Þegar skoðanakannanir benda til að stjórnmálaflokkar séu að tapa fylgi segja flokksmenn eitthvað á þessa leið: „Við eigum ekki að einblína á kannanir. Við eigum að líta til kosninga. Það sem skiptir máli er það hvað kemur upp úr kjörkössunum.“ (Fyrsti kafli í óskrifuðu bókinni: Lærðu að verða stjórnmálamaður).
Síðustu hræringar í borginni sýna þó – svo ekki verður um villst – að kannanir eru ekki bara kannanir. Þær hafa líka mikil áhrif.
Dæmið er svona: Sjálfstæðismenn í Reykjavík hafa á undanförnum mánuðum sagt – og það hefur komið skýrt fram í könnunum – að þeir styðji ekki þann vandræðagang sem einkennt hefur borgarstjórnarhóp Sjálfstæðisflokksins á kjörtímabilinu.
Talsmenn borgarstjórnarflokksins gripu reyndar fyrst til þess ráðs að kenna umræðunni um: Umræðan hefði verið sjálfstæðismönnum afar erfið!
Þegar hinir almennu sjálfstæðismenn - sem hingað til hafa verið taldir afar hollir sínum flokki – héldu hins vegar áfram að refsa borgarfulltrúunum gat hópurinn ekki lengur stungið höfðinu í sandinn.
Þeir litu í eigin barm. Hættu að berjast um borgarstjórastólinn að ári og sameinuðust um að Hanna Birna yrði þar í forystu.
En hvernig verður framhaldið?
Hvað sýna næstu kannanir? Mun fylgi sjálfstæðismanna í borginni rísa að nýju?
Eða verður sjálfstæðismönnum áfram refsað (í skoðanakönnunum) og nú sérstaklega fyrir það að leiða einn mann – frá sundruðum framboðslista og með lítið fylgi – til forystu í borginni?


3 ummæli
10.06, 2008 kl 13:43
Hildigunnur
Mikið vona ég það, þrátt fyrir að xD segullinn sé skelfilega öflugur í kjörklefanum…
10.06, 2008 kl 18:05
Rumsfeld
Það að grasrótin kjósi á miðju kjörtímabili er einfaldlega rangt hjá þér. Kanski er þessi pistill byggður á einhverjum draumur hjá þér að Sjálfstæðisflokkurinn komi illa út úr næstu kosningum.
10.06, 2008 kl 21:24
Arna Schram
Ég má til með að leiðrétta smá misskilning hjá Rumsfeld. Það sem ég á við – augljóslega að ég hélt – er að skoðanakannanir þ.e. niðurstöður þeirra hafa ýtt á borgarstjórnarhópinn og flýtt fyrir því að hann tæki ákvörðun um það hver verði næsti borgarstjóri sjálfstæðismanna. Að því leyti má segja að grasrótin hafi kosið á miðju kjörtímabili, (lesist=hún hafði áhrif) – en auðvitað gerði hún það ekki, þ.e. kaus ekki í raun og veru – eins og augljóst er.
Ég hef enga drauma um neinar niðurstöður í næstu kosningum…það breytir því ekki að það er gaman að spá í spilin.