Vísir.is birti á dögunum frétt um erótísku samfélagssíðuna Purplerabbit.com. Fréttin snerist um að aðstandendur vefsíðunnar séu tilbúnir að borga Íslendingum fyrir erótísk myndbönd sem þeir myndu taka upp sjálfir. Fréttin vakti mikla athygli, enda hefur íslensk erótík ekki þrifist á opinberum vettvangi síðustu misseri.
Fréttin um vefinn vakti hörð viðbrögð og Femínistafélag Íslands krafðist þess að honum yrði umsvifalaust lokað, enda um vændistengda starfsemi að ræða að mati félagsins. Sem forvitinn ungur maður rann mér blóðið til skyldunnar og fannst ég þurfa að athuga hvað væri á seyði á vefnum.
Ekki lagði ég á mig að skrá mig sem notanda vefjarins, enda bjóst ég ekki við að finna þar hvatningu til að taka þátt í samfélagi fólks, sem berar sig fyrir ókunnuga á Netinu. Ég er ekki tepra, en slík hegðun er einfaldlega ekki fyrir mig – þó að ég skilji vel að einhverjir, bæði strákar og stelpur, fái út úr því kikk.
Ég gat skoðað þann hluta vefjarins sem var ekki aðeins ætlaður notendum og vafraði aðeins um. Ég sá alls konar myndir af alls konar fólki. Stelpur á undirfötum einum klæða þökkuðu fyrir sveittar athugasemdir frá nafnlausum gaurum sem opinberuðu hvernig þeir færu að, myndu leiðir þeirra og nafnlausu stúlkunnar liggja saman. Mig grunar reyndar að minnst helmingur þeirra sem skildu eftir slepjulegar athugasemdir þori ekki að vinda sér upp að dömu á almannafæri og kjósi því að fá útrás fyrir órum sínum á Netinu. Fremstur meðal jafningja. Og allt það.
Hápunktur þessarar hávísindalegu úttektar minnar á íslenskri erótík var myndband sem sýndi stúlku láta vel að sjálfri sér. Ég verð að viðurkenna, að kynþokki var ekki það fyrsta sem mér datt í hug þegar hún renndi hægt niður appelsínugulu 66° norður-flíspeysunni þar sem hún lá á pleðursófa í íslenskri stofu.
Íslensk erótík á augljóslega langt í land, ætli hún að verða iðnaður. Eins og á öllum samskiptasíðum getur þrifist þarna ógeðslegt fólk, sem nýtir sér ástand eða neyð annarra. En á meðan fólk stillir sér upp nakið fyrir framan myndavélar af fúsum og frjálsum vilja, rukkar jafnvel fyrir það, þakkar fyrir athugasemdir nafnleysingja af einlægni og fer eftir lögum, þá sé ég ekki hvernig krafan um lokun ætti fram að ganga.
Bakþankar Fréttablaðsins í dag.
Flokkar: Dægurmál|
Facebook .
Efnisorð: Ísland er svo lítið, Strákar og stelpur
Stöð 2 byrjaði loksins að sýna pólitíska satíruþáttinn Daily Show á ný í gær. Þátturinn er bæði merkilegur og mikilvægur, en þáttastjórnandanum Jon Stewart og félögum hefur tekist að auka áhuga ungs fólks á daufgráum heimi stjórnmálanna og þjóðfélagsumræðunni almennt. Ungir Bandaríkjamenn taka þátt og fylgjast með og árangurinn er augljós, enda var vonarstjarnan Barack Obama kjörinn forseti Bandaríkjanna á síðasta ári.
Það vantar íslenskan þátt eins og Daily Show. Fyrir þau sem hafa ekki séð þáttinn, þá er nánast hægt að segja að hann sé blanda af 60 mínútum og Fóstbræðrum. Fyndnar og dramatískar fréttaskýringar um léttvæg mál eins og kynhegðun eldri borgara í Flórída er með því betra sem ég hef séð í þáttunum. Svo ekki sé minnst á innslagið um eina „herman“ Íslands, sem reyndist vera ung ljóshærð stúlka – Bandaríkjamönnum til mikillar skelfingar. Alvaran er þó aldrei langt undan og Jon Stewart hefur sýnt frábæra takta þegar hann rekur garnirnar úr til dæmis stjórnmála- og fréttamönnum.
„Almennar“ fréttir í dag eru því miður sorglega leiðinlegar. Upplýsingum er almennt miðlað til fólks á steingeldan og litlausan hátt og fyrir vikið er erfiðara að fá ungt fólk til þess að fylgjast með. Það er varla hægt að gera þá kröfu til fjölmiðla að poppa upp manískt þunglyndu Icesave-umræðuna, en mótvægi væri vel þegið í íslensku sjónvarpi. Ekki segja að mótvægið sé þegar til í Spaugstofunni. Hún á fína spretti, en fjórir hvítir miðaldra karlmenn eru varla til þess fallnir að auka áhuga ungs fólks á málefnum líðandi stundar. Jafnvel þó að þeir geti hermt vel eftir Davíð Oddssyni.
Við tækið-pistill Fréttablaðsins í dag.
Flokkar: Dægurmál|
Facebook .
Efnisorð: Nöldur um það sem er í sjónvarpinu
6.1 2010 | 22:25 | 2 ummæli
Fréttastofa Ríkisútvarpsins greindi frá því á dögunum að G-bletturinn væri horfinn. Samkvæmt fréttinni telja breskir vísindamenn að G-bletturinn sé goðsögn, sem setur hann á stall með snjómanninum ógurlega, Stórfæti, geimverum, Loch Ness-skrímslinu og Lagarfljótsorminum. G-bletturinn hefur hingað til fengið víðtækari stuðning en ofangreind skrímsli og þeir sem trúa á tilvist hans hafa ekki fengið á sig sama stimpil og þeir sem hafa helgað líf sitt leitinni að Loch Ness-skrímslinu. Nú hafa breskir vísindamenn snúið almennu viðhorfi á hvolf og þeir sem telja sig vita hvar G-blettinn er að finna verða framvegis álitnir rugludallar.
Geimverur hafa verið vinsælt viðfangsefni kvikmynda. Nú þegar búið er að afsanna tilvist G-blettsins má búast við að nýr kafli verði skrifaður og að hann fái æðri stall í kvikmyndasögunni. Lærðar heimildarmyndir um G-blettinn eru hluti af vanþróaðri fortíð okkar og eftir nokkrar ódýrar „Leitin að G-blettinum“-myndum rennur tími stórslysamyndanna upp. Margir muna eftir kvikmyndinni Independence Day sem fjallaði á hádramatískan og ærslafullan hátt um innrás geimvera. Hún náði miklum vinsældum sem ætti að opna fyrir möguleikann á sams konar kvikmynd um G-blettinn; örlög mannkyns eru í stórhættu þegar her G-bletta ræðst á jörðina og tortímir öllu sem fyrir honum verður. Gamanmyndir fylgja ávallt með og því ætti sprenghlægilega gamanmyndin Móðir mín, G-blettur að slá í gegn; röð tilviljana verða til þess að ungur maður uppgötvar að móðir hans er í raun G-blettur í dulargervi.
Þeir sem trúa á tilvist G-blettsins verða einnig áberandi í náinni framtíð. Sjónvarpsþættirnir X-Files fjölluðu um geimverur og það ætti ekki að vera langt í þættina G-Files. Þeir myndu fjalla um tvo alríkislögreglumenn sem rannsaka furðuleg mál sem ýta undir tiltrú á G-blettinn og áður en langt um líður verða stofnuð samtök fólks sem meðtekur boðskap þáttarins: Ég vil trúa.
Við tækið-pistill Fréttablaðsins í dag.
Flokkar: Dægurmál|
Facebook .
Efnisorð: Strákar og stelpur
2.1 2010 | 11:53 | 6 ummæli
Bankahrunið hafði í för með sér ófyrirsjáanlegar afleiðingar; margar sem eru hrikalegar fyrir fjölskyldur landsins og éta upp hvern fréttatímann á fætur öðrum. Aðrar eru hvimleiðar, eins og til dæmis dauði bloggsins eins og við þekktum það.
Einu sinni var rosalega gaman að fara nokkra blogghringi á dag. Skapandi og spennandi pennar lak af hverju strái eins og smjör og hnyttnar færslur flæddu um netheima eins og bjór um götur Aspen.
Í dag er öldin önnur. Sumir tala um að skoðanir séu eins og rassgöt, vegna þess að allir séu með slíkt. Það er satt, en við klæðum okkur til að fyrirbyggja að sýna rassgatið hvar sem er, hvenær sem er. Það á enginn skilið að fara út í búð og fá rassgat framan í sig óumbeðið. Það væri afar ómannúðleg meðferð á fólki.
Þannig er Netið orðið í dag. Sjálfviljugur vafrar maður um í leit að upplýsingum, afþreyingu og öðru, en á leiðinni fær maður framan í sig rassgöt sem maður kærir sig ekki um. Ég ætla ekki að gera lítið úr þeirri staðreynd að sumum finnst gaman að skoða alls konar rassgöt, ég ætla ekki heldur að neita því að sjálfur hef ég gerst sekur um slíkt. Þau eru bara svo mörg og ógeðsleg að leitin að gæðarassgötunum inni á milli verður sífellt erfiðari.
Kjötheimar hafa enn þá ótvíræða kosti fram yfir netheima. Samfélagið krefst þess að fólk hylji á sér rassgötin og kjósi maður að sjá þau hefur maður val. Undantekningin sannar regluna þar eins og í öðru og stöku sinnum rekst maður óviljugur á rassgat hér og rassgat þar. Í bloggheimum er önnur regla. Þar neyðist maður til að gramsa í rassgötum í leit að einhverju sem mark er takandi á.
Einu sinni voru bloggarar almennt vel skrifandi fólk, sem nýtti miðilinn af kunnáttu og röksemi. Svo sprakk sprengjan og ormarnir skriðu upp úr holunni. Í dag eru margir af góðu bloggurunum í felum, blogga örsjaldan eða eru hreinlega hættir. Eftir stendur hópur af fólki, sem er með rassgöt eins og annað fólk, en röltir bert að neðan um götur netheima, aðdáendum fortíðardrauganna til ama og leiðinda.
Bakþankar Fréttablaðsins í dag.
Flokkar: Stjórnmál og samfélag|
Facebook .
Efnisorð: Ísland er svo lítið, Sýndarveruleiki
29.12 2009 | 18:07 | 2 ummæli
According to Jim fylgir sömu forskrift og sirka allir bandarískir gamanþættir (nema þessir stórkostlegu, 30 Rock og fleiri). Jim er óalandi mannapi og eiginkonan Cheryl var annaðhvort á sterkum hugbreytandi lyfjum þegar hún féllst á að giftast honum eða með svo mölbrotna sjálfsmynd að hún lætur sig hafa líf með ömurlegum manni í nafni ameríska draumsins, að sjálfsögðu.
Þættirnir hefjast yfirleitt á því að Jim klúðrar einhverju og eyðir svo góðum tíma í að hylma yfir klúðrið þangað til í endann þegar hún kemst að öllu. Hann eyðir svo síðustu mínútunum í að segja sorrí og auðvitað fyrirgefur hún honum allt – rétt eins og eiginkonur Rays, Dougs og tjahh, Hómers.
Ég horfi að sjálfsögðu spenntur á þessa þætti þegar ég kemst í þá. Amerísk lágkúra höfðar sérstaklega vel til mín og beygluð sjálfsmynd fær tímabundna innspýtingu þegar maður sér að ömurlegir menn geta nælt sér í fjallmyndalegar ofurskvísur sem kunna að elda og ala upp börn. Eða þú veist.
Þegar Skjár einn opnaðist tímabundið á dögunum sá ég hálfan þátt af According to Jim sem var afar hressandi vegna þess að hlutverkin snerust við. Ég náði ekki byrjuninni, en þegar ég byrjaði að horfa var Cheryl búin að ljúga því að Jim að hún ætti að vera rúmliggjandi næstu daga vegna þess að hún var kasólétt. Undir þeim formerkjum sendi hún þann gamla út í búð að kaupa súkkulaðiís, sem hann gerði.
Í búðinni hitti hann lækninn hennar sem furðaði sig á því að Jim væri að gera þetta, þegar hann hafði beinlínis ráðlagt Cheryl að hreyfa sig smá – til dæmis fara út í búð. En þegar Jim vatt sér upp að svikulli eiginkonunni setti hún á svið sýningu, hélt ræðu um breytt fjölskyldumynstur og þóttist loks gráta þar til honum rann reiðin.
Skjár einn lokaði á mig áður en þættinum lauk, en ég býst við að Cheryl hafi fengið makleg málagjöld. Það er nefnilega ljótt að plata, en það er hressandi að vita til þess að stelpur gera það líka í amerískum sjónvarpsþáttum.
Við tækið-pistill Fréttablaðsins 28. desember.
Flokkar: Dægurmál|
Facebook .
Efnisorð: Hlutir sem skipta ekki máli í stóra samhenginu, Strákar og stelpur
21.12 2009 | 01:00 | 5 ummæli
Avatar er hrikalega flott mynd – svo flott að maður hættir að taka eftir því að hún gerist að stórum hluta í sýndarheimi. Það fannst mér mesta afrekið.
Sagan er frekar hefðbundin og fyrirsjáanleg – en umbúðirnar eru svo svakalega flottar að maður gleymir sér í augnablikinu og nýtur afþreyingarinnar.
Leikstjórinn James Cameron er svalur gaur. Þegar Ljósmyndari fréttavefsins TMZ hljóp á eftir honum um daginn og spurði hvernig hann ætti að komast inn í kvikmyndagerð var svarið tæpitungulaust:
„Start making a film quit fucking around“
Flokkar: Dægurmál|
Facebook .
Efnisorð: Hlutir sem skipta ekki máli í stóra samhenginu
20.12 2009 | 20:40 | 2 ummæli
Flokkar: Stjórnmál og samfélag|
Facebook .
Efnisorð: Veruleikafirring og sturlun
16.12 2009 | 23:36 | 1 ummæli
Eftir erfiðan vinnudag get ég ekki hugsað mér neitt betra en að horfa á sjónvarpsefni sem ætlast ekki til neins af mér. Helst vil ég geta fylgst með söguþræðinum hálfsofandi, með öðru auganu og einstaka dotti í auglýsingatímunum. Two and a Half Man er þannig þáttur.
Stöð 2 sýnir gamla þætti nánast daglega, en á þriðjudögum er nýr þáttur frumsýndur. Í nýju þáttunum er fyrrverandi ofurpiparsveinninn Charlie trúlofaður og í gærkvöldi neyddist hann til að hjúkra unnustu sinni. Alls kyns kvillar hrjáðu konuna sem sat á dollunni milli þess sem hún snýtti sér í miðju kúri með greyinu Charlie. Hann bauð henni næði, en hún tók það ekki mál og neyddi hann til að dansa í bakteríupartíinu sem hún hélt á rúminu hans.
Charlie fékk óskipta samúð mína þar sem hún sendi hann meðal annars út í apótek að kaupa túrtappa og heim til sín að skipta um kattasand. Hvort tveggja á enginn að þurfa að ganga í gegnum, sé hann hvorki með lífræðilega tengingu né andlegan áhuga á málefninu. Charlie efaðist um sambandið, enda gerði hann sér ekki grein fyrir umfangi skuldbindingarinnar þegar hann setti hring á fingur unnustu sinnar.
En svona er þetta alltaf með stelpur. Maður kaupir köttinn í sekknum. Í fyrstu eru þær fullkomnar; yndislegar verur sem bræða burt vandamál með brosi sínu og stoppa í göt geðheilsunnar með ljúfum kossi um kvöld. Svo kemur ýmislegt misjafnt í ljós og hægt og rólega missir maður áhugann. Í versta falli er endasprettur sambandsins hræðilegt tímabil niðurlægingar og leiðinda sem endar ekki fyrr en annar aðilinn segir hingað og ekki lengra.
Hættu þessu. Auðvitað er þetta ekki nálægt því að vera algilt og auðvitað þraukaði Charlie, vinur okkar. Svo fór að sjálfsögðu að hann veiktist sjálfur og hver var þá tilbúin að hjúkra honum? Jú, ástkær unnustan að sjálfsögðu.
Við tækið-pistill Fréttablaðsins í dag.
Flokkar: Dægurmál|
Facebook .
Efnisorð: Nöldur um það sem er í sjónvarpinu, Strákar og stelpur
12.12 2009 | 14:45 | 6 ummæli
Stundum fer ég sársvangur að versla til að fá fleiri og betri hugmyndir. Fari ég saddur út í búð kem ég heim með handsápu og saltstangir, en svangur fylli ég körfuna af reyktum silungi, nautalundum og appelsínusafa, sem ætti að skammast sín fyrir verðmiðann. Kræsingarnar reyna svo burðarþol pokanna til hins ýtrasta og heima bíða þeirra örlögin á botni salernisskálar.
Þegar ég kom heim úr einni af þessum ferðum á dögunum sá ég róna styðja sig upp við hús í götunni minni. Ofar í götunni er gistiskýli fyrir heimilislausa og þetta kvöld hitti ég í fyrsta skipti einn af íbúunum. Hann hélt í þakrennu með annarri og hin hélt á plastpoka með núðlusúpupökkum og studdist við hækju.
Ég bauðst til að hjálpa honum heim og hann þáði það. Ég tók pokann, sem var rifinn og tættur – eftir að hafa dregist eftir grófri klæðningu húsanna í götunni. Hann stoppaði nokkrum sinnum á leiðinni til að kasta mæðinni og spurði spurninga. Hann var mjög ölvaður og ég átti erfitt með að skilja hann. En ég heyri reyndar illa. Þegar við fórum að nálgast gistiskýlið vissi hann nafn mitt og ég hans. Hann vissi líka hvað ég er gamall og við hvað ég starfa, en ég vissi bara að hann ætti hvergi heima.
Hann hringdi bjöllunni í gistiskýlinu og til dyra kom vinaleg kona og tók á móti honum. Ég reyndi að tjasla pokanum saman þegar eitthvað datt á jörðina. Ég beygði mig niður og sá Appolo-stjörnurúllu, sem hann hafði fengið sér með núðlusúpupökkunum. Lúxusinn sem hann leyfði sér var í formi sælgætis sem, þrátt fyrir smæð sína, kostar örugglega á við tvær til þrjár núðlusúpumáltíðir.
Ég get lítið gert til að hjálpa áfengissjúklingum sem ráfa um göturnar og eiga hvergi heima. Ég ætla ekki heldur að vorkenna þeim, þar sem vorkunn hlýtur að vera það síðasta sem þeir þurfa á að halda. En eftir kynni mín við rónann í götunni minni get ég ekki annað en hugsað til þeirra, þegar rigningin lemur gluggann minn á meðan ég raða allt of miklum mat inn í ísskápinn. Sjálfselskur sonur neysluhyggjunnar, sem ég er.
Bakþankar Fréttablaðsins í dag.
Flokkar: Stjórnmál og samfélag|
Facebook .
Efnisorð: Of persónulegt
8.12 2009 | 19:43 | 2 ummæli
Ég hef alltaf átt erfitt með að verða háður hlutum. Ég reyki ekki og þó að mér finnist gott að fá mér í glas dettur mér ekki í hug að teygja skemmtunina yfir á virka daga. Ég er allt of latur til að verða háður og hef ekki stöðugleikann sem þarf til að gera sama hlutinn daglega.
Eða svo hélt ég. Fyrir nokkrum mánuðum skipti ég um netþjónustu heima, og vegna mistaka varð biðin eftir nýju þjónustunni rúm vika. Á sama tíma var verið að flytja skrifstofu vinnustaðar míns, þannig að fyrir einskæra tilviljun var ég algjörlega netlaus – fyrir utan agnarsmáa 3G-tengingu farsímans.
Í fyrstu taldi ég að þetta yrði lítið mál. Ég hélt að ég væri ekkert svo háður netinu og gæti vel komist af án þess að skoða sömu fréttasíðurnar oft á dag. Ég hafði óafvitandi lokað augunum fyrir netfíkn á mjög alvarlegu stigi og ég vissi ekki að næstu dagar yrðu gríðarlega erfiðir.
Fyrstu nóttina fór ég að finna fyrir sterkum áhrifum netleysisins. Ég átti erfitt með svefn og hrökk ítrekað upp, sveittur og örvilnaður, í örvæntingarfullri leit að símanum til að geta skoðað nokkra statusa á Facebook. Eftir að hafa fest svefn í allt of stutta stund kom morgunn og ég vaknaði úrvinda, úrillur, úrbeinaður af vanmætti.
Næstu dögum eyddi ég í helvíti. Ég flakkaði á milli kaffihúsa með fartölvuna og sótti netskammta hér og þar. Á kaffihúsunum leið mér eins og ég væri fyrir starfsfólkinu og pantaði því mat og drykki sem hefðu nægt fyrir heilu fjölskyldurnar. Alltaf þegar þjónarnir gengu framhjá bað ég um kaffi, kleinu eða bæði. Ég breyttist fljótt í það sem ég hélt að ég yrði aldrei: Feitan fíkil.
Dagarnir liðu hægt og ekki batnaði svefninn. Ég var farinn að taka nethring í símanum reglulega, en hann svalaði engan veginn þörfinni. Ég skammaðist mín of mikið til að láta sjá mig á kaffihúsum, enda var tilhugsunin um aðra kleinu viðbjóðsleg. Geðheilsu minni hrakaði hratt og örvilnunin náði hápunkti þegar ég vaknaði um miðja nótt og sá draug við hliðina á rúminu. Draugurinn var reyndar vinaleg stelpa sem strauk mér blítt, en ég stirðnaði engu að síður upp af hræðslu og bað Guð um að tengingin myndi virka á ný.
Eftir sjö svefnlausar nætur og dagleg hádramatísk símtöl í símafyrirtækið fékk ég loksins merki á ráterinn. Mér leið eins og fíkli með fullar æðar af efnum og hef eytt síðustu mánuðum í alsælu.
Bakþankar Fréttablaðsins 28. nóv.
Flokkar: Stjórnmál og samfélag|
Facebook .
Efnisorð: Of persónulegt