október 2007

Færslur ritaðar í október 2007.

Þagnarbindindi

Ef marka má bloggið mitt – sem er orðið að tímabundnu letibloggi – mætti ætla að fleiri væru komnir í þagnarbindindi en nýr meirihluti í Reykjavík.

Það verður annars forvitnilegt að fylgjast með því hvernig meirihlutinn ætlar að tækla REI-málið svonefnda. Í einhverjum heyrði ég á dögunum sem vonaðist eftir því að Vinstri græn og sjálfstæðismenn myndu taka sig saman og mynda þriðja meirihlutann. Ætli það sé ekki mikil bjartsýni.

Sem aftur leiðir mig að þessari spurningu: Hvers vegna er ekki bara kosið að nýju í borginni? Ætti það ekki að vera réttur borgaranna að fá að kjósa þegar fram koma stór ágreiningsmál sem sundra meirihlutanum? Og það þrátt fyrir að hægt sé að mynda nýjan meirihluta – með einum manni – án kosninga?

Gunnlaugssaga Ormstungu

Dóttir mín er byrjuð að lesa Íslendingasögurnar í skólanum. Fyrsta bók hennar Gunnlaugssaga fær eftirfarandi dóma:

„Mér finnst þetta leiðinlegt og konurnar ráða engu um það hverjum þær giftast. Þær eru bara einhverjir hlutir sem pabbar þeirra selja.“

Svarið sem ég gaf dóttur minni var einfalt: Eins gott að við vorum ekki uppi á þeim tíma!

Konurnar að baki Auði

Í frétt Viðskiptablaðsins í vikunni var upplýst hvaða konur kæmu að nýju fjármálafyrirtæki sem verið er að setja á laggirnar að frumkvæði þeirra Höllu Tómasdóttur og Kristínar Pétursdóttur.

Auk fyrrnefndra tveggja eiga í félaginu: Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, Hildur Petersen, Katrín Pétursdóttir, Kristín Jóhannesdóttir og Svafa Grönfeldt.

Félagið heitir Auður Capital. Í viðtali Auðbjargar Ólafsdóttur blaðamanns við þær fyrstnefndu kemur fram að félagið hefji störf fljótlega eftir áramótin. Þær sjá viðskiptatækifæri í vaxandi auði kvenna.

Kom af fjöllum

Það hefur kannski ekki farið hátt í allri orrahríðinni síðustu daga að Haukur Leósson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, heyrði fyrst af því frá fréttamönnum að víkja ætti honum úr stjórn OR vegna REI-málsins.

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri, og vinur Hauks til margra ára, greindi frá ákvörðuninni um að víkja Hauki úr OR á blaðamannafundi borgarstjórnarhóps sjálfstæðismanna í upphafi síðustu viku.

Þá var Haukur ekki á landinu. Hann fékk stuttu síðar símtal frá blaðamönnum sem tjáðu honum tíðindi.

Þess má geta að Haukur er þegar þetta er skrifað enn stjórnarformaður OR en væntanlega verður því breytt á borgarstjórnarfundi í vikunni þegar nýr meirihluti tekur við völdum.

Sjálfstæðismenn eru að vonum óánægðir með að hafa tapað völdum í borginni. Höfundur Deiglupistils dagsins segir að sexmenningarnir í borgarstjórnarhópi sjálfstæðismanna hafi fært andstæðingum flokksins völdin í borginni á silfurfati.

Á Deigluna skrifa ungir sjálfstæðismenn. Borgarstjórnarhópur sjálfstæðismanna fær ekki háa einkunn í pistli dagsins. Í pistlinum segir meðal annars að sexmenningarnir hafi látið óánægju sína og pirring með starfshætti og samskipti innan síns eigin flokks verða að vopni í höndum andstæðinganna.

Í lok pistilsins segir: „Borgarfulltrúi Framsóknarflokksins skaut meirihlutann niður með því að svíkja trúnað við fráfarandi borgarstjóra. Það var Björn Ingi sem tók í gikkinn en einungis eftir að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins höfðu hlaðið byssuna, rétt honum vopnið í hendur og stillt fyrir hann miðið. Vonandi hafa menn lært sína lexíu af þessu máli öllu, nógu dýru verði er hún keypt.“

Satt og logið

Hin pólitíska atburðarás í kringum REI-málið svonefnda hefur tekið á sig ýmsar myndir. Margt er enn á huldu. Hver sagði hvað við hvern, klukkan hvað og með hvaða hætti?

Orð stendur gegn orði. Áttu Villi og Björn Ingi með sér fund í vikunni þar sem þeir handsöluðu áframhaldandi meirihlutasamstarf? Villi segir: Já. Björn Ingi: Nei.

Ekki geta báðir verið að segja satt!

Sjálf umræðan um REI er farin í marga hringi. Það sem einn segir í dag er ekki í samræmi við það sem sagt var – eða gert fyrir viku. Hvað þá fyrr á árinu.

Það er því kannski ekki nema von að manni finnist sem ógæfumaður einn - sem ruddist óvænt inn á leiksviðið í vikunni - hafi meiri sannfæringarkraft í sínum málflutningi, eins og ég rakti  hér, en sjálfir pólitíkusarnir á þessum síðustu dögum stjórnmálanna.

Ómöguleg blanda

Sama kvöld og gamli góði Villi, fráfarandi borgarstjóri og Yoko Ono vígðu friðarsúluna í Viðey, í boði Orkuveitunnar, mökkuðu oddvitar minnihlutans (og jafnvel fleiri) um myndun nýs meirihluta.

Tveimur dögum síðar kemur Árni Snævarr, starfsmaður Sameinuðu þjóðanna, í löngu planaða vinnuferð hingað til lands til að ræða við forsvarsmenn Reykjavík Energy Invest. Getur vart komið á óheppilegri tíma. Árni hefur unnið fyrir loftslagsnefnd SÞ sem deilir friðarverðlaunum Nóbels með Al Gore.

Friður + Orkuveita + REI = Ómöguleg blanda.

Hvernig væri að gera eitthvað!

„Hvernig væri að gera eitthvað,“ kallaði róninn reiðilega til oddvita nýs meirihluta í borginni á blaðamannafundinum við Iðnó í dag.

„Ég er búinn að vera á götunni í heilt ár. Þið eigið að horfa á okkur. Hvernig væri að gera eitthvað! Gerið eitthvað fyrir okkur!“

Einhvern veginn finnst mér eins og þessi maður hafi verið eini maðurinn sem hafi verið fullkomlega samkvæmur sjálfum sér í dag.

Reykingar í þinghúsinu

Ég sá umfjöllun um það í Kastljósinu í kvöld að sérstakt reykingaherbergi væri í þinghúsinu.

Þá rifjaðist upp fyrir mér að þegar ég hóf þingfréttamennsku fyrir mörgum árum var okkur blaðamönnunum komið fyrir á efri hæð þinghússins, í Bolabásnum svonefnda.

Bolabásinn var þó ekki bara aðstaða fyrir fréttamenn. Þar komu nefnilega líka þingmenn til að reykja!

Blaðamannabásinn var reykingabás þingmanna. Reykingarnar vöktu ekki alltaf lukku – eiginlega aldrei – nema þegar þeim fylgdi skúbb!

Viltu vera memm?

Fram kom í Viðskiptablaðinu í gær að hugmyndina að sameiningu Reykjavík Energy Invest og Geysis Green Energy mætti rekja til Hannesar Smárasonar. Greint var frá því að Hannes hefði hringt í Bjarna Ármannsson og stungið upp á því að þessi tvö félög yrðu sameinuð.

Í ljósi fyrri samskipta þessara manna ímyndar maður sér að samtalið hafi verið heldur stirt. Bjarni mátti jú víkja úr forstjórastóli Glitnis eftir að Hannes og félagar hjá FL Group náðu þar völdum. Kannski svona: Viltu vera memm – samtal. Ég skal lofa að vera ekki vondur við þig aftur.

Sameiginlegur áhugi þeirra á orkumálum hefur ef til vill sameinað þá á ný. Bjarni hafði lagt grunninn að útrás Glitnis í þeim málum – meðal annars með því að gera Árna Magnússon, fyrrverandi framsóknarráðherra, að orkumálaráðherra Glitnis.

Glitnir ásamt FL Group og VGK-Hönnun stofnuðu svo saman fjárfestingafélagið Geysi Green Energy um áramótin síðustu en verkefni þess var, samkvæmt tilkynningu á þeim tíma, að fjárfesta í sjálfbærri orkuframleiðslu víða um heim. Hannes tjáði sig um GGE í samtali við Krónikuna í febrúar síðastliðnum og játaði hann því þar aðspurður að í orkugeiranum væri hagnaðarvon.

Já, í upphafi skyldi endinn skoða.

« Fyrri færslur