Hver kannast ekki við þessa frasa?
Færslur ritaðar í febrúar 2008.
Ég sá einhvern blogga um hádegisviðtal Stöðvar 2 við Jón Baldvin í vikunni. Ekki var verið að velta fyrir sér umfjöllunarefninu, heldur hinu: Í hvaða viðtali Krataforinginn fyrrverandi yrði næst.
Jón Baldvin mætti ekki bregða sér til landsins án þess að koma í viðtal.
Ég þekki líka annan mann sem varla stígur niður fæti hér á Fróni án þess að fara í beina útsendingu.
Sá heitir Árni Snævarr.
Ég var að leita að Árna og númerinu hans um daginn og sendi smáskilaboð til eins fjölskyldumeðlims.
Sá skrifaði til baka: „Árni er á landinu, kveiktu á einhverjum ljósvakanum, og þú finnur hann örugglega!“
Margrét Sverrisdóttir varaborgarfulltrúi vandar Ólafi F. Magnússyni borgarstjóra og fyrrum samherja sínum í pólitík ekki kveðjurnar í grein í 24 stundum í dag.
Hún byrjar greinina á því að segja að það virðist útilokað að hann nái að vinna hylli borgarbúa. Borgarbúar viti að Villi hafi mútað honum með borgarstjórastöðunni til að koma Sjálfstæðisflokknum aftur til valda.
Hún telur síðan í greininni upp ýmis stefnumál F-listans og segir að þeim hafi verið betur fyrir komið hjá fyrrverandi meirihluta, þ.e. meirihluta Frjálslyndra og óháðra, VG, Framsóknar og Samfylkingar.
Flugvallarmálið sé eitt þeirra. „Það lá fyrir í þeim meirihluta að engin ákvörðun yrði tekin um brotthvarf flugvallarins á þessu kjörtímabili, enda var það skilyrðið sem Ólafur setti þá, sjálfur „guðfaðir þess meirihluta“, eins og hann titlaði sig sjálfur,“ skrifar hún.
Þá vitum við það.
Á meðan Vilhjálmur íhugar mögulega endurkomu sína í borgarstjórastólinn eru sjálfstæðismenn, margir hverjir, farnir að leiða hugann að hugsanlegum arftaka.
Nafn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur heyrist æ oftar í því sambandi. Nú síðast í Vefþjóðviljanum.
Þeir sem halda þar á penna teljast til hægri arms Sjálfstæðisflokksins.
Í dag varð ég vitni að tilburðum Valhallar til þess að stjórna fjölmiðlaumfjöllun.
Eða hvað á maður að halda þegar starfsmaður Sjálfstæðisflokksins stendur sem fastast fyrir framan dyr hliðarherbergis á jarðhæð Valhallar og kemur þannig í veg fyrir að hópur blaðamanna og ljósmyndara stærstu fjölmiðla landsins geti fylgst með (og spurt út í) yfirlýsingu stjórnmálamannsins Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar um framtíð sína í pólitík!?
Þegar hinn sjálfskipaði dyravörður stóð við innganginn voru fréttamenn ljósvakamiðlanna inni í hinu forboðna herbergi – það var reyndar upp á náð og miskunn að þeir fengju að vera þar allir í einu - að hlusta á það sem Villi hafði fram að færa í beinni.
Aðrir blaðamenn máttu dúsa í anddyrinu og giska á það sem fram fór.
Dyravörðurinn sá til þess.
Skýringar starfsmanna Valhallar voru margvíslegar. Meðal annars þær að þeir fjölmiðlar sem væru samkvæmt þeirra skilgreiningu „með beina útsendingu“ fengju forgang.
Ekkert þýddi að tjónka við þá og benda til dæmis á að nú til dags væru ALLIR fjölmiðlar með beina útsendingu; allir fjölmiðlar væru með netútgáfu.
Fyrir nú utan það að allir fjölmiðlar eiga við svona tækifæri að sitja við sama borð. Þarna var kjörinn fulltrúi borgarinnar að tjá sig um mál sem varðar almenning.
Þegar Villi hafði lokið máli sínu við ljósvakamiðlana í beinni var dregið um það hvaða prentmiðlar mættu fara næstir inn -einn í einu. Hver þeirra fékk um það bil tíu mínútur með Villa. Starfsmaður borgarstjórnarhóps sjálfstæðismanna sá til þess að við tímamörkin væri staðið.
Ekki fékkst uppgefið hvaðan þessi tilmæli komu, hvort þau kæmu frá Villa sjálfum eða starfsmönnum flokksins.
Hvað sem því líður vona ég að þetta komi ekki fyrir aftur!
Vandræði sjálfstæðismanna í borginni leysast ekki nema þeir komi sér saman um arftaka Villa.
Það hlýtur að liggja beinast við að sá arftaki sé næsti maður á listanum, þ.e.a.s. Hanna Birna.
Verði leitað út fyrir hópinn mun það veikja hann enn frekar. Ekki síst út á við. Það mun með öðrum orðum sýna fram á óeiningu innan hópsins.
Sjálfstæðismenn í borginni mega ekki við meiri vandræðagangi.
Ekki heldur borgarbúar.
Enn sér ekki fyrir endann á pólitískum afleiðingum REI-málsins. Eftir REI-skýrsluna er Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson aftur kominn í kastljósið. Spjótin beinast að honum úr öllum áttum; hann á í vök að verjast.
Andstaðan við að hann taki við borgarstjórastólnum fer vaxandi – ekki síst meðal sjálfstæðismanna. Að sama skapi vex stuðningur við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og að hún verði leiðtogi sjálfstæðismanna í borginni.
Mikill titringur er í Ráðhúsinu þessa dagana. Ekki bara meðal borgarfulltrúa meirihluta og minnihluta heldur líka meðal starfsmanna. Sviptingarnar síðustu daga og mánuði sýna að allt getur gerst og það á einu augnabliki.
Eftir hádegi í dag barst sá orðrómur um bæinn að von væri á yfirlýsingu frá Vilhjálmi. Það ýtti undir vangaveltur um að hann væri að hætta. Efni yfirlýsingarinnar var þó ekki í þá veru. Í henni áréttar hann meðal annars að hann hafi borið umboð sitt vegna eigendafundar OR, um samruna REI og GGE, undir fyrrverandi borgarlögmann – en ekki núverandi borgarlögmann: Kristbjörgu Stephensen.
Kristbjörg tók við því starfi í júlí í fyrra. Enginn hafði gegnt því starfi árin á undan vegna skipulagsbreytinga.
Ekki er vitað hvaða fyrrverandi borgarlögmann Vilhjálmur á við í yfirlýsingu sinni, en á undan Kristbjörgu var Gunnar Eydal borgarlögmaður, þar á undan Vilhjálmur H. Vilhjálmsson og þar á undan Hjörleifur B. Kvaran.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur áður í REI-málinu vitnað til borgarlögmanns. Í viðtali við Útvarpið hinn 11. október 2007 var fjallað um erindi umboðsmanns Alþingis vegna REI-málsins. Vilhjálmur sagði í því viðtali að hann hefði óskað eftir því að borgarlögmaður tæki saman svör vegna spurninga umboðsmanns.
Vilhjálmur sagði síðan að hann teldi að löglega hefði verið staðið að samruna REI og GGE. Orðrétt segir hann: „Borgarlögmaður hann telur að það hafi verið rétt staðið að þessum fundi, fundurinn hafi ekki verið ólögmætur, eigendafundurinn og að öðru leyti þá fylgdust lögfræðingar frá Orkuveitunni með þessu ferli.“
Víst er að ekki eru öll kurl komin til grafar í REI-málinu.
Úr þinghúsinu hlera ég að ýmsir undrist nýleg Staksteinaskrif um Arnbjörgu Sveinsdóttur, þingflokksformann Sjálfstæðisflokksins.
Ekki endilega vegna þess að þar var vegið að þingmanni Sjálfstæðisflokksins. Heldur vegna þess að þar var vitnað til orðaskipta og deilna sem áttu sér stað löngu fyrir jól.
En hvað veldur því að Staksteinar dragi þetta fram löngu síðar?
Einhverjir velta því fyrir sér hvort þar kunni að ráða för pirringur í garð Arnbjargar vegna afstöðu hennar, sem formanns sjávarútvegsnefndar þingsins, til auðlindagjaldsins.
Nefndin tók eins og kunnugt er þá ákvörðun í desember síðastliðnum að lækka um tíma veiðigjald á öðrum fisktegundum en þorski. Áður lá fyrir frumvarp um að fella niður veiðigjald á þorski í tvö ár.
Leiðarahöfundur Morgunblaðsins, sem er talsmaður veiðigjalds, hafði stór orð um þessa ákvörðun og talaði um linkind og vesaldóm.
Staksteinaskrifin sýna því ef til vill að ákvörðunin er (eins og aðrar óæskilegar ákvarðanir í hugum Staksteina) geymd en ekki gleymd.


Nýleg ummæli