Það er erfitt fyrir framsóknarmenn að vera í stjórnarandstöðu – því þeir mæta sjálfum sér í dyrunum, sagði Björg Eva Erlendsdóttir stjórnmálaskýrandi í Mannamáli á Stöð 2 í kvöld.
Þetta eru orð að sönnu. Verkefni stjórnvalda nú taka mið af þeirri stefnu sem tekin var í tíð ríkisstjórnar sjálfstæðismanna og framsóknarmanna.
Annars var skemmtilegt að fylgjast með þeim Björgu Evu og Agnesi Bragadóttur gera upp stjórnmál vetrarsins í þættinum Mannamáli.
Þær voru í lokin beðnar um að velja stjórnmálamann vetrarins. Agnes valdi Geir H. Haarde og Björg Eva valdi Ólaf F. Magnússon.
Þeim síðarnefnda hefði tekist hið ómögulega: Að verða borgarstjóri.


1 ummæli
25.05, 2008 kl 21:24
Ellismellur
Það væri áreiðanlega bæði skemmtilegt og fróðlegt ef þú, Arna, með þína þekkingu á pólitíkinni og því sem þar gerist bak við tjöldin, myndir setja inn vangaveltur þínar um hvort framsóknarflokkurinn sé búinn að vera eða hvort hann eigi eitthvert erindi við þjóðina. Manni finnst einhvernveginn að þetta vesalings fólk sem heldur dauðahaldi í flokksnefnuna sína, hafi ekki lengur neitt til að berjast fyrir eftir að SÍS háði sitt dauðastríð. Einu sinni þóttust þeir reka erindi landsbyggðarfólks, en nú hafa Vinstri-grænir tekið það hlutverk að sér, einu sinni þóttust þeir vera málsvarar bænda, en allir „professional“ bændur vilja sem minnst af þeim vita, það er helst bureaucratian við Hagatorgið sem daðrar við þá – og þá aðallega sá hluti þeirra sem er að fara á ellilaun. Sá sem þetta skrifar þekkir enga heiðarlega manneskju sem viðurkennir að kjósa framsókn. Er það ekki bara að verða reglan með landann?