„Gömlu góðu dagarnir“

Hinir stórskemmtilegu Staksteinar fjölluðu nýverið um það sem þeir kölluðu víðtæka en hljóðláta valdatilfærslu frá viðskiptajöfrum til stjórnmálamanna. Þeir síðarnefndu hefðu misst völdin til þeirra fyrrnefndu en væru nú að fá þau til baka.

Stjórnmálamennirnir eru að endurheimta völdin, sem þeir hafa misst til viðskiptajöfra og fjármálajöfra á fyrstu árum 21. aldarinnar.“

Ýmsir klóruðu sér í kollinum og veltu fyrir sér hvað Staksteinar væru að fara. Kannski skýringuna megi finna í Reykjavíkurbréfinu um helgina:

Þar [á Írlandi] er nú rætt um að hugsanlega þurfi að þjóðnýta írsku bankana eða alla vega einhverja þeirra. Sú skoðun hefur skotið upp kollinum í umræðum hér að það sama gæti gerzt undir lok þessa árs eða snemma á næsta ári í okkar samfélagi.“

4 ummæli

Af hverju eignuðumst við ekki svona gullkálf? Bara að mjólka og mjólka þangað til blæðir úr spenunum og láta svo ríkið um að hjúkra hræinu.

Hygg að þarna hafi Staksteinn í Hádegismóum sýnt sitt rétta andlit – - hann virkilega langar í „gömlu góðu dagana“ þegar einungir þeir „nnvígðu og innmúruðu“ höfðu aðgang að peningum og völdum – - og stjórnmálaklíkur úthlutuðu til vina og bandamanna.

pvMgvfO http://lmubde.com/ WJmOfI [url=http://vxhhnl.com/]WJmOfI[/url]

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):