Eitt sinn var mér tjáð að nafn belgíska flugfélagsins SABENA stæði fyrir Such A Bloody Experience Never Again. Þessi frásögn kom upp í huga mér eftir hrakningar síðasta sólarhringinn.
Það tók mig nefnilega - eða réttara sagt flugfélagið Iceland Express – sextán tíma að koma mér heim frá Barcelona. Nærri átta tíma seinkun varð á brottför vélarinnar - vegna bilunar – og um átta tíma tók að fljúga frá höfuðborg Katalóníu til Reykjavíkur. Venjulegur flugtími eru um það bil fjórar klukkustundir.
Farþegar máttu – er þeir biðu brottfararinnar – dúsa við óþægilegar aðstæður í marga tíma á flugstöðinni um miðja nótt. (Farþegar fengu seint og illa upplýsingar um allar tafir). Einhverjir fengu að vísu – náðarsamlegast - um hríð að koma sér fyrir í anddyri einhvers hótels. (Þeir sem voru á vegum Úrvals Útsýnar). Þar gátu þeir dottað í aðeins mýkri sætum en flugstöðin hafði upp á að bjóða.
Hvorki var boðið upp á vott né þurrt meðan á biðinni stóð. Sumir fengu reyndar, svo allrar sanngirni sé gætt, fjórtán evrur. (Af hverju ekki fjórtán og hálfa eða fimmtán?). Sá galli fylgdi hins vegar gjöf Njarðar að allt var lokað í flugstöðinni enda mið nótt - svo ómögulegt reyndist að eyða þeim.
Þegar í vélina var komið – tók það starfsmenn flugvallarins og flugliða nokkrar tilraunir að loka vélinni. Ekki hughreystandi, satt best að segja. Og einver bið varð á því að vélin kæmist í loftið – ekki var nefnilega gert ráð fyrir vélinni í tölvukerfi vallarins, að því er okkur var tjáð.
Þegar vélin loks náði að hefja sig til flugs – snemma morguns – báðust flugliðarnir afsökunar á töfinni, fyrir hönd flugfélagsins, og bættu við: Af þeim sökum fáið þið einn drykk frían!
Hvílíkt örlæti!
Vegna ókyrrðar á leiðinni norður á bóginn þurfti vélin að lenda í Skotlandi og taka meira bensín. Vélin lenti því á Fróni tólf tímum seinna en áætlað var.
Er einhver hissa á því að maður hugsi: Such A Bad Experience, Never Again!


8 ummæli
13.11, 2007 kl 16:55
Jónas
Sæl Arna,
Ef að fluginu þínu seinkar um meira en 5 tíma yfir nótt þá áttu rétt á allavega gistingu á hóteli skv. reglum ESB (Sem að Spánn er partur af). Þú átt ekki að þurfa biðja um gistinguna að fyrra bragði heldur eiga þeir að bjóða þér hana. Svo áttirðu einnig rétt á einhverjum pening – hann fer eftir seinkuninni sjálfri.
Getur skoðað m.a. hér: http://www.cloudworks.co.uk/node/282: „If an overnight wait is required, then you must be given hotel accommodation including transport to and from the hotel.“
Tekið af Iceland Express síðunni:
If your flight is delayed for other reasons, e.g. technical reasons, Iceland Express will compensate you as follows:
If a delay occurs of more than two hours from the scheduled time of departure, you will be entitled to receive a voucher to a value of GBP 5, or the equivalent amount in DKK, EUR or ISK.
If a delay occurs of more than four hours from the scheduled time of departure, you will be entitled to receive a voucher to a value of GBP 7,50, or the equivalent amount in DKK, EUR or ISK.
If a delay occurs of more than six hours from the scheduled time of departure, you will be entitled to receive a voucher to a value of GBP 10, or the equivalent amount in DKK, EUR or ISK.
If the delay requires you to wait overnight and should you have no other alternative accommodation available, Iceland Express will arrange your overnight hotel accommodation (one night only to include breakfast) and transport to and from the hotel.
Þar sem bilunin var hjá þeim, þ.e. sprungið klósettrör, þá ættirðu allavega rétt 10 pundum og ef þetta var yfir nótt þá ættirðu að hafa fengið gistingu.
Gangi þér vel!
15.11, 2007 kl 22:17
Arna Schram
Jú, ætla að tékka á þessu!
17.03, 2008 kl 16:56
Sigurður Nikulásson
Ég harma að fleiri skuli þjást hjá Icland Express en gestir þeir sem ég átti von á Frá Kupmannahöfn s.l. föstudag. Það tók 14-fjortán- klukkustundir að koma þeim frá Kbmh til Keflavíkur. Klassiska afsökunun var bilun á vélum. á VEFSÍÐU FÉLAGSINS er sagt að hámarkstími svars við kvörtunum sé 72 stundir Hann er liðinn hjá mér og svar ekki borist Svona er nú það
17.09, 2009 kl 23:48
XRumerTest
Hello. And Bye.
24.09, 2009 kl 23:48
Escabantitits
http://www.aur.edu/alumni/rai/files/htren
26.09, 2009 kl 02:26
Amourntom
[color=green][size=24][/size][/color]
05.10, 2009 kl 13:01
Estithsutlene
Hi People
How are you doing?
09.02, 2010 kl 03:26
Buy Ambien dfgfg
technicality reduction plans adjectives stranger ripened antagonistic zrss great billiards staffing
lolikneri havaqatsu