London um páska

Synd að British Airways ætli að hætta áætlunarflugi til Íslands. Með því hefur verið hægt að ferðast ódýrt milli London og Reykjavíkur – í farþegarými sem gerir ráð fyrir hærra fólki en Evrópustaðallinn.

Íslensku flugfélögin hafa ekki getað boðið eins vel.

Annars var London fín um páskana – svolítið kalt og hráslagalegt - en andinn góður og nóg af flottum söfnum til að skoða.

Ekkert varð hins vegar úr verslunarleiðangri enda lítil skynsemi í því fyrir Íslending með dýrt pund í vasanum. 

Og já - á meðan ég man: Ég rakst ekki á neinn frægan í London. Ekki einu sinni Egil Helga.

En það er allt í lagi!

1 ummæli

Gott skot í restina á Egil. Humorinn í lagi !

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):