Bann við einkadansinum rann ljúflega í gegnum þingið

Í dag tekur í gildi lagaákvæði um bann við hvers konar einkasýningum á nektardansi. Ákvæðið er í lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Lögin voru samþykkt á Alþingi í mars síðastliðnum með 53 samhljóða atkvæðum.

Í skýringum með lagafrumvarpinu segir: „[...R]étt þykir til áréttingar að taka fram að einkadans sé bannaður og sýnendum sé óheimilt að fara um meðal áhorfenda [...]„  Í skýringunum er síðan bent á að samsvarandi ákvæði séu í lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar. „[O]g eru þeir „næturklúbbar“ sem eru starfandi dag bundnir af því.“

Síðan segir: „Hér er því ekki verið að leggja til neinar breytingar frá gildandi lögum hvað þetta varðar.“

Áfram verður semsé deilt um það hvað sé einkadans, tjöld og lokað rými? Eða hvað?

2 ummæli

Björgvin Valur

Mér þykir þetta hugtak, einkadans, svolítið vítt. Vonandi eru nánari og betri skilgreiningar á því í lagatextanum.

Tek fram að ég er ekki að snúa út úr – ég er lítt hrifinn af þessu fyrirbæri sem kallast einkadans en er líklega ekkert annað en forleikur að vændi. Tel hinsvegar líklegt að lögmenn eigi auðvelt með að snúa út úr ef hugtakið er ekki skilgreint betur en með þessu orði. Einkadans.

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):