Helsið í Kína

Kunningjakona mín var að koma heim úr stuttri heimsókn í Kína. Þar gerði hún tilraunir til þess að fylgjast með atburðunum í Tíbet. Hún leitaði á netinu og horfði á CNN og BBC World.

Það gekk illa.

Þegar hún fór á netið kom í ljós að ekki var hægt að komast inn á fréttir  alþjóðlegra fjölmiðla um Tíbet. Þegar CNN eða BBC fjölluðu um málið varð skjárinn auður.

Kínverskir fjölmiðlar hafa sáralítið sagt frá mótmælunum í Tíbet og stjórn kommúnista í Peking reynir að koma í veg fyrir að almenningur þar í landi geti lesið erlendar fréttir af ástandinu. Hún hefur meðal annars lokað  fyrir netaðgang að efni sem inniheldur orðin: Tibet, violence, riot og Lhasa.

Ritskoðunin nær einnig til myndbandsvefsíðunnar YouTube.

Kínastjórn reynir jafnframt að hindra fréttaflutning með því að halda erlendum fjölmiðlum frá Tíbet. Frá 12. mars hafa erlendir fjölmiðlamenn ekki fengið leyfi til að koma til Tíbets – nema með einni undantekningu. Og síðustu vikur hefur að minnsta kosti 25 fréttamönnum, þar á meðal frá Hong Kong, verið vísað frá Tíbet.

Náðarsamlegast fékk útvalinn fámennur hópur fréttamanna að fara til Lhasa, höfuðborgar Tíbets, í vikunni en fastlega er búist við því að hópurinn fái einungis að sjá það sem stjórnvöld vilja.

Kínastjórn hefur með öllum þessum aðgerðum sínum dregið úr veikum vonum manna um að hún stefni að því að veita almenningi þau sjálfsögðu réttindi að búa í opnu og lýðræðislegu samfélagi.

Það ber að harma og fordæma.

2 ummæli

Já, það er varla hægt að tala um framfarir þarna…

erum „við“, Ísland, ekki að styðja eitt Kína?

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):