Ég heyrði haft eftir einhverjum hagfræðingi í vikunni að ef efnahagsástandið batnaði ekki mætti búast við því að fólk flytti af landi brott.
En hvernig má það vera? Maður stórtapar á því að vera í útlöndum. Veik staða krónunnar sér til þess.
Þar fyrir utan boðaði Icelandair í dag sparnaðaraðgerðir sem felast meðal annars í því að fljúga vélunum hægar til að spara eldsneyti!
Ég held, satt best að segja, að meiri líkur séu á því að fólk haldi sig heima við þessar aðstæður.


7 ummæli
24.06, 2008 kl 23:32
hke
Hvað ætli kosti að láta vélarnar keyra?
Ég held ég veki aftur upp umræðuna um jarðgöng til Evrópu.
24.06, 2008 kl 23:35
Arna Schram
Svo er líka spurning um að láta þær sigla…
Já og jarðgöngin til meginlandsins… voru þau ekki með sjoppum og öllu?
24.06, 2008 kl 23:49
hke
Jú, „sós’ o’ sallad“ á 45 mínútna fresti fyrir fitnandi þjóð.
Ég er enn jafn svag fyrir hugmyndinni um hvítvínsflösku á eina evru í suðrænum súpermarkaði. Engar göngugrindur, þó!!!
24.06, 2008 kl 23:53
Arna Schram
Hvítvínsflaskan er þó orðin miklu dýrari – fyrir okku Frónbúa – frá því hugmyndin var fyrst sett á blað…Svo tekur líka bráðum lengri tíma að komast í hana…
24.06, 2008 kl 23:57
hke
Já, ok – 130 kall í staðinn fyrir tæpar 100 – ég svitna ekki
25.06, 2008 kl 04:56
Davíð Logi
Mér finnst ekki ganga að þeir fljúgi jafn hægt heim til Íslands og á leiðinni út. Ímyndaðu þér að hafa fjórar klukkustundir í stað þriggja á leiðinni heim frá London til að fyllast angist vegna dýrtíðar heima á Íslandi, hættunnar á því að rekast á ísbirni á Miðnesheiði á leið heim frá flugvellinum og svo framvegis. Maður færi yfir um – sérstaklega þar sem ég reikna fastlega með að áfengið í flugvélinni hækki í verði (og var þó svívirðilega dýrt fyrir).
17.07, 2008 kl 22:04
hildigunnur
ekki tapar maður á því að fá vinnu í útlöndum – og koma svo hingað heim og kaupa allt geeekt ódýrt…