur þeim til að hlæja er líklegri en aðrir til að fá að liggja með þeim í suður-evrópskum faðmlögum. Þess vegna þurfum við að koma öllum erlendum konum sem við hittum til að hlæja. Með samstilltu átaki munu konur um allan heim spyrja hver aðra: „Did you know that Icelandic men are the funniest men in the world?“ Þetta skapar afbrýðisemi hjá íslensku konunni, sigurinn verður okkar og skökku hlutföllin leiðréttast.

Bakþankar Fréttablaðsins í dag.

Flokkar: Stjórnmál og samfélag